Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 19. gr. laga nr. 58/1992 — Barnaverndarlög

Hæstiréttur birt 11. október 2001

101/2001

M (Jón Magnússon hrl) gegn K (Dögg Pálsdóttir hrl)
Lykilorð: Börn. Forsjá. Gjafsókn.
Málaflokkur: Barnaréttur

M og K deildu um forsjá tveggja barna sinna, X, 12 ára, og Y, 6 ára. Töldust báðir aðilar hæfir til að fara með forsjá barnanna. Með hliðsjón af því sem upplýst var um vilja X sjálfrar, nálægðar milli heimila málsaðila og þess að ekkert í álitsgerðum sálfræðinga mælti gegn því að við ákvörðun forsjár X yrði tekið tillit til óska hennar, sbr. 4. mgr. 34. gr. barnalaga nr. 20/1992, var dæmt að M skyldi hafa forsjá X en tekið fram að mikilvægt væri að X fengi notið rúmrar og sveigjanlegrar umgengni við K. Þá var, með hliðsjón af því sem fyrir lá í málinu um hagi Y og K, staðfest niðurstaða héraðsdóms um að K skyldi fara með forsjá Y.