Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 28. gr. laga nr. 53/2000 — Útvarpslög
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Bjarka, Elíassyni, Guðmundi, Margeirssyni, Guðmundi, Sigurbergssyni og Ólafi Halldóri Garðarssyni (
Friðjón Örn Friðjónsson hrl)
B, GM, GS og Ó voru sakfelldir fyrir brot gegn 32. og 33. gr., sbr. 28. gr. útvarpslaga nr. 53/2000 fyrir að hafa í starfi sínu fyrir félagið K staðið fyrir því að tekið var á móti læstum útsendingum 8 tilgreindra sjónvarpsstöðva, þær opnaðar með myndlyklum, í þeim tilgangi að veita aðilum sem ekki voru áskrifendur að umræddum útsendingum aðgang að þeim, og dreifa gegn endurgjaldi og án heimildar til allt að 1650 aðila í Reykjanesbæ, allt þar til lögreglan stöðvaði útsendingarnar 14. janúar 2004. Voru þeir dæmdir til að greiða 500.000 krónur í sekt en sæta ella fangelsi í 28 daga.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Bjarka Elíassyni, Guðmundi Margeirssyni, Guðmundi Sigurbergssyni og Ólafi Halldóri Garðarssyni (
Friðjón Örn Friðjónsson hrl)
Rúmir tíu mánuðir liðu frá skýrslutökum og málflutningi til dómsuppsögu í opinberu máli en málið hafði verið endurupptekið um mánuði fyrir dómsuppsögu án þess þó að skýrslutökur og raunverulegur endurflutningur hafi farið fram. Eins og á stóð varð að telja að skýrslutökur og munnlegur málflutningur hafi ekki komið að því gagni sem til er ætlast samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Varð því ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og meðferð málsins í héraði frá og með aðalmeðferð þess og leggja fyrir héraðsdómara að taka það til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.