Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 12. gr. laga nr. 15/1978 — Ættleiðingarlög

Hæstiréttur birt 31. maí 2001

67/2001

K og M (Helgi Birgisson hrl) gegn íslenska ríkinu, X (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Y (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Barnaréttur

M og K voru hinn 18. september 1989 svipt forsjá sona sinna, C sem var 15 mánaða og D sem var 6 ára, og var þeim komið í fóstur hjá X og Y í apríl 1990. Árið 1998 fór eldri drengurinn af heimili fósturforeldranna og flutti til kynforeldra sinna og í kjölfarið sóttu X og Y um leyfi til að ættleiða C, en áður höfðu þau óskað eftir að hann fengi að kenna sig við X í stað K. M og K andmæltu þessum beiðnum, en að fengnum meðmælum barnaverndarnefnda G og R gaf dóms- og kirkjumálaráðuneytið út ættleiðingarleyfi til X og Y. M og K kröfðust ógildingar ættleiðingarleyfisins og heimildarinnar til að kenna C við X. Töldu þau leyfið ekki vera í samræmi við þágildandi ættleiðingarlög. Hæstiréttur féllst ekki á það með M og K að veiting ættleiðingarleyfisins hefði verið í andstöðu við lög og hafnaði kröfum þeirra með þeirri athugasemd að allir, sem að málinu hefðu komið væru á einu máli um það að ættleiðing fósturforeldra á drengnum væri honum til gagns og þjónaði best hagsmunum hans meðal annars vegna þeirra sérstöku aðstæðna, sem skapast höfðu vegna heilsufars hans.