Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 16. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Á og J kröfðust þess að R og G yrði gert að afhenda þeim tiltekna fasteign í Kópavogi, aflétta öllum veðskuldum af eigninni og gefa út afsal fyrir henni til þeirra, allt gegn greiðslu á nánar tilgreindri fjárhæð. Var kröfugerðin reist á því að í gildi væri bindandi samningur milli málsaðila um sölu á fasteigninni sem komist hefði á með samþykktu gagntilboði. R og G töldu að samningurinn hefði fallið úr gildi. Talið var að þegar borin væru saman tiltekin ákvæði í hinu samþykkta gagntilboði um greiðslutíma annars vegar og afléttingu áhvílandi veðskulda hins vegar yrði ráðið að hið samþykkta gagntilboð fól í sér að ganga skyldi frá sérstökum kaupsamningi um eignina eigi síðar en á nánar tilgreindum degi. Lagt var til grundvallar að fyrir þann tíma hefðu Á og J ekki lýst sig reiðubúin til að inna án fyrirvara af hendi þá greiðslu sem þeim bar að greiða við kaupsamningsgerð og að þetta hefði verið ástæða þess að ekki var tímanlega boðað til gerðar sérstaks kaupsamnings. Með vísan til þessa voru Á og J talin bera ábyrgð á því gagnvart R og G að svo fór og R og G því eftir nefndan dag rétt að líta svo á að þau væru ekki lengur skuldbundin Á og J um sölu fasteignarinnar. Voru R og G því sýknuð af hinni aðfararhæfu kröfu Á og J í málinu. Á og J gerðu jafnframt viðurkenningarkröfu um að í gildi væri bindandi kaupsamningur milli málsaðila en þeirri kröfu var vísað frá dómi.