Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 872/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Einangrun.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á því stendur.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Jóhannes Sigurðsson, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Kristbjörg Stephensen kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 10. desember 2025 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. desember 2025 í málinu nr. R-[...]/2025 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. desember 2025 klukkan 16 og einangrun meðan á því stæði. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
  2. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
  3. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess að einangrun verði aflétt.

Niðurstaða

  1. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Úrskurðarorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. desember 2025

Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 10. desember 2025.

Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Varnaraðili er X, kt. [...].

Dómkröfur

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krefst þess að X, kt. [...], sæti gæzluvarðhaldi og einangrun til miðvikudagsins 17. desember 2025, kl. 16:00. Varnaraðili krefst þess að kröfunni verði hafnað en til vara að henni verði markaður skemmri tími og einangrun hafnað.

Málsatvik

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kveðst hafa til rannsóknar manndráp en hinn 30. nóvember sl. hafi lögreglu verið tilkynnt um meðvitundarlausan mann við [...] í Kópavogi. Fram hafi komið að tilkynnandi, A, kt. [...] sæi bróður sinn, B, kt. [...], liggjandi hreyfingarlausan inn í íbúðinni.

Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi brotaþoli legið á baki undir eldhúsborði á gólfi milli svefnherbergishurðar og baðherbergishurðar íbúðarinnar. Brotaþoli hafi verið með einn stunguáverka á hálsi og tvo á kviði, annan fyrir miðri bringu og hinn neðarlega á maga. Brotaþoli hafi verið ber að ofan og efri hluti líkamans og höfuð útötuð í blóði.

Tekin hafi verið skýrsla af C, kt. [...] í þágu rannsóknar málsins. Hún hafi greint frá því að hún og brotaþoli hafi verið búin að hittast frá því í ágúst sl. en hún hafi slitið sambandinu endanlega í síðustu viku. C hafi sagt að hún hafi sent brotaþola skilaboð á laugardag á Whatsapp og spurt hvort það væri í lagi með hann, sem hann hafi ekki lesið. Hún hafi svo farið að athuga með brotaþola þegar hann hafi ekki svarað og hún hafi séð inn fyrir að hann lægi á gólfinu. Hún hafi farið út í bíl og hringt í A og þær hafi auk nágranna brotið rúðu á hurð íbúðarinnar og í kjölfarið séð brotaþola liggjandi á gólfinu. Aðspurð hafi hún sagt að hún hafi ekki tekið eftir hvort fótspor hafi verið í snjónum við íbúðina.

Í þágu rannsóknar málsins hafi verið lagt hald á spjaldtölvu og tvo farsíma í eigu brotaþola. Þá hafi verið lagt hald á tvo hnífa sem lögregla hafi fundið við leit í íbúðinni. Með úrskurði héraðsdóms hafi lögregla fengið heimild til að afla símagagna úr farsíma brotaþola og liggi fyrir samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að brotaþoli og varnaraðili hafi átt í samskiptum í aðdraganda andláts brotaþola.

Hinn 3. desember sl. hafi verið tekin skýrsla af varnaraðila. Hann hafi sagt að hann hafi farið heim til brotaþola föstudaginn 28. nóvember sl. og verið þar í einn til tvo klukkutíma. Þeir hafi tekið inn kókaín og spilað fjárhættuspil. Ástand brotaþola hafi ekki verið gott, en hann hafi reykt kókaín og sofið illa. Þá hafi varnaraðili sagt að hann hafi ekki séð áverka á brotaþola, auk þess sem hann hafi neitað að hafa veitt honum áverka. Hinn 9. desember sl. hafi verið tekin skýrsla af varnaraðila. Hann hafi sagt að hann hafi farið og keypt sígarettur áður en hann hafi farið til brotaþola. Þá hafi hann farið aftur heim, en síðan út aftur og þá hafi hann farið í sund í [...]. Tekin hafi verið skýrsla af honum 10. desember. Spurður út þá skó sem hann hafi verið í á upptöku, hafi hann sagt að hann vissi ekki hvar þeir væru en kona hans gæti hafa hent þeim í ruslið. Þá hafi verið borið undir hann að hann hafi ekki sést fara í sund í [...] og þá hafi hann sagt að hann hafi eingöngu setið út bifreið sinni fyrir utan.

Í kjölfar skýrslutöku af varnaraðila hafi verið framkvæmd réttarlæknisskoðun á honum. Við skoðun hafi mátt sjá skurðáverka á höndum hans. Varnaraðili hafi greint frá því að tveggja ára barn hans hafi verið að meðhöndla hníf tveimur vikum áður og hann verið klóraður af ketti.

Tekin hafi verið skýrsla af eiginkonu varnaraðila í þágu rannsóknar málsins. Hún hafi sagt varnaraðila hafa farið út af heimili þeirra föstudaginn 28. nóvember sl. til að kaupa sígarettur. Hún hafi farið að sofa en heyrt þegar varnaraðili hafi komið heim og farið í sturtu.

Lagarök

Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: "Rannsókn lögreglu er á afar viðkvæmu stigi en í ljósi alls framangreinds telur lögregla varnaraðila vera undir rökstuddum grun um að hafa veist með ofbeldi að brotaþola, með þeim afleiðingum að hann lést. Er háttsemi varnaraðila talin varða við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem varðað getur allt að ævilöngu fangelsi. Það liggur fyrir að varnaraðili var á vettvangi brots þann 28. nóvember sl. en hann greindi frá því í skýrslutöku að hann hafi farið heim til brotaþola og þeir neytt saman fíkniefna og spilað fjárhættuspil. Þá liggur fyrir að engin virkni var á farsíma brotaþola eftir 28. nóvember sl., eftir að brotaþoli og varnaraðili hittust. Varnaraðili var jafnframt með skurðáverka á höndum og er innbyrðis misræmi í framburði hans og kærustu hans á því hvernig áverkarnir voru tilkomnir. Í dag bárust bráðabirgðaniðurstöður frá rannsóknarstofu er varðar rannsókn á haldlögðum hnífum. Í ljós kom að greining á einu sýni sem varðveitt var af hnífsblaði er frá óþekktum karlmanni. Einnig fannst á vettvangi skófar, þar sem greina má blóð. Lögregla fór í húsleit á heimili varnaraðila og lagði hald á skóbúnað og fatnað. Jafnframt liggur fyrir myndbandsupptaka af varnaraðila í aðdraganda þess að hann hitti brotaþola og má sjá að þeir skór sem hann var í fundust ekki við húsleit.

Mikilvægt er fyrir rannsókn málsins að varnaraðila gefist ekki ráðrúm til að spilla rannsóknarhagsmunum svo sem með því að setja sig í samband við vitni, afmá merki eftir brot eða skjóta undan munum með tilheyrandi hættu á réttarspjöllum. Nauðsynlegum rannsóknaraðgerðum er ekki lokið, s.s. umfangsmikil vettvangsrannsókn, skýrslutökur af vitnum, yfirferð símagagna og fjarskiptagagna í því skyni að rekja ferðir varnaraðila, krufning, tæknilegar rannsóknir á munum og sýnum, svo sem DNA rannsókn á haldlögðum hnífum sem fundust á vettvangi. Þá þarf að taka ítarlega skýrslu af varnaraðila og bera gögn og muni undir hann áður en hann hefur færi á að ræða við vitni eða aðra sem að málinu kunna að koma. Að mati lögreglu eru brýnir rannsóknarhagsmunir fyrir hendi og ljóst að varnaraðili er í þeirri stöðu að hann gæti torveldað rannsókn málsins fengi hann að ganga laus. Mikilvægt er að lögreglu verði gert kleift að ná utan um málið enda beinist rannsóknin að sérlega alvarlegu broti og ljóst að miklir hagsmunir eru í húfi. Í ljósi framangreinds er því afar mikilvægt að krafa lögreglu verði tekin til greina. Það er mat lögreglustjóra að uppfyllt séu ákvæði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Þá er jafnframt gerð krafa um einangrun en það er mat lögreglu að rannsóknarhagsmunir verði ekki tryggðir með vægari hætti en einangrun. Með vísan til framangreinds og framlagðra gagna krefst lögreglustjóri þess að framangreind krafa verði tekin til greina eins og hún er fram sett. Varnaraðili er undir rökstuddum grun um hafa gerst brotlegur við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og. b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008."

Af hálfu varnaraðila er byggt á því að lagaskilyrði fyrir kröfunni séu ekki uppfyllt, hvorki almenn skilyrði 95. gr. laga nr. 88/2008 né skilyrði a liðar 1. mgr. hennar. Fyrir tæplega sólarhring hafi varnaraðili verið látinn laus og því ætti við úrlausn málsins nú að fjalla um hvort einhverjar þær breytingar hefðu orðið síðan sem breytt gætu þeirri niðurstöðu. Af hálfu varnaraðila er byggt á að ekki sé misræmi í framburði hans. Að því er varðar skópar, sem hann hafi verið spurður um, þá hafi hann svarað á þá leið að hann viti ekki hvar það sé, en hugsanlega hafi það farið í síðustu ferð á Sorpu. Þannig standi á að varnaraðili og kona hans hafi ákveðið að fara til útlanda til dvalar og hafi leigt út íbúð sína á meðan, frá og með næstu mánaðamótum. Þau standi því í miklum hreingerningum og sé miklu hent. Ekki sé því óeðlilegt þó skópari kunni að hafa verið hent með öðru. Hugsanlega sé skóparsins að leita hjá Sorpu í Kópavogi. Að því er varðar spurningar um sundferð þá hafi varnaraðili verið spurður um ferðir sínar umrætt kvöld. Hann hafi svarað því til að hugsanlega hafi hann farið í sund en hann geri það oft. Hann hafi þá verið upplýstur um að sími hans hafi verið á Kársnesi og þá hafi hann talið sig hafa farið í sund. Hann muni hins vegar hafa verið fyrir utan í bifreið sinni og spilað þar í síma sínum. Af hálfu varnaraðila er byggt á því að ef hann hefði framið þann verknað sem hann sé grunaður um, ættu að vera gögn sem bentu til slíks, svo sem á vettvangi eða í bifreið hans, en hún hefði verið rannsökuð. Það sem byggt væri á, svo sem skópar sem ekki hefði komið í leitirnar og hvort hann myndi nákvæmlega hvaða daga hann hefði farið í sund, gerði ekki af verkum að hann væri undir rökstuddum grun um það sem til rannsóknar væri.

Niðurstaða

Af því sem rakið hefur verið og liggur fyrir í málinu er ljóst að lögreglustjóri hefur til rannsóknar háttsemi er varðað getur fangelsisvist, en lögreglustjóri rannsakar málið sem meint brot gegn 211. gr. laga nr. 19/1940. Af því sem fram er komið í málinu verður lagt til grundvallar að varnaraðili hafi verið ásamt brotaþola á heimili brotaþola hinn 28. 11. 2025. Brotaþoli fannst látinn hinn 30. 11. 2025 og mun þá hafa verið með stunguáverka. Við rannsókn málsins mun ekkert hafa komið fram um hugsanleg samskipti brotaþola við aðra menn, á þeim tíma sem leið frá því varnaraðili var á heimili hans og þar til brotaþoli fannst látinn. Af hálfu lögreglustjóra er byggt á að varnaraðili hafi verið rannsókn verið með skurðáverka á hendi. Varnaraðili mun ekki hafa mótmælt því, en hafa gefið skýringar á þeim áverkum. Af rannsóknargögnum verður ráðið að á vettvangi hafi skór stigið í blóð en skór, sem varnaraðili mun hafa verið í það kvöld sem málið varðar, munu ekki hafa komið í leitirnar. Á því hefur varnaraðili gefið skýringar. Þegar á allt framanritað er horft og gögn málsins verður að fallast á með lögreglustjóra að á þessu stigi sé varnaraðili undir rökstuddum grun um háttsemi er varðað getur fangelsisrefsingu. Eru uppfyllt almenn skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Rannsókn málsins er í fullum gangi og er lögregla enn að afla gagna. Á þessu stigi verður að fallast á með lögreglustjóra að ætla megi að varnaraðili muni, gangi hann laus nú, torvelda rannsóknina svo sem með því að hafa áhrif á hugsanleg vitni, skjóta undan munum eða afmá merki um hugsanlegt brot. Uppfyllt eru skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með hliðsjón af rannsóknarhagsmunum á þessu stigi þykir jafnframt verða að fallast á kröfu lögreglustjóra um einangrun. Þegar horft er á það sem fyrir liggur í málinu og það sem til rannsóknar er þykir verða að verða við kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og verður það gert. Af hálfu lögreglustjóra gerir kröfuna Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari en Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður er verjandi varnaraðila.

Úrskurðarorð

Varnaraðili, X, kt. [...], sæti gæzluvarðhaldi og einangrun, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 17. desember 2025, kl. 16:00.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 211. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 95. gr.1. mgr. 95. gr.1. mgr. 99. gr.1. mgr. 192. gr.