Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1994 — Vegalög

Hæstiréttur birt 24. febrúar 2005

410/2004

Vátryggingafélag Íslands hf og Svanfríður Drífa Óladóttir (Hákon Árnason hrl) gegn Þórhalli Haukssyni (Gísli M. Auðbergsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu V hf. og S vegna tjóns sem hann varð fyrir í árekstri við bifreið S. Í málinu var deilt um hvort S hafi borið að veita Þ forgang sbr. 3. mgr. 25. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 eða hvort Þ hafi borið að víkja fyrir S sem hann hafði á hægri hönd sbr. 4. mgr. 25. gr. laganna. Í ljósi aðstæðna þótti verða að líta svo á að vegur sá er S ók væri heimreið eða svipaður vegur í skilningi 3. mgr. 25. gr. umferðarlaga. Hefði henni því borið að víkja fyrir Þ í umrætt sinn. Sökum þessa og þar sem áreksturinn þótti ekki verða rakinn til orsaka er varðaði Þ var S talin bera alla sök á árekstrinum og V hf. og S því sameiginlega bótaábyrgð á tjóni Þ.