Landsréttur
Úrskurður mánudaginn 6. október 2025.
Mál nr. 691/2025:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X
(Benedikt Smári Skúlason lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Gæsluvarðhald. A-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Útdráttur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Eiríkur Jónsson, Jón Höskuldsson og Þorgeir Ingi Njálsson kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 4. október 2025 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. október 2025 í málinu nr. R-[...]/2025 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. október 2025 klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
- Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
- Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að honum verði gert að sæta vægari úrræðum, svo sem farbanni. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Niðurstaða
- Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. október 2025
Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 3. október 2025.
Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Varnaraðili er X, kt. [...].
Dómkröfur
Þess er krafist að X, kt. [...], sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, til fimmtudagsins 23. október 2025, kl. 16:00.
Málsatvik
Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot varnaraðila og ætlaðra samverkamanna hans.
Málið hófst hjá lögreglu þann 17. september sl. eftir að Tollgæsla á [...] hafði samband við lögreglu vegna leitar í bifreiðinni [...], sem komið hafði með [...], þar sem grunur væri um að töluvert magn af fíkniefnum væru falin. Tekin var ákvörðun um að elta bifreiðina sem keyrði til Reykjavíkur þann 19. september s.l. Lögregla fylgdist með þegar Y hitti Z á planinu við [...] í Hafnarfirði og fylgdi honum því næst að iðnaðarbili við [...] í Hafnarfirði, sem Z er með á leigu, þar sem þau fóru með bifreiðina [...] inn í iðnaðarbilið. Lögregla fylgdist með þeim ræða saman um efnin sem vera ættu í bifreiðinni og voru þau að undirbúa að fjarlægja efnin. Lögregla sá svo þar sem þriðji aðili, varnaraðili X kom að, fór inn í iðnaðarbilið, kom svo út skömmu síðar og sótti kassa, sem í var ný ryksuga, í bifreið sína, sem hann svo afhenti Y og Z. Í kjölfarið fór X aftur í bifreið sína og virtist vera að fylgjast með umferð í kringum iðnaðarbilið á meðan Z og Y ynnu að því að fjarlægja efnin úr leynihólfum í bifreiðinni. Skömmu síðar réðist lögregla til inngöngu, en X hafði þá náð að hringja í Z og gera honum viðvart um komu lögreglu sbr. framburð Z í skýrslutöku 24. september og hlustun lögreglu.
Lögregla haldlagði samtals 14.952,33 grömm af ketamíni og 4.999,46 grömm af MDMA kristöllum, samtals verðmæti efnanna m.v. smásöluverð á Íslandi er talið vera u.þ.b. 374. milljóna króna.
Varnaraðili greindi frá því í skýrslutöku þann 19. september að hann hafi fengið símtal frá Z sem hafi beðið sig um að lána sér ryksugu sem hann hafi mætt með á verkstæði hans. Hann sagðist þekkja Z en ekkert kannast við Y. Í skýrslutöku þann 24. september s.l. var borið undir varnaraðila að samkvæmt símtalaskrá í síma hans sæist að hann hafi átt 5 sekúnda símtal við Z rétt áður en lögregla réðist til inngöngu í iðnaðarbilið, en hann neitaði fyrir það. Samkvæmt hlustun lögreglu mun Z hafa hrópað til Y í kjölfar símtalsins frá varnaraðila "Police, put it back, Put it back"
Að mati lögreglu er framburður kærða með nokkrum ólíkindablæ, þá liggur jafnframt fyrir að samskonar ryksuga og kærði kom með, var til staðar í iðnaðarbilinu. Jafnframt liggur fyrir að íblöndunarefni ásamt smellulásapokum og grammavog fundust falin í ryksugu við húsleit í sameiginlegu rými varnaraðila og Z að [...].
Þá liggur fyrir að varnaraðili leitaði að leiðinni frá [...] í [...], þar sem hann var þá staddur skv. farsímagögnum og mynd af leiðinni úr síma varnaraðila fannst í síma Y, þannig að lögregla telur ljóst að hann hafi haft hlutverk við innflutning efnanna og hafi verið fullkunnugt um fíkniefni þau sem fundust í bifreiðinni þrátt fyrir framburð um annað, nú síðast í skýrslutöku 3.10.
Varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun til föstudagsins 26. september kl. 16.00 með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur laugardaginn 20. septeber s.l. í máli nr. R-[...]/2025 sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar nr. 661/2025, varnaraðila var svo aftur föstudaginn 26. september s.l. gert að sæta gæsluvarðhaldi til 3. október með úrskurði R-[...]/2025 sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar nr. 674/2025. Samverkamaður varnaraðila, Y var úrskurðuð í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 23. október n.k. með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. [...]/2025 og miðar krafa sóknaraðila varðandi gæsluvarðhald varnaraðila við það tímamark.
Að öðru leyti vísast nánar til meðfylgjandi rannsóknargagna.
Lagarök
Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: Að mati lögreglu er fram kominn rökstuddur grunur um að kærði ásamt meintum samverkamönnum hafi undirbúið og loks staðið að umfangsmiklum innflutningi fíkniefna hingað til lands. Mikilvægt er að upplýsa um meinta samverkamenn og rannsaka betur þátt kærða.
Eru brot kærða og meintra samverkamanna hans talin varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geta fangelsi allt að 12 árum. Að mati lögreglu er rannsóknin málsins sem stendur á afar viðkvæmu stigi. Fyrir liggur að enn er verið að vinna úr og ná upplýsingum úr símum sakborninga. Ljóst er bæði út frá þeim gögnum sem lögregla hefur undir höndum sem og framburði aðila að fleiri eigi aðild að þessum umfangsmikla fíkniefnainnflutningi, líklega bæði aðilar erlendis og hérlendis og telur lögregla því mikilvægt að sakborningum gefist ekki færi á að spilla rannsókn á þessum viðkvæma tímapunkti, en lögregla nýtur m.a. aðstoðar Europol við rannsókn á þætti anarra sakborninga. Að mati lögreglu eru verulegar líkur á því að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins svo sem með því að afmá merki eftir meint brot, skjóta undan munum og hafa áhrif á samseka eða vitni gangi hann laus að svo stöddu.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. október 2025 kl. 16:00.
Niðurstaða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur samkvæmt framansögðu til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot og telur rökstuddan grun liggja fyrir um að varnaraðili eigi aðild að málinu. Meint brot varnaraðila er talið varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðar allt að 12 ára fangelsi, verði sök sönnuð. Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknargögnum er um mjög mikið magn fíkniefna að ræða. Lögregla gerir kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir varnaraðila. Byggt á alið 1. mgr. 95. gr., laga nr. 88/2008 þar sem rökstuddur grunur sé uppi um að varnaraðili hafi gerst sekur um brot gegn fyrrgreindu ákvæði hegningarlaga Varnaraðili neitar sök og krefst þess að fyrirliggjandi kröfu lögreglu verði hafnað en til vara er krafist að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er. Lagaskilyrði með tilliti til rannsóknarhagsmuna séu ekki uppfyllt þar sem rannsóknin sé komin vel á veg og varnaraðili auðsýnt fulla samvinnu við lögreglu.
Varnaraðili sem sé [...] með engan sakarferil og hafi búið hér í [...] ár hafi þegar upplýst lögreglu af hverju hann hafi komið á vettvang og heimilað allar ráðstafanir lögreglu við rannsóknina. Þá hafni hann því að hafa staðið vörð eða reynt að vara aðra sakborninga við í greint sinn. Varnaraðili sjái ekki tilgang í áframhaldandi gæsluvarðhaldi og óljóst hvernig hann ætti að geta spillt frekari rannsókn.
Sækjandi vísar á hinn bóginn til þess að málið sé afar umfangsmikið og vísbendingar um aðkomu varnaraðila sem hafi m.a. varað aðra sakborninga við á brotavettvangi og gögn sem fundist hafi við rannsókn á símum varnaraðila og annars sakbornings bendi til aðildar varnaraðila að málinu. Enn sé verið að rannsaka þátt varnaraðila .
Fyrir liggur að varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi og einangrun eftir handtöku á sama grunni, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur frá 20. september síðastliðinn í máli nr. R-[...]/2025, er staðfestur var með úrskurði Landsréttar í máli nr. 661/2025 sem og úrskurð í máli nr. R-[...]/2025 frá 25. september sem einnig var staðfestur með úrskurði Landsréttar í máli nr. 674/2025 frá 29. september.
Með hliðsjón af framansögðu og fyrirliggjandi gögnum fellst dómurinn á að varnaraðili sé undir rökstuddum grun um háttsemi er fangelsisrefsing er lögð við eins og ítrekað hefur verið slegið föstu af Landsrétti. Rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi og frekari gögn nýverið fundist sem haldlögð símtæki höfðu að geyma sem benda til aðildar varnaraðila en hann hefur ekki viljað kannast við þannig að mikilvægt er enn að upplýsa frekar um meinta samverkamenn og rannsaka þátt varnaraðila. Ljóst er ennfremur að rannsókn málsins teygir sig til annarra ríkja og nýtur lögregla meðal annars liðsinnis Europol. Er því fallist á að raunveruleg hætta sé á því að varnaraðili muni torvelda frekari rannsókn málsins gangi hann laus, svo sem með því að koma undan sakargögnum, hafa áhrif á framburði annarra sakborninga eða vitna. Að því virtu verður því fallist á með sóknaraðila að ríkir rannsóknarhagsmunir séu fyrir hendi sem réttlæti nauðsyn frekara gæsluvarðhald varnaraðila. Að öllu framangreindu virtu telst sérstökum skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 því vera fullnægt en þess er ekki krafist að varnaraðili sæti áframhaldandi einangrun í gæsluvarðhaldinu.
Í ljósi rannsóknarhagsmuna verður talið að önnur og vægari úrræði en gæsluvarðhald komi ekki til álita og ekki þykir heldur ástæða til þess að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma en krafist er.
Verður því samkvæmt framansögðu fallist á kröfu sóknaraðila um gæsluvarðhald varnaraðila, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Björn L. Bergsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð
Varnaraðili, X, kt. [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 23. október 2025, kl. 16:00.