Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 107. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. júlí 2013

E-258/2010

Eykt ehf (Jón Eðvald Malmquist hdl) gegn Akureyrarkaupstað (Ólafur Rúnar Ólafsson hdl)
Lykilorð: Verksamningur.

Fasteignir Akureyrar efndu til útboðs vegna byggingar íþróttamiðstöðvar við Giljaskóla. Þegar tilboð voru opnuð var boð stefnanda lægst. Fasteignir Akureyrarbæjar töldu að einn liður tilboðsins, aukaverk, væri ekki í samræmi við útboðsskilmála. Þegar tilboð voru skoðuð án þess liðar var tilboð stefnanda ekki lægst heldur hið fjórða í röðinni og var samið við þann sem var lægstbjóðandi þegar tilboð voru metin með þessum hætti. Talið var að tilboð stefnanda hefði ekki verið haldið þeim galla að líta hefði átt fram hjá því að þessu leyti og að því hefði átt að meta það sem lægsta boð. Þá var talið að í ljósi skilmála þessa útboðs hefði mátt ætla að því lægsta boði yrði tekið. Var stefndi dæmdur til að greiða stefnanda bætur miðaðar við það sem stefnandi hefði hagnast á verkinu.