Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um alþjóðleg viðskiptafélög nr. 31/1999
A og B gengu í hjúskap árið 2009 en skildu að borði og sæng árið 2019. Gerðu A og B með sér fjárskiptasamning og laut ágreiningur málsins að ákvæði í samningnum sem fjallaði um búsetu A og sölu á fasteigninni C. Krafðist B þess að A skyldi greiða honum helming söluverðs fasteignarinnar að frádregnum lánum og kostnaði. Byggði krafa B á því að hann hefði gefið eftir kröfu í fjármagn sem kæmi úr sölu eignarinnar C ef A tryggði að búseta barna þeirra yrði á ákveðnu svæði en því hefði A ekki fylgt þegar eignin var seld. Í dómi héraðsdóms var fallist á greiðsluskyldu A um þá fjárhæð sem greindi í aðalkröfu B. Fyrir Landsrétti krafðist A þess aðallega að dómur héraðsdóms yrði ómerktur. Í dómi Landsréttar kom fram að í greinargerð A í héraði hefði meðal annars verð teflt fram þeirri málsástæðu til stuðnings kröfu hennar um lækkun krafna B, að frá hreinni eign eftir uppgreiðslu áhvílandi lána bæri að draga nánar tiltekinn kostnað. Lagði A fram hreyfingaryfirlit yfir þær greiðslur sem hún krafðist að yrðu dregnar frá kröfu B og upplýsingar um samtölu greiðslnanna, sem ekki var mótmælt af B. Þrátt fyrir það vísaði héraðsdómur til þess að A hefði í greinargerð sinni einungis gert áskilnað um að leggja fram nákvæman útreikning á lækkun kröfu B á síðari stigum en það hefði hún ekki gert og hefði ekki gert tölulega grein fyrir lækkunarkröfum sínum á annan hátt. Fjallaði héraðsdómur ekki að öðru leyti um umrædda málsástæðu A. Að mati Landsréttar hefði því ekki í hinum áfrýjaða dómi verið tekin rökstudd afstaða til þessarar málsástæðu A eins og bar að gera samkvæmt f-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Af þeim sökum yrði ekki komist hjá því að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til munnlegs málflutnings og dómsálagningar að nýju.
Stefnda var dæmd til að greiða stefnanda rúmlega átta milljónir krónar, ásamt dráttarvöxtum, á grundvelli sérákvæðis í fjárskiptasamninga er gerður var við skilnað aðila, er kvað á um skiptingu söluandvirðis fasteignar stefndu við nánar tilgreind skilyrði.