Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ákæruvald lögreglustjóra
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari)
gegn
X (
Logi Guðbrandsson hrl)
Málinu var vísað frá héraðsdómi, þar sem lögreglustjóra brast heimild að lögum til að gefa út ákæru í því. Ákærði hefur viðurkennt að hafa kastað matardiski í áttina að brotaþola með þeim afleiðingum að hún hlaut skurð á höfði og vísifingri vinstri handar eins og nánar er lýst í ákæru. Ákærði neitar því hins vegar að ásetningur hans hafi staðið til þess að valda brotaþola tjóni eða stofna heilsu hennar í augljósan háska. Vitnið, C, segist halda að diskurinn hafi fyrst lent á veggnum og síðan kastast í brotaþola. Vitnið, A, brotaþoli í máli þessu, kveðst hins vegar ekki gera sér grein fyrir hvort diskurinn lenti á veggnum eða beint á henni sjálfri. Þá ber vitnið, B, að af ummerkjum að dæma hafi verið greinilegt að diskurinn lenti í um 1,5 m hæð á veggnum til hliðar við borðið þar sem brotaþoli sat ásamt fleira fólki. Með vísan til framangreinds er ósannað að diskurinn hafi lent á höfði brotaþola og síðan í vegg eins og í ákæru greinir. Verður því að miða við að diskurinn hafi fyrst hafnað á veggnum og að brot úr honum hafi kastast í brotaþola með þeim afleiðingum, sem greinir í ákæru. Ekki verður talið að vörn hafi verið áfátt vegna þess að verknaðarlýsing var ekki rétt að þessu leyti í ákæru, enda tjáðu ákærandi og verjandi sig um þetta sakaratriði í munnlegum málflutningi. Ákærði kveðst hafa verið undir miklum áhrifum áfengis í umrætt sinn og að verknaðurinn hafi verið unninn í fullkomnu rænuleysi Á það ber að líta að ákærði kom sér sjálfur í þetta ástand og athafnir hans í umrætt sinn sýna að hann var ekki fullkomlega rænulaus á verknaðarstund. Verður því ekki talið að um hafi verið að ræða slíkt rænuleysi, sem 17. gr. almennra hegningarlaga kveður á um. Er sýknukröfu ákærða á þeim grundvelli því hafnað. Með hliðsjón af því að tilviljun ein virðist hafa ráðið því hvar umrædd skál lenti og að öðru leyti með vísan til framburðar ákærða og vitna hér fyrir dómi þykir ekki í ljós leitt að ásetningur ákærða hafi staðið til þess að valda brotaþola tjóni. Verður brot hans því ekki talið varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Á árinu 1997 var ákærði dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti í tvö ár vegna ölvunaraksturs. Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði hefur játað brot sitt greiðlega. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Eftir atvikum þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna og ákveða að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.