Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 35. gr. laga nr. 20/1992 — Barnalög
M og K deildu um forsjá dóttur sinnar. Tekið var fram að þegar barnið fæddist hafi foreldrarnir hvorki verið gift né í sambúð og hafi K því farið ein með lögbundna forsjá stúlkunnar, sbr. 2. mgr. 30. gr. barnalaga nr. 20/1992, en ákvörðun um hvort breyta skuli forsjá sem reist sé á því lagaákvæði ráðist að nokkru leyti af öðrum atriðum en þegar forsjáin eigi sér aðra stoð. Var talið að þótt M hafi að áliti dómkvaddra matsmanna verið betur fær en K til að fara með forsjá barnsins og að hann hafi búið við meiri stöðugleika en K, meðal annars varðandi atvinnu og búsetu, nægi það ekki samkvæmt 3. mgr. 35. gr. laga nr. 20/1992 til að knýja fram breytingu á forsjánni, enda gáfu gögn málsins, þ.m.t. niðurstaða dómkvaddra matsmanna, ekki annað til kynna en að K hafi séð vel um barnið og væri hæf til að búa því nauðsynlegt öryggi.
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.