Landsréttur
Úrskurður þriðjudaginn 21. apríl 2026.
Mál nr. 234/2026:
A
(sjálfur)
gegn
barnaverndarþjónustu Garðabæjar
(Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Vistun barns. Kærufrestur. Frávísunarúrskurður héraðsdóms felldur úr gildi.
Útdráttur
Með hinum kærða úrskurði var máli sóknaraðila, er laut að kæru á úrskurði umdæmisráðs í B 3. febrúar 2026 um vistun sonar A utan heimilis A, vísað frá dómi á þeim grunni að fjögurra vikna frestur til að bera fyrrnefndan úrskurð umdæmisráðs undir héraðsdóm hefði verið liðinn. Í úrskurði Landsréttar var rakið að A, sem væri ólöglærður, hefði sent héraðsdómi Reykjaness bréf 20. febrúar 2026 sem bar yfirskriftina „Umsókn um stjórnsýslukæru og stjórnsýsluúrlausn vegna ákvörðunar barnaverndarnefndar ([…]/2026). Afgreiðsla dómsins hefði svarað erindi A 4. mars 2026 á þann veg að erindi sóknaraðila ætti ekki undir dóminn. A hefði brugðist við þann sama dag með því að senda dóminum tvö skjöl og bar annað skjalið heitið „Kæra á hendur úrskurði umdæmisráðs barnaverndar ([…]/2026 skv. 51. gr. barnaverndarlaga). Í úrskurði Landsréttar kom fram að í erindi A til héraðsdóms í febrúar 2026 hefðu ýmsar athugasemdir verið gerðar við úrskurð umdæmisráðs jafnframt því sem gerð hefði verið krafa um að ákvörðun í máli nr. […]/2026 yrði ógilt. Taldi Landsréttur að ekki gæti farið á milli mála að með fyrrnefndu erindi A til dómsins hefði hann leitast við að bera úrskurð umdæmisráðs undir dóminn í því skyni að fá ógilta ákvörðun ráðsins. Við þær aðstæður sem uppi hefðu verið væri óhjákvæmilegt að líta svo á að héraðsdómi hefði borið að taka beiðni A til efnislegrar meðferðar, eftir atvikum að undangengnum leiðbeiningum um formhlið máls, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Það hefði dómurinn ekki gert, yrði því ekki hjá því komist að fella hinn kærða úrskurð úr gildi og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Ásgerður Ragnarsdóttir, Jón Höskuldsson og Þorgeir Ingi Njálsson kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Sóknaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 23. mars 2026. Greinargerð varnaraðila barst réttinum 7. apríl sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. mars 2026 í máli nr. U-[…]/2026 þar sem málinu var vísað frá dómi. Kæruheimild er í 1. mgr. 64. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
- Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og málinu vísað heim í hérað til efnislegrar meðferðar.
- Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Niðurstaða
- Með hinum kærða úrskurði var máli sóknaraðila vísað frá dómi á þeim grunni að samkvæmt fortakslausu ákvæði 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga hafi verið liðinn fjögurra vikna frestur til að bera úrskurð umdæmisráðs barnaverndar í B 3. febrúar 2026 í máli nr. […]/2026 undir héraðsdóm. Væri því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá dómi. Var við það miðað að kæra sóknaraðila hefði verið móttekin í héraðsdómi 5. mars 2026 klukkan 00.00.
- Með fyrrnefndum úrskurði umdæmisráðs barnaverndar í B var ákveðið að sonur sóknaraðila skyldi vistaður utan heimilis sóknaraðila og yrði um kyrrt hjá móður sinni í fjóra mánuði. Sóknaraðili er ólöglærður. Með bréfi hans til héraðsdóms Reykjaness 20. febrúar 2026, sem ber yfirskriftina: „Umsókn um stjórnsýslukæru og stjórnsýsluúrlausn vegna ákvörðunar barnaverndarnefndar ([…]/2026)“, voru gerðar athugasemdir við ákvörðun nefndarinnar í níu tölusettum liðum. Með vísan til þeirra var óskað eftir því „að dómurinn staðfesti ógildi og óframkvæmanleika ákvörðunar barnaverndarnefndar ([…]/2026) og veiti leiðbeiningar um tafarlausa leiðréttingu málsins.“ Óskaði sóknaraðili sérstaklega eftir tafarlausri meðferð málsins vegna brýnna hagsmuna barnsins. Tilgreint er að bréfinu fylgi úrskurður barnaverndarnefndar, yfirlit yfir bréfaskipti, skýrslur sérfræðinga og skýrslur um ástand barnsins.
- Afgreiðsla Héraðsdóms Reykjaness svaraði þessu erindi sóknaraðila 4. mars 2026 á þann veg að málið væri „dómstólnum óviðkomandi þar sem dómstóllinn er ekki stjórnvald og því ekki hægt að beina stjórnsýslukæru til dómstólsins.“ Af gögnum málsins má ráða að sóknaraðili hafi brugðist við þessu með því að senda dóminum tvö skjöl 4. mars 2026 klukkan 23.59.59 sem móttekin voru af dóminum 5. mars klukkan 00.00 eins og tekið er fram í hinum kærða úrskurði. Þar er heiti annars skjalsins tilgreint: „Kæra á hendur úrskurði umdæmisráðs barnaverndar ([…]/2026 skv. 51. gr. barnaverndarlaga.“
- Þegar héraðsdómur svaraði fyrri beiðni sóknaraðila og staðfesti móttöku á erindi hans, sem sagt er dagsett 13. febrúar 2026, var liðinn sá frestur sem tilgreindur er í 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga til að bera úrskurð umdæmisráðs undir héraðsdóm.
- Með áðurnefndu erindi sóknaraðila til héraðsdóms í febrúar voru gerðar ýmsar athugasemdir við úrskurð umdæmisráðs jafnframt því sem gerð var krafa um að ákvörðun í máli nr. […]/2026 yrði ógilt. Ekki gat farið á milli mála að með erindi sínu til héraðsdóms í febrúar 2026 hafi sóknaraðili leitast við að bera úrskurð umdæmisráðs undir dóminn í því skyni að fá ógilta ákvörðun ráðsins. Þegar dómurinn móttók erindi sóknaraðila, hvort sem var 13. eða 20. febrúar 2026, var ekki liðinn frestur samkvæmt 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga.
- Við þær aðstæður sem að framan er lýst er óhjákvæmilegt að líta svo á að héraðsdómi hafi borið að taka beiðni sóknaraðila til efnislegrar meðferðar, eftir atvikum að undangengnum leiðbeiningum um formhlið máls, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Það gerði dómurinn ekki og verður ekki hjá því komist að fella hinn kærða úrskurð úr gildi og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 16. mars 2026
Hinn 5. mars 2026 klukkan 00:00 var móttekinn í Héraðsdómi Reykjaness tölvupóstur sóknaraðila. Ekki var texti í tölvupóstinum en meðfylgjandi voru tvö viðhengi. Annað var skjal með yfirskriftinni: „Kæra á hendur úrskurði umdæmisráðs barnaverndar ([…]/2026) skv. 51. gr. barnaverndarlaga.“ Í hinu viðhenginu voru fylgiskjöl. Sóknaraðili mætti í afgreiðslu dómsins 5. mars 2026 og afhenti kæru ásamt fylgiskjölum. Einnig var móttekin „beiðni um bráðabirgðaúrskurð skv. 4. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu“.
Samkvæmt 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2008 er foreldrum eða barni sem náð hefur 15 ára aldri heimilt að bera úrskurð umdæmisráðs barnaverndar undir héraðsdómara. Krafa þess efnis skal berast dómara innan fjögurra vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp. Þetta var sérstaklega tekið fram í úrskurðarorði umdæmisráðs frá 3. febrúar 2026 í máli nr. […]/2026.
Héraðsdómur hefur ekki heimild samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 til að kveða upp bráðabirgðaúrskurð meðan mál er til meðferðar fyrir dómi. Tilvitnuð ákvæði í beiðni sóknaraðila fela ekki í sér slíka heimild.
Úrskurður umdæmisráðs var kveðinn upp í málinu 3. febrúar 2026. Eins og áður segir barst tölvupóstur sóknaraðila Héraðsdómi Reykjaness 5. mars 2026 klukkan 00:00. Þá var kæran ásamt fylgigögnum móttekin í afgreiðslu dómsins 5. mars 2026. Samkvæmt þessu og fortakslausu ákvæði 2. mgr. 27. gr. barnaverndarlaga var liðinn frestur til að bera úrskurð umdæmisráðs undir héraðsdóm. Er því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá dómi.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Máli þessu er vísað frá dómi.