Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 82/2000 — Lög um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna

Hæstiréttur birt 18. desember 2008

147/2008

Eykt ehf (Othar Örn Petersen hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

E ehf. tók þátt í forvali vegna verks sem boðið var út af hálfu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. E ehf. var samþykkt af forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins og tilnefnt af utanríkisráðuneytinu sem hæfur aðili. E ehf. gerði tilboð í verkið sem samþykkt var af varnarliðinu. Varnarliðið tilkynnti E ehf. síðar að verksamningnum væri sagt upp til hægindaauka fyrir bandarísk stjórnvöld. Greiddi varnarliðið E ehf. vangildisbætur samkvæmt ákvæði samningsskilmála sem vísað var til í samningi aðila, en E ehf. hafði ekki verið afhent eintak skilmálanna. E ehf. hafnaði því að sættast á vangildisbætur og krafðist efndabóta vegna missis hagnaðar, ásamt bótum vegna kostnaðar af riftuninni. Var íslenska ríkið krafið um bætur á grundvelli laga um varnarsamning milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess nr. 110/1951 og laga um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna nr. 82/2000. Talið var að í 2. tl. 12. gr. viðbætis um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þeirra, sbr. lög nr. 110/1951, væri skýrt kveðið á um að íslenska ríkinu væri ekki skylt að greiða skaðabætur innan samninga vegna samningsrofa varnarliðsins. Þá var ekki sýnt fram á að íslenska ríkið bæri, þrátt fyrir þetta ákvæði, ábyrgð á tjóni E ehf. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfum E ehf.