Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Samlagsfélag
Ákæruvaldið (
Einar Tryggvason saksóknari)
gegn
Daníel Sigurðssyni (
Sævar Þór Jónsson lögmaður)
D voru gefin að sök meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldslögum sem framkvæmdastjóra, stjórnarmanni og prókúruhafa samlagsfélagsins G og í sjálfstæðri starfsemi. Í héraðsdómi var D sakfelldur samkvæmt ákæru og honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði skilorðsbundið í tvö ár. Þá var D jafnframt gert að greiða sekt að fjárhæð 21.200.000 krónur í ríkissjóð en sæta ella fangelsi í 300 daga. Með vísan til forsendna héraðsdóms hafnaði Landsréttur þeirri málsvörn D að ábyrgð á bókhaldi, gerð og skil skattframtala og uppgjör virðisaukaskatts hefði hvílt á öðrum en honum sjálfum fyrir hans hönd og G. Þá féllst Landsréttur ekki á með D að ákæra málsins væri óskýr heldur væru sakargiftir í ákæru í heild sinni nægilega skýrar þannig að honum hefði ekki verið torvelt að taka afstöðu til þeirra og halda uppi vörnum. Landsréttur taldi þó að D hefði komið sér hjá greiðslu skatta sem næmi 18.000 króna lægri fjárhæð en samkvæmt héraðsdómi. Að því virtu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða um sakfellingu D fyrir þá háttsemi sem í ákæru greindi. Þá var ákvörðun héraðsdóms um refsingu D staðfest.
Héraðssaksóknari (
Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Sigurðssyni (
Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum með því að hafa skilað efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum í sjálfstæðum rekstri og í nafni samlagsfélags, fyrir að rangfæra bókhald félagsins og standa skil á efnislega röngum skattframtölum sínum, sem og með því að hafa eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum í persónulegum rekstri.