Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 30. gr. laga nr. 95/2000 — Lög um fæðingar- og foreldraorlof
Stefnanda, sem var barnshafandi, var sagt upp störfum á reynslutíma. Deilt var um hvort heimilt hefði verið að segja henni upp eins og atvikum var háttað, hver væri uppsagnarfrestur hennar, hvort hún ætti rétt á miskabótum og hvaða greiðslur ætti að draga frá yrði fallist á kröfu hennar. Það var ekki talin gild ástæða til að segja stefnanda upp störfum í skilningi 30. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með vísan til þess að hún hafi verið á reynslutíma. Þá voru þær skýringar sem voru gefnar um að ekki hafi myndast nægjanlegt traust og að stefnandi hafi virkað áhugalaus og óörugg ekki taldar gildar ástæður fyrir uppsögn í skilningi ákvæðisins. Uppsögnin var því ólögmæt. Jafnframt var litið svo á að miða bæri við þriggja mánaða uppsagnarfrest auk greiðslna frá uppsögn og fram að fæðingu barnsins. Frá skaðabótakröfu stefnanda voru dregnar atvinnuleysisbætur og aðrar greiðslur sem hún fékk greiddar á þessum tíma. Ekki var fallist á að lækka bætur á grundvelli 36. gr. samningalaga og reglna um brostnar forsendur. Hins vegar var miskabótakröfu stefnanda hafnað enda ekki talið að uppsögnin hafi falið í sér ólömæta meingerð.