Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á nokkrum lögum á auðlinda- og orkusviði. nr. 58/2008
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var beiðni HSV hf. um að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í máli sem HSO hf. hafði höfðað á hendur HSV hf. vegna ágreinings um túlkun á samningi félaganna um lífeyrisskuldbindingar. Héraðsdómur rakti stuttlega ágreining aðilanna um atvik málsins og vísaði til þess að það myndi fyrst reyna á þær málsástæður HSV hf. er vörðuðu EES-reglur ef fallist væri á það með félaginu að atvik málsins væru með þeim hætti sem það héldi fram. Öflun sýnilegra sönnunargagna væri hins vegar ólokið og viðbúið að við aðalmeðferð málsins myndi sönnunarfærsla að verulegu leyti snúast um þennan ágreining félaganna. Gæti þá fyrst orðið tilefni til að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til þess að hnekkja þessu mati héraðsdóms, meðal annars með vísan til þess að bæði félögin hefðu áskilið sér rétt til þess að leiða vitni við aðalmeðferð málsins til sönnunar um málsatvik. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.