Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 43. gr. laga nr. 56/2010 — Lög um vátryggingastarfsemi
Ágreiningur aðila laut að því hvort U ehf. ætti rétt til skaðabóta vegna missis hagnaðar af því að ekki kom til kaupa hans á hlutum í S hf. í samræmi við samkomulagi við E ehf. árið 2010. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var talið að U ehf. hefði ekki tekist að færa sönnur á því að þeir sem komið hefðu að samkomulaginu fyrir hönd E ehf. hefðu haft umboð til þess að rita undir endanlegan kaupsamning um sölu hlutanna. Þá var litið svo á að U ehf. hefði af fúsum og frjálsum vilja tekið ákvörðun um að segja sig frá söluferlinu áður en bindandi kaupsamningur var gerður. Var því ekki fallist á með U ehf. að S og E ehf. hefðu sammælst um að standa ekki við samkomulagið. Voru S og E ehf. sýknuð af kröfum U ehf.
Ágreiningur um kaup á hlutum í Sjóvá Almennum tryggingum hf.