Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Meginreglur stjórnsýsluréttar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. september 2025

E-2471/2024

S8 ehf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórður Guðmundsson lögmaður)

Að heimvísaðri áður frávísaðri aðalkröfu stefnanda um ógildingu samkomulags aðila vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og breyttrar nýtingar á byggingarlóð í Reykjavík, var stefndi sýknaður af kröfunni. Ekki var fallist á að skilyrði 36. gr. laga nr. 7/1936 væru uppfyllt né að samkomulagið bryti í bága við meginreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þ.e. efnislega réttmætisreglu, jafnræðisreglu og meðalhóf.Hið stefnda sveitarfélag var sýknað af kröfum lóðarhafa um ógildingu samkomulags aðila um breytt afnot úthlutaðrar lóðar. Tilefni samkomulagsins var að lóðarhafi óskaði eftir að afnotum lóðar yrði breytt þannig að heimilað yrði að reisa þar íbúðarhúsnæði í stað atvinnuhúsnæðis áður. Féllst hið stefnda sveitarfélag á breyttu afnotin gegn endurgjaldi, þ.m.t. greiðslu byggingarréttargjalds, hlutdeildar lóðarhafa í listskreytingu, kvaðabindingu þar sem 20% íbúða skyldu vera leiguíbúðir með nánar tilgreindum hætti og 5% íbúða skyldu þar af seldar Félagsbústöðum hf. á fyrirfram ákveðnum fermetraverði. Talið var að í samkomulaginu hefði falist ráðstöfun einkaréttarlegra réttinda sem í lóðinni fólst. Ákvæði samkomulagsins voru ekki taldin ógildanleg á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 né heldur að þau hefðu brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar. Þá var ekki fallist á að sveitarfélaginu bæri skylda til endurgreiðslu hluta gatnagerðargjalda. Gatnagerðargjöldin hefðu við úthlutun lóðarinnar ekki verið ofgreidd og engin heimild að lögum væri til endurgreiðslunnar.