Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Hæfi matsmanna

Landsréttur birt 21. júní 2019

357/2019

Glitnir HoldCo ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Jónas A. Aðalsteinsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem staðfest var hæfi tveggja dómkvaddra matsmanna í máli sóknaraðila gegn varnaraðila. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þar sem matsstörfum umræddra matsmanna væri lokið og matsgerð þeirra hefði verið lögð fram í dómsmáli aðila ættu ákvæði 6. mgr. 61. gr. og 1. mgr. 66. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki lengur við heldur legði dómari mat á sönnunargildi matsgerðarinnar eins og annarra sönnunargagna í efnisdómi í málinu. Taldi rétturinn því ekki efni til þess að héraðsdómari tæki ágreining aðila um hæfi matsmanna til úrskurðar og tæki á þessu stigi málsins afstöðu til hæfis þeirra með úrskurði. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.