Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 8. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 13. apríl 2000

63/2000

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Friðrik Ingva Jóhannssyni (Valgeir Kristinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Lögreglumaðurinn F var ákærður fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, brot gegn ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 og reglum nr. 101/1988 um neyðarakstur með því að hafa ekið lögreglubifreið neyðarakstri án nægilegrar aðgæslu með þeim afleiðingum að hún skall á bifreið, sem ekið var á grænu ljósi yfir gatnamót, og slasaðist ökumaður þeirrar bifreiðar lífshættulega. Eins og málið lá fyrir þótti ekki útilokað að bilunar hefði gætt í hemlum lögreglubifreiðarinnar þegar atvik gerðust og að F hefði tekist að komast hjá árekstrinum ef þeir hefðu virkað með eðlilegum hætti, en við meðferð málsins fyrir héraðsdómi höfðu fjórir lögreglumenn borið að þeir hefðu orðið varir við bilun í hemlun bifreiðarinnar ýmist fyrir umrætt atvik eða eftir það. Þótti verða skýra þann vafa, sem lék á um orsakir slyssins að þessu leyti, F í hag. Eins og málið lá fyrir þóttu ekki sérstök atvik hafa staðið til þess að nauðsynlegt væri að nota hljóðmerki til að vara aðra vegfarendur við neyðarakstri F. Var hann ekki talin hafa brotið gegn reglum nr. 101/1988 um neyðarakstur. Samkvæmt þessu var staðfest niðurstaða héraðsdóm um að sýkna F af kröfum ákæruvaldsins.