Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 893/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Jóhannes Sigurðsson, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Kristbjörg Stephensen kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 18. desember 2025 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. desember 2025 í málinu nr. R-[…]/2025 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. janúar 2026 klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
  2. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
  3. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Niðurstaða

  1. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Úrskurðarorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. desember 2025

Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 17. desember 2025.

Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Varnaraðili er X, kt. […].

Dómkröfur

Þess er krafist að X, kt. […], sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, til þriðjudagsins 13. janúar 2026, kl. 16:00.

Málsatvik

Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar manndráp en þann 30. nóvember sl. barst tilkynning til lögreglu um meðvitundarleysi við […]. Fram kom að tilkynnandi, A, kt. […] sæi bróður sinn, brotaþola málsins, B, kt. […], liggjandi hreyfingarlausan inn í íbúðinni.

Þegar lögregla kom á vettvang lá brotaþoli á bakinu undir eldhúsborði á gólfinu á milli svefnherbergishurðar og baðherbergishurðar íbúðarinnar. Brotaþoli var með einn stunguáverka á hálsi og tvo kvið, annar fyrir miðri bringu og hinn neðarlega á maga. Brotaþoli var ber að ofan og var efri hluti líkamans og höfuð útatað í blóði.

Tekin var skýrsla af C, kt. […] kærustu brotaþola í þágu rannsóknar málsins. Hún greindi frá því að hún og brotaþoli hafi verið búin að hittast frá því í ágúst sl. en hún slitið sambandinu endanlega fyrir skömmu. C kvaðst hafa sent brotaþola skilaboð laugardaginn 29. nóvember sl. á Whatsapp og spurt hvort það væri í lagi með hann, sem hann hafi ekki lesið. Hún hafi svo farið að athuga með brotaþola þegar hann svaraði engu og séð inn fyrir að hann lægi á gólfinu. Hún hafi farið út í bíl og hringt í A og þær hafi auk nágranna brotið rúðu á hurð íbúðarinnar og í kjölfarið séð brotaþola liggjandi á gólfinu. Aðspurð kvaðst hún ekki hafa veitt því eftirtekt hvort að fótspor hafi verið í snjónum við íbúðina.

Í þágu rannsóknar málsins var lagt hald á spjaldtölvu og tvo farsíma í eigu brotaþola. Þá var lagt hald á tvo hnífa sem lögregla fann við leit í íbúðinni. Með úrskurði héraðsdóms Reykjaness í máli R-[…]/2025 fékk lögregla heimild til að afla símagagna úr farsíma brotaþola og liggur fyrir samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að brotaþoli og varnaraðili áttu í samskiptum í aðdraganda andláts brotaþola.

Þann 3. desember sl. var tekin skýrsla af varnaraðila. Hann kvaðst hafa farið heim til brotaþola föstudaginn 28. nóvember sl. og verið þar í einn til tvo klukkutíma. Hann kvað þá hafa tekið inn kókaín og spilað fjárhættuspil. Aðspurður kvað hann ástand brotaþola ekki hafa verið gott, en hann greindi frá því að brotaþoli reykti kókaín og hefði sofið illa. Þá kvaðst hann ekki hafa séð áverka á brotaþola, auk þess sem hann neitaði fyrir að hafa veitt honum áverka. Þann 9. desember sl. var tekin skýrsla af varnaraðila. Hann kvaðst m.a. hafa farið í […] og keypt sígarettur áður en hann hafi farið til brotaþola. Varnaraðili kvaðst hafa farið heim til sín eftir að hafa verið hjá brotaþola, en síðan farið aftur út og þá hafi hann farið í sund í […]. Tekin var skýrsla af honum þann 10. desember sl. Aðspurður út í þá skó sem hann var í á upptöku, kvaðst hann ekki vita hvar þeir væru en konan hans gæti hafa hent þeim í ruslið. Þá var borið undir varnaraðila að hann hafi ekki sést fara í sund í […] að þá kvaðst hann eingöngu hafa setið út bifreið sinni fyrir utan og spilað póker.

Í kjölfar skýrslutöku af varnaraðila var framkvæmd réttarlæknisskoðun á honum. Við skoðunina mátti sjá skurðáverka á höndum hans. Varnaraðili greindi frá því að […] ára barnið hans hafi verið að meðhöndla hníf tveimur vikum áður og hann hafi verið klóraður af ketti.

Tekin var skýrsla af eiginkonu varnaraðili í þágu rannsóknar málsins. Hún kvað varnaraðila hafa farið út af heimili þeirra föstudaginn 28. nóvember sl. til að kaupa sígarettur. Hún hafi farið að sofa en heyrt þegar varnaraðili hafi komið heim og farið í sturtu.

Varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun þann 4. desember sl. á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 með úrskurði héraðsdóms Reykjaness í máli R-[…]/2025. Með ákvörðun fulltrúa lögreglustjóra þann 9. desember sl. var gæsluvarðhaldi og einangrun aflétt. Varnaraðila var síðan gert að sæta gæsluvarðhaldi þann 10. desember sl. á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 með úrskurði héraðsdóms Reykjaness í máli R-[…], sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar í máli 872/2025.

Lagarök

Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig:

Rannsókn lögreglu miðar vel áfram en er á afar viðkvæmu stigi. Í ljósi alls framangreinds telur lögregla varnaraðila vera undir rökstuddum grun um að hafa veist með ofbeldi að brotaþola, með þeim afleiðingum að hann lést. Er háttsemi varnaraðila talin varða við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað getur allt að ævilöngu fangelsi. Það liggur fyrir að varnaraðili var á vettvangi brots þann 28. nóvember sl. en hann greindi frá því í skýrslutöku að hann hafi farið heim til brotaþola og þeir neytt saman fíkniefna og spilað fjárhættuspil. Þá liggur fyrir að engin virkni var á farsíma brotaþola eftir 28. nóvember sl., eftir að brotaþoli og varnaraðili hittust. Varnaraðili var jafnframt með skurðáverka á höndum og er innbyrðis misræmi í framburði hans og kærustu hans á því hvernig áverkarnir voru tilkomnir.

Þá liggur fyrir niðurstaða DNA greiningar vegna þeirra sýna sem fundust á haldlögðum hnífum á vettvangi. Frumrannsókn staðfesti að blóð var til staðar á sýnum af hnífsblaði og skefti. Niðurstöður þeirrar greiningar leiddu í ljós að DNA varnaraðila og brotaþola var að finna á hnífsblaði haldlagðs hnífs sem og skefti þess. Vísast nánar til meðfylgjandi skýrslu tæknideildar.

Einnig fundust á vettvangi skóför, þar sem greina má blóð. Lögregla vinnur nú að rannsókn með tilliti til samanburðar á þeim skóm sem lögregla lagði hald á við húsleit á heimili varnaraðila. Jafnframt liggur fyrir myndbandsupptaka af varnaraðila í aðdraganda þess að hann hitti brotaþola og má sjá að þeir skór sem hann var í fundust ekki við húsleit, en varnaraðili hefur að mati lögreglu gefið ótrúverðugar skýringar á hvað varð um þá.

Mikilvægt er fyrir rannsókn málsins að varnaraðila gefist ekki ráðrúm til að spilla rannsóknarhagsmunum svo sem með því að setja sig í samband við vitni, afmá merki eftir brot eða skjóta undan munum með tilheyrandi hættu á réttarspjöllum. Nauðsynlegum rannsóknaraðgerðum er ekki lokið, s.s. umfangsmikil vettvangsrannsókn, skýrslutökur af vitnum, yfirferð símagagna og fjarskiptagagna í því skyni að rekja ferðir varnaraðila, krufning, tæknilegar rannsóknir á munum og sýnum, svo sem samanburðarrannsókn á skóm varnaraðila. Þá þarf að taka ítarlega skýrslu af varnaraðila og bera gögn og muni undir hann áður en hann hefur færi á að ræða við vitni eða aðra sem að málinu kunna að koma. Að mati lögreglu eru brýnir rannsóknarhagsmunir fyrir hendi og ljóst að varnaraðili er í þeirri stöðu að hann gæti torveldað rannsókn málsins fengi hann að ganga laus.

Mikilvægt er að lögreglu verði gert kleift að ná utan um málið enda beinist rannsóknin að sérlega alvarlegu broti og ljóst að miklir hagsmunir eru í húfi. Í ljósi framangreinds er því afar mikilvægt að krafa lögreglu verði tekin til greina. Það er mat lögreglustjóra að uppfyllt séu ákvæði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Með vísan til framangreinds og framlagðra gagna krefst lögreglustjóri þess að framangreind krafa verði tekin til greina eins og hún er fram sett. Varnaraðili er undir rökstuddum grun um hafa gerst brotlegur við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er það skilyrði þess að sakborningur verði úrskurðaður í gæsluvarðhald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við. Brotaþoli fannst látinn með stunguáverka á heimili sínu þann 30. nóvember sl. og er málið rannsakað sem meint brot gegn 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt því sem fram kemur í greinargerð lögreglu, sem gögn málsins staðfesta, var varnaraðili ásamt brotaþola á heimili hans þann 28. nóvember sl. Rannsókn á síma brotaþola sýndi enga virkni eftir að varnaraðili fór af heimili hans auk þess sem varnaraðili reyndist vera með skurðáverka á hendi. Fyrir liggur niðurstaða DNA greiningar á blóðsýnum sem fundust á haldlögðum hníf á vettvangi, sem leiðir í ljós að DNA varnaraðila og brotaþola var að finna á hnífsblaði haldlagðs hnífs auk þess sem DNA varnaraðila fannst á skefti hnífsins. Með vísan til framangreinds þykir ljóst að varnaraðili er undir rökstuddum grun um háttsemi sem varðar fangelsisrefsingu.

Rannsókn málsins miðar vel áfram en er á viðkvæmu stigi. Nauðsynlegum rannsóknaraðgerðum er ekki lokið svo sem skýrslutökur af vitnum, frekari yfirferð síma- og fjarskiptagagna í því skyni að rekja ferðir varnaraðila, krufning, tæknileg rannsókn sýna og muna, þar á meðal að finna og gera samanburðarrannsókn á skóm varnaraðila en rannsóknargögn sýna varnaraðila í skóm, sem ekki fundust við húsleit og varnaraðili kveðst hafa hent, stuttu áður en hann hitti brotaþola en á vettvangi fundust ummerki um að skór hafi stigið í blóð. Samkvæmt rannsókn virðast skór sem fundust á vettvangi, ekki vera í samræmi við skófarið. Á þessu stigi verður fallist á með lögreglustjóra að ætla megi að varnaraðili muni, gangi hann laus, getað torveldað rannsókn málsins svo sem með því að hafa áhrif á vitni, skjóta undan munum eða afmá merki um mögulegt brot. Eru skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 því uppfyllt. Þykja ekki rök til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.

Að þessu virtu og með vísan til annars þess sem að framan er rakið í beiðni lögreglustjóra þykir fullnægt skilyrðum þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurðarorð

Varnaraðili, X, kt. […], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til þriðjudagsins 13. janúar 2026, kl. 16:00.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 211. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 95. gr.1. mgr. 99. gr.1. mgr. 192. gr.