Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 223/2020:

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Úlfar Guðmundsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni og brottvísun af heimili á grundvelli laga nr. 85/2011, um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Jafnframt var lagt bann við því að X setti sig beint í samband við brotaþola.

Úrskurður Landsréttar

Oddný Mjöll Arnardóttir landsréttardómari og Björg Thorarensen og Hjörtur O. Aðalsteinsson, settir landsréttardómarar, kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Sóknaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 9. apríl 2020, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. apríl 2020 í málinu nr. R-[...]/2020 þar sem staðfest var að hluta ákvörðun sóknaraðila 3. apríl 2020 um að varnaraðili sætti brottvísun af heimili og nánar tilgreindu nálgunarbanni. Kæruheimild er í 3. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili.
  2. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur en því til viðbótar verði varnaraðila bannað að hringja í heima-, vinnu- eða farsíma brotaþola, senda henni tölvupóst eða setja sig á annan hátt í beint samband við hana og þannig verði ákvörðun sóknaraðila 3. apríl 2020 staðfest í heild sinni.
  3. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði staðfestur. Þá krefst varnaraðili þóknunar til handa skipuðum verjanda sínum.

Niðurstaða

  1. Með vísan til gagna málsins er fallist á með sóknaraðila að fyrir liggi rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi framið brot gegn brotaþola, sem kunni að varða við ákvæði í XXIII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt því er fullnægt skilyrðum a- og b-liða 4. gr. og 1. mgr. 5. gr. laga nr. 85/2011 til að varnaraðila verði gert að sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili, enda er ekki sennilegt að friðhelgi brotaþola verði vernduð með öðrum og vægari hætti.
  2. Í forsendum hins kærða úrskurðar greinir að varnaraðili og brotaþoli eigi saman börn sem lúta sameiginlegri forsjá og að mikilvægt sé að þau geti lokið fjárskiptum sín á milli og komið sér saman um samvistir varnaraðila við börn þeirra. Með vísan til þess var talið rétt að takmarka gildandi nálgunarbann á þann hátt að varnaraðila væri heimilt að hringja í heimavinnu- eða farsíma brotaþola, senda henni tölvupóst og setja sig í samband við hana í gegnum fjarskiptatæki, en brotaþola væri í sjálfsvald sett hvort hún tæki þátt í slíkum samskiptum. Í ljósi sögu samskipta varnaraðila og brotaþola verður að telja að símhringingar varnaraðila eða aðrar aðferðir hans til að setja sig í beint samband við hana séu til þess fallnar að raska friði brotaþola, en meðal markmiða laga nr. 85/2011 er að vernda brotaþola fyrir þungbæru ónæði af þeim toga. Verður ekki séð að unnt sé að vernda friðhelgi brotaþola með vægari úrræðum en þeim sem sóknaraðili gerir kröfu um. Þá verður að telja mögulegt að útkljá atriði sem lúta að fjárskiptum þeirra á milli og börnum þeirra án þess að varnaraðili setji sig í beint samband við brotaþola, svo sem með aðstoð lögmanna. Verður því ekki talið tilefni til þess að takmarka nálgunarbann með þeim hætti sem gert var í hinum kærða úrskurði. Að þessu gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í úrskurðarorði greinir.
  3. Þóknun verjanda varnaraðila fyrir Landsrétti, sem ákveðin er að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í úrskurðarorði greinir, greiðist úr ríkissjóði samkvæmt 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 14. gr. laga nr. 85/2011.

Úrskurðarorð:

Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 3. apríl 2020 um að varnaraðili, X, skuli sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili til föstudagsins 1. maí 2020 klukkan 16.00, þannig að lagt er bann við því að hann komi á eða í námunda við heimili A, að [...], [...], á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis [...], [...], mælt frá miðju hússins. Jafnframt er lagt bann við því að varnaraðili veiti A eftirför, nálgist hana á almannafæri, hringi í heima-, vinnu- eða farsíma hennar, sendi henni tölvupóst eða setji sig á annan hátt í beint samband við hana.

Þóknun verjanda varnaraðila fyrir Landsrétti, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, 186.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. apríl 2020

Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Varnaraðili er X, kt. […], til lögheimilis að […].

Sóknaraðili krefst þess að staðfest verði sú ákvörðun lögreglustjóra 3. apríl 2020 að varnaraðili skuli áfram sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili til föstudagsins 1. maí 2020 kl. 16:00, þannig að honum sé bannað að koma á eða í námunda við heimili brotaþola, A, kt. […], að […], á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis heimilið, mælt frá miðju hússins. Jafnframt að varnaraðila sé bannað að veita brotaþola eftirför, nálgast hana á almannafæri, hringja í heima-, vinnu- eða farsíma hennar, senda henni tölvupóst eða setja sig á annan hátt í beint samband við hana. Af hálfu brotaþola er tekið undir kröfugerð sóknaraðila. Krafa sóknaraðila barst héraðsdómi 6. apríl sl. Varnaraðili krefst þess að synjað verði um staðfestingu ákvörðunar sóknaraðila um brottvísun og nálgunarbann, en að því frágengnu verði brottvísun og nálgunarbanni markaður skemmri tími.

I.

Þann 8. mars sl. ákvað sóknaraðili að varnaraðili skyldi frá þeim degi til 5. apríl beittur nálgunarbanni og brottvísun af heimili sínu og brotaþola að […] og var sú ákvörðun staðfest með úrskurði héraðsdóms 13. mars. Umrædd ákvörðun studdist við rannsókn eftirgreindra fimm lögreglumála, vegna atvika er tengjast varnaraðila og brotaþola, á tímabilinu 17. júlí 2019 til 8. mars 2020 og er þeim svo lýst í téðri ákvörðun:

  1. Þann 17. júlí 2019 hafi tilkynning borist frá barnavernd […] vegna samskipta við varnaraðila, en hann og brotaþoli höfðu verið boðuð í viðtal hjá barnaverndarnefnd vegna tilkynningar um heimilisofbeldi af hálfu varnaraðila. Brotaþoli hafi mætt ein í viðtalið og sagt varnaraðila vera úti á landi. Eftir viðtalið hafi varnaraðili ítrekað hringt í starfsmann barnaverndar og hótað honum lífláti ef hann léti ekki af afskiptum af varnaraðila og fjölskyldu hans. Mun starfsmaðurinn hafa óttast um velferð brotaþola við heimkomu varnaraðila (mál 008-2019- […]).
  2. Þann 8. ágúst 2019 hafi brotaþoli dvalið í […] og lagt fram kæru á hendur varnaraðila vegna erfiðs heimilisástands og andlegs, líkamlegs og fjárhagslegs ofbeldis síðastliðin fimm ár. Að sögn brotaþola hafi hún í kjölfar lögreglumáls 008-2019-[…] ákveðið að fara af heimili þeirra og leitað til […] sinnar. Varnaraðili hafi mætt þangað að næturlagi og heimtað að hún og börnin kæmu heim. Brotaþoli hafi svo fundað með barnaverndarnefnd, varnaraðili setið fyrir utan fundarstað í um þrjár klukkustundir og brotaþoli í kjölfarið leitað skjóls í […] og dvalið þar frá […]. Brotaþoli hafi greint frá miklu líkamlegu ofbeldi af hálfu varnaraðila frá [...] til [...], en þá hafi það hætt í ákveðinn tíma. Meðan á ofbeldinu stóð hafi varnaraðili m.a. tekið skæri og haldið að hálsi hennar og hótað henni lífláti og oft þrengt að hálsi hennar þannig að hún missti meðvitund. Þá hafi hann brotið og bramlað eigur þeirra. Hún kvað varnaraðila vera gríðarlega afbrýðisaman og hafa ítrekað haft áhrif á samskipti hennar við annað fólk. Brotaþoli hafi ítrekað slitið sambandi sínu við hann frá því að þau byrjuðu saman […] (mál 008-2019-[…]). Brotaþoli fékk neyðarhnapp vegna þessa lögreglumáls.
  3. Þann 6. september 2019 hafi brotaþoli hringt í lögreglu í uppnámi og tilkynnt að varnaraðili hafi tekið börn þeirra af […] í óleyfi (mál 008-2019-[…]).
  4. Þann 2. mars 2020 hafi lögreglu borist beiðni um aðstoð frá brotaþola vegna slagsmála í verslun […] í […]. Að sögn brotaþola hafi hún verið að versla með varnaraðila þegar hann hafi horfið og hún næst séð hann í slagsmálum við […] hennar. Hún kvað þau vera að ganga í gegnum skilnað, að umræddur […] hafi verið að hjálpa henni og varnaraðili verið ósáttur við það. Að sögn […] hafi varnaraðili beðið hans fyrir utan […] og varnaraðili kýlt hann í andlitið þegar hann steig út úr versluninni (mál 008-2020-[…]).
  5. Aðfaranótt 8. mars 2020 hafi lögreglu borist símtal úr símanúmeri brotaþola. Hún hafi ekkert sagt í símann, en heyrst hafi grátur í konu og samtal hennar við karlmann. Vegna gruns um heimilisofbeldi hafi lögregla farið á vettvang að […]. Er þangað kom hafi brotaþoli opnað dyrnar og varnaraðili fylgt á eftir. Hún hafi verið grátandi, virst skelfingu lostin og greint frá því að varnaraðili hefði ráðist á hana. Varnaraðili hafi verið handtekinn og var hann að sögn lögreglu undir áhrifum áfengis. Í viðræðum við brotaþola hafi hún sagt þau hafa verið saman á […] og á leið heim þegar varnaraðili hefði byrjað að tala um […] hennar og hótað því að drepa hann og alla fjölskyldu hennar. Er heim kom hafi brotaþoli farið inn í eldhús, varnaraðili elt hana, tekið hana hálstaki og þrengt að. Hann hafi síðan sleppt takinu en tekið upp hníf. Hún hafi þá tekið upp annan hníf og sagt honum að hætta. Við þetta hafi varnaraðili lagt hnífinn frá sér og beðið hana afsökunar og hún gert hið sama. Hann hafi svo dregið fram skæri og gengið á eftir henni um íbúðina. Meðan á þessu stóð hafi brotaþoli hringt lögreglu, án þess að tala við þann sem svaraði kalli hennar. Brotaþoli kvaðst vera búin að slíta sambandi við varnaraðila, en hann hreinlega leyfi henni ekki að slíta því. Hún væri afar meðvirk og gæfi eftir í einu og öllu, en þau væru búin að vera saman í […] ár. Hún kvað börn þeirra hafa orðið vitni að ofbeldi varnaraðila í það minnsta eitt skipti; þann 20. febrúar sl. er hann hafi orðið afbrýðisamur, tekið hana hálstaki, þrengt um hálsinn með belti og hrint henni í gólfið. Á heimili brotaþola og varnaraðila var haldlagt nokkuð magn af ætluðum sterum sem brotaþoli sagði í hans eigu (mál 008-2020-[…]).

    Auk framangreindra lögreglumála er í fyrri ákvörðun sóknaraðila vísað til þess að 2. september 2019 hafi lögreglu borist tilkynning um að varnaraðili neitaði að yfirgefa heimilið að […] þrátt fyrir ítrekaða beiðni brotaþola, en varnaraðili mun á þeim tíma hafa verið fluttur út á grundvelli samkomulags við barnavernd […]. Hann hafi að lokum yfirgefið heimilið eftir að […] brotaþola kom á vettvang.

    Þá kemur fram í fyrri ákvörðun að varnaraðili og brotaþoli eigi saman tvö börn, […] og […] ára og að í lögreglukerfinu séu skráð afskipti af varnaraðila og brotaþola allt frá árinu 2015 þegar brotaþoli hafi komið á lögreglustöð, sagt varnaraðila hafa gengið berserksgang og lagt íbúð þeirra í rúst og að hún vildi slíta sambandi þeirra (mál 008-2015-[…]).

    Til stuðnings sömu ákvörðunar segir að í ljósi ofanritaðs „og með vísan til þess að svo virðist sem varnaraðili hafi í allnokkur skipti ráðist á brotaþola með miklum afleiðingum fyrir brotaþola auk þess sem brotaþoli hafi sætt andlegu og líkamlegu ofbeldi, telur lögreglustjóri að skilyrði 4. og 5. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili séu uppfyllt að því leyti að rökstuddur grunur sé um að [varnaraðili] hafi framið brot gegn [brotaþola] er varði við ákvæði XXII. og XXIV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, n.t.t. 218. gr. b. og 233. gr. og fleiri lagaákvæði og að hætta sé á að hann muni áfram brjóta gegn brotaþola og friðhelgi hennar. Að mati lögreglustjóra er sýnt að friðhelgi hennar verði ekki verndað með öðrum og vægari hætti eins og sakir standa“. Í ljósi þessa og ríkra einka-, almanna- og rannsóknarhagsmuna var greind ákvörðun tekin að frumkvæði sóknaraðila á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 4 gr. og a. og b. liða 1. mgr. og 2. mgr. 5. gr. laga nr. 85/2011, sbr. og 3. mgr. 3. gr., 6. og 7. gr. sömu laga.

II.

Sóknaraðili beitti varnaraðila að nýju brottvísun og nálgunarbanni 3. apríl sl. Er sú ákvörðun eins að efni til og fyrri ákvörðun, en skal að óbreyttu gilda til föstudagsins 1. maí. Ákvörðunin var birt varnaraðila samdægurs og honum kynnt að samkvæmt 1. mgr. 12. gr. laga nr. 85/2011 yrði ákvörðun um brottvísun af heimili borin undir héraðsdóm til staðfestingar. Jafnframt var varnaraðila kynnt að hann gæti á grundvelli 2. mgr. 12. gr. krafist endurskoðunar á ákvörðun um nálgunarbann.

Hin nýja ákvörðun byggir meira og minna orðrétt á sömu atvikalýsingu og rökstuðningi og fyrri ákvörðun sóknaraðila, þó þannig að vísað er til greinargerðar réttargæslumanns brotaþola sem sóknaraðila barst 2. apríl sl. og lýtur að erfiðum samskiptum sömu aðila vegna sambúðarslita og fjármálauppgjörs þeim tengdum. Í málinu liggja fyrir ítarlegar framburðarskýrslur beggja aðila frá 8. mars. Bera gögn málsins ekki með sér að lögregla hafi eftir þann tíma tekið skýrslur af aðilum eða vitnum eða að kvartanir hafi borist vegna ónæðis af hálfu varnaraðila. Virðist staða lögreglurannsóknar þannig lítt breytt frá 8. mars.

III.

Af hálfu sóknaraðila kom fram í dag að brotaþoli hafi búið við langvarandi ofbeldi af hálfu varnaraðila, þar á meðal fjárhagslegt ofbeldi, sem sýni sig meðal annars í því að varnaraðili komi nú í veg fyrir að fasteign þeirra að […] verði seld á frjálsum markaði, en varnaraðili eigi aðeins 25% hlut í þeirri eign. Brýnt sé að varnaraðili og brotaþoli ljúki sínum fjárskiptum og megi þá endurskoða fyrirliggjandi nálgunarbann og brottvísun. Krafa sóknaraðila byggi fyrst og fremst á framangreindum lögreglumálum og sé á grundvelli fyrirliggjandi gagna rökstuddur grunur um brot varnaraðila gagnvart brotaþola, sem fullnægi skilyrðum 4., 5. og 6. gr. laga nr. 85/2011. Beri því að staðfesta ákvörðun sóknaraðila.

Af hálfu varnaraðila er á því byggt að ekki sé fyrir hendi rökstuddur grunur um refsiverð brot hans í skilningi 4. og 5. gr. laga nr. 85/2011, í því sambandi vísað til skýrslu varnaraðila fyrir dómi 13. mars sl. og á það bent að frá 8. mars sl. hafi málið ekki hlotið frekari rannsókn af hálfu lögreglu. Frá sama tíma hafi varnaraðili fylgt í einu og öllu ákvörðun um brottvísun og nálgunarbann og ekki reynt að setja sig í samband við brotaþola. Sambandi þeirra sé endanlega lokið og fari öll samskipti varðandi umgengni varnaraðila við börn sín gegnum […] hans. Fjárskiptum aðila sé ólokið, m.a. sölu á fasteigninni að […]. Er í því sambandi mótmælt greinargerð réttargæslumanns frá 2. apríl, en hún hafi að geyma ýmsar rangfærslur og einhliða frásögn brotaþola af samskiptum aðila gegnum lögmenn sína. Hin nýja ákvörðun lögreglustjóra sé afar íþyngjandi og virðist miða að því að varnaraðili verði þvingaður til fjárskipta með brotaþola áður en nálgunarbanni og brottvísun verði aflétt. Þetta sé í andstöðu við tilgang laga nr. 85/2001, fari þvert gegn reglum um meðalhóf og megi varnaraðili allt eins búast við því að sæta sömu þvingunaraðgerðum um ófyrirséða framtíð gefi hann ekki eftir gagnvart kröfum brotaþola um fjárskipti og umgengni við börn þeirra. Beri því að synja um staðfestingu hinnar nýju ákvörðunar eða marka henni skemmri tíma en til 1. maí.

IV.

Samkvæmt 4. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili er það skilyrði sett fyrir beitingu nálgunarbanns að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að einstaklingur sá sem aðgerðin beinist gegn hafi framið refsivert brot eða raskað á annan hátt friði brotaþola, eða hætta er á að viðkomandi muni brjóta með þeim hætti gegn brotaþola.

Samkvæmt 5. gr. er það skilyrði sett fyrir beitingu brottvísunar af heimili að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að einstaklingur sá sem aðgerðin beinist gegn hafi framið refsivert brot gegn ákvæðum XXII.-XXIV. kafla almennra hengingarlaga nr. 19/1940 og/eða gegn öðrum tilgreindum ákvæðum laganna, þar á meðal 233. gr., og verknaður hafi beinst að öðrum sem er kærða nákominn, enda varði brot allt að sex mánaða fangelsi, eða hætta er á að kærði muni brjóta með þeim hætti gegn brotaþola.

Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. er heimilt að beita nálgunarbanni samhliða brottvísun af heimili ef nauðsynlegt þykir til að tryggja hagsmuni brotaþola.

Samkvæmt 6. gr. verður hvorugu úrræði beitt nema sennilegt þyki að friðhelgi brotaþola verði ekki verndað með öðrum og vægari hætti.

Varnaraðili er grunaður um brot gegn 218. gr. b. almennra hegningarlaga, en þar segir í 1. mgr. að hver sá sem endurtekið eða á alvarlegan hátt ógnar lífi, heilsu eða velferð núverandi eða fyrrverandi sambúðaraðila síns eða annarra sem búa með honum á heimili eða eru í umsjá hans, með ofbeldi, hótunum, frelsissviptingu, nauðung eða á annan hátt, skuli sæta fangelsi allt að sex árum. Segir nánar um skýringu þessa lagaákvæðis í frumvarpi sem varð að 4. gr. laga nr. 23/2016 um breyting á almennum hegningarlögum að ofbeldi í nánum samböndum feli ekki einungis í sér samansafn einstakra tilvika heldur megi virða slíka háttsemi sem eina heild. Athyglin sé þannig færð á það ógnar- og óttaástand sem getur skapast og jafnframt á þá viðvarandi þjáningu, kúgun og vanmátt sem þolandi upplifir við slíkar aðstæður. Ekki sé útilokað samkvæmt ákvæðinu að einstakt brot geti fallið undir refsivernd ákvæðisins ef það nær tilteknu alvarleikastigi. Þá segir í frumvarpinu að ofbeldi í nánum samböndum í skilningi ákvæðisins geti birst á marga vegu, meðal annars í félagslegu, fjárhagslegu, andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi.

V.

Af fyrirliggjandi gögnum telur dómurinn ljóst að brotaþoli hafi um árabil búið við óviðunandi fjölskylduaðstæður með varnaraðila og fær sú frásögn hennar nokkra stoð í frásögn varnaraðila og samrýmist þeirri staðreynd að hann flutti tímabundið út af heimili þeirra síðastliðið […] vegna alvarlegra bresta í sambandi þeirra. Samkvæmt rannsóknargögnum máls, svo sem þau eru rakin í I. kafla að framan, virðist varnaraðili frá sumri 2019 ítrekað hafa komið fram við brotaþola með ólíðandi hætti og dregur dómurinn ekki í efa að hún hafi upplifað viðvarandi þjáningar, kúgun og vanmátt af völdum varnaraðila. Að mati dómsins tók steininn úr 8. mars sl. þegar brotaþoli kvaddi lögreglu á heimili þeirra og bar á varnaraðila að hann hefði ógnað henni með hnífi og skærum, tekið hana hálstaki og þrengt að og hótað henni og fjölskyldu hennar lífláti. Með hliðsjón af þeim framburði brotaþola, sem studd er frumskýrslu lögreglu um komu á heimili varnaraðila og brotaþola 8. mars telur dómurinn fyrir hendi rökstuddan grun um að varnaraðili hafi greint sinn brotið gegn 2. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga, en brot gegn téðri lagagrein varða fangelsi allt að sex árum. Var á þeim grunni staðfest fyrri ákvörðun sóknaraðila um brottvísun af heimili og bann við því að varnaraðili setti sig í samband við brotaþola til 5. apríl sl. Brottvísun af heimili felur í sér inngrip í fjölskyldu- og einkalíf varnaraðila og þurfa því sterk rök að hvíla að baki slíkri ákvörðun. Eins og fram kemur í II. kafla að framan virðist lítið hafa gerst í rannsókn lögreglu á þeirri háttsemi varnaraðila sem liggur til grundvallar brottvísun og nálgunarbanni. Þótt rannsókn miði lítt áfram er varnaraðili undir rökstuddum grun um brot gegn 218. gr. b. almennra hegningarlaga. Sambandi hans og brotaþola er lokið og þykja því hagsmunir hans af því að búa á heimili fjölskyldunnar að […] óverulegir. Vegur þyngra að heimilið geti verið griðastaður brotaþola þar sem hún geti búið og notið öryggis gagnvart varnaraðila. Að þessu gættu og með vísan til a. liðar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 85/2011 verður staðfest sú ákvörðun sóknaraðila að varnaraðili sæti brottvísun af heimili til 1. maí nk. kl. 16:00.

Varnaraðili mun hafa virt nálgunarbann sóknaraðila og ekki sett sig í beint samband við brotaþola síðan 8. mars. Þau eiga saman börn, sem lúta sameiginlegri forsjá og sætir varnaraðili ekki nálgunarbanni gagnvart þeim. Mikilvægt er að varnaraðili og brotaþoli geti lokið fjárskiptum og reynt að koma sér saman um samvistir varnaraðila við börnin nú þegar sambandi þeirra er lokið. Þótt heimilt sé að beita nálgunarbanni á grundvelli 4. gr. laga nr. 85/2011 í tilviki varnaraðila ber að gæta meðalhófs og ekki fara strangar í sakirnar en nauðsyn ber til, sbr. 6. gr. sömu laga. Að þessu gættu telur dómurinn rétt að takmarka gildandi nálgunarbann þannig, að varnaraðila sé fram til föstudagsins 1. maí nk. kl. 16:00 bannað að koma á eða í námunda við heimili brotaþola að […], á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis heimilið, mælt frá miðju hússins. Jafnframt sé varnaraðila bannað að veita brotaþola eftirför eða nálgast hana á almannafæri. Honum er hins vegar heimilt að hringja í heima-, vinnu- eða farsíma brotaþola, senda henni tölvupóst og setja sig í samband við hana gegnum fjarskiptatæki. Brotaþola er síðan í sjálfsvald sett hvort hún taki þátt í slíkum samskiptum. Er ákvörðun sóknaraðila frá 3. apríl sl. staðfest með þessari breytingu.

Samkvæmt 14. gr. laga nr. 85/2011, sbr. 3. mgr. 38. gr. og 3. mgr. 48. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal þóknun Úlfars Guðmundssonar verjanda varnaraðila og þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur réttargæslumanns brotaþola greiðast úr ríkissjóði. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls þykir þóknun þeirra hvors um sig hæfilega ákveðin 168.640 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Úrskurð þennan kveður upp Jónas Jóhannsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 3. apríl 2020 um að varnaraðili, X, kt. […], sæti brottvísun af heimili til föstudagsins 1. maí 2020 kl. 16:00. Þá er staðfest sú ákvörðun sóknaraðila að varnaraðila sé á sama tímabili bannað að koma á eða í námunda við heimili brotaþola, A, kt. […], að […], á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis […], mælt frá miðju hússins. Jafnframt sé varnaraðila bannað að veita brotaþola eftirför eða nálgast hana á almannafæri.

Úr ríkisjóði greiðist 168.640 króna þóknun Úlfars Guðmundssonar verjanda varnaraðila og 168.640 króna þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur réttargæslumanns brotaþola.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 5. gr.218. gr.218. gr. b2. mgr. 218. gr. b233. gr.XXIII. kafli
Lög nr. 85/2001
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 38. gr.3. mgr. 38. gr.3. mgr. 48. gr.
Lög nr. 85/2011 Lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili 3. mgr. 3. gr.4. gr.5. gr.1. mgr. 5. gr.2. mgr. 5. gr.6. gr.7. gr.1. mgr. 12. gr.2. mgr. 12. gr.14. gr.3. mgr. 15. gr.
Lög nr. 23/2016 Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi). 4. gr.