Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. gr. laga nr. 53/2000 — Útvarpslög
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Bjarka, Elíassyni, Guðmundi, Margeirssyni, Guðmundi, Sigurbergssyni og Ólafi Halldóri Garðarssyni (
Friðjón Örn Friðjónsson hrl)
B, GM, GS og Ó voru sakfelldir fyrir brot gegn 32. og 33. gr., sbr. 28. gr. útvarpslaga nr. 53/2000 fyrir að hafa í starfi sínu fyrir félagið K staðið fyrir því að tekið var á móti læstum útsendingum 8 tilgreindra sjónvarpsstöðva, þær opnaðar með myndlyklum, í þeim tilgangi að veita aðilum sem ekki voru áskrifendur að umræddum útsendingum aðgang að þeim, og dreifa gegn endurgjaldi og án heimildar til allt að 1650 aðila í Reykjanesbæ, allt þar til lögreglan stöðvaði útsendingarnar 14. janúar 2004. Voru þeir dæmdir til að greiða 500.000 krónur í sekt en sæta ella fangelsi í 28 daga.