Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Skuldabréf.
Deilt var um hvort réttilega hefði verið staðið að útreikningi hverrar innheimtrar greiðslu hvað varðar verðtryggingarþátt skuldabréfs sem A hafði undirritað. Nánar taldi A að ekki hefði verið gætt réttra aðferða við útreikning verðbóta á láninu og vísaði hún í því sambandi til 2. mgr. 4. gr. reglna Seðlabanka Íslands um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár nr. 492/2001. Við yfirferð útreikninga A taldi dómurinn sýnt að þeir væru byggðir á túlkun sem fengi ekki staðist og færi bæði gegn tilgangi laga nr. 38/2001 og almennum rökum fyrir því að tryggja kaupmátt lánsfjár eða sparnaðar. Var því ekki fallist á það með A að brotið hefði verið á henni með skilmálum lánsins sem um ræddi. Var Í sýknað af öllum kröfum A í málinu.