Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 11. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. apríl 2025

E-3742/2022

Embætti landlæknis (Dagmar Sigurðardóttir lögmaður) gegn Köru Connect ehf. (Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður), Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (Snorri Stefánsson lögmaður) og Origo hf. (Hjördís Halldórsdóttir lögmaður) og Sensa ehf. og Kara Connect ehf. gegn Embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Origo hf. og og Sensa ehf.

Verulegir annmarkar þóttu vera á málsmeðferð kærunefndar útboðsmála og var úrskurður nefndarinnar felldur úr gildi að því leyti að hann kvað á um stjórnvaldsekt, að bjóða skildi út tiltekin innkaup og greiðslu málskostnaðar. Ekki voru taldar forsendur til þess að kærandi gæti aukið við kröfugerð sína og breytt henni með þeim hætti að kærunefnd útboðsmála hafi fallist á og þannig lagt málið í annan farveg en upphaflega kæra gaf tilefni til. Þá var talið að kærunefndinni hefði borið að vísa málinu frá nefndinni þar sem kærufrestur hefði verið liðinn er kærandi lagði fram upprunalega kæru sína. Auk þess hefði kærunefndin ekki tekið afstöðu til þess hvort fjárhæð þeirra viðskipta sem upphafleg kröfugerð kæranda laut að væri undir viðmiðunarfrjárhæðum þótt sterkar vísbendingar væru í þá veru. Þá var vísað frá dómi kröfum en vörðuðu ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frávísun á hluta krafna kæranda.