Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Álag á málskostnað
Deilt um eignarétt að fellihýsi eftir sambandsslit. Stefnandi keypti fellihýsi er samband aðila var nýhafið, en í samráði við stefndu var það skráð á nafn æskuvinkonu hennar á meðan skilnaður stefnanda við eiginkonu sína væri ófrágenginn. Sambandi aðila lauk 10 mánuðum síðar. Í framhaldi sambandsslitanna fékk stefnda vinkonu sína til að skrá fellihýsið á sitt nafn, án samráðst við stefnanda, og kvaðst líta svo á að hún ætti réttmætt tilkall til þess. Dómurinn féllst ekki á sjónarmið stefndu og viðurkenndi eignarétt stefnanda að fellihýsinu.
Frávísun. Stefnandi krafði stefndu um greiðslu skaðbóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir á færsluhirðingarmarkaði debetkorta. Málinu var vísað frá dómi vegna margvíslegra ágalla á málatilbúnaði stefnanda. Taldi dómurinn kröfugerð stefnanda óskýra, í stefnu væri ekki gerð grein fyrir því á hvaða grundvelli hinir stefndu bankar gætu borið ábyrgð á tjóni sem rekja mætti til atvika sem áttu sér stað fyrir stofnun þeirra o.fl. Þá taldi dómurinn málatilbúnað og kröfugerð stefnanda í heild sinni í andstöðu við meginreglur einkamálaréttarfars um skýran og glöggan málatilbúnað og meginreglunni um munnlegan málflutning. Við ákvörðun málskostnaðar var höfð hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr., sbr. 2. mgr. 131. gr.laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.