Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-357/2025:

Lögreglustjórinn á Vesturlandi

(Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jónasi Ríkharði Jónssyni

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í þriðja sinn undir áhrifum ávana- og fíkniefna innan ítrekunartíma, neita að veita atbeina við rannsókn málsins og fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti.

Dómur

  1. Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 5. desember 2025 á hendur ákærða, Jónasi Ríkharði Jónssyni, kt. ..., ..., .... Málið var dómtekið 17. febrúar 2026.
  2. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða:

I

„…fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 29. júní 2025, ekið bifreiðinni ... sviptur ökurétti um Hraunbæ í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2025-036673

II

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, skömmu eftir miðnætti sunnudaginn 28. september 2025, ekið bifreiðinni ... sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 340 ng/ml) norður Vesturlandsveg, við gangnamuna Hvalfjarðarganga í Hvalfjarðarsveit, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og í kjölfar afskipta lögreglu á vettvangi neitað að láta lögreglu í té munnvatsnssýni og þannig neitað að veita atbeina sinn við rannsókn málsins.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., 1. sbr. 3. mgr. 52. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 313-2025-021668

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.“

  1. Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls og boðaði ekki forföll, en ákærði staðfesti birtingu í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda 30. janúar 2026. Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundvelli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm, sbr. 1. mgr. 155. gr. sömu laga. Með vísan til 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða telst því sannað og réttilega heimfært til laga í ákæruskjali.
  2. Ákærði er fæddur .... Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsett 4. desember 2025 hefur ákærða tvisvar sinnum áður verið gerð refsing fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og einu sinni fyrir að aka sviptur ökurétti. Annars vegar gekkst ákærði undir greiðslu sektar með viðurlagaákvörðun í Héraðsdómi Reykjaness 15. nóvember 2022, fyrir vörslur fíkniefna og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Um leið var ákærði sviptur ökurétti í 4 ár og 6 mánuði frá sama degi að telja. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, 12. febrúar 2025, var ákærða gert að greiða fésekt fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökurétti. Ákærði var jafnframt sviptur ökurétti í 3 ár frá 15. maí 2027.
  3. Fastmótuð dómvenja er fyrir því að ákveðin umferðarlagabrot af sömu tegund hafi ítrekunaráhrif með stoð í 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þannig að viðurlög þyngist frá einni viðurlagaákvörðun til annarrar til að tryggja varnaðaráhrif þeirra. Er í því sambandi tekið mið af skilyrðum 71. gr. almennra hegningarlaga fyrir ítrekunaráhrifum brota. Um þessi sjónarmið vísast meðal annars til dóma Landsréttar í málum nr. 832/2019, 3/2020 og 233/2024, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 8. maí 2008 í máli nr. 644/2007.
  4. Verður með vísan til framangreinds og sakaferils ákærða litið svo á að ákærði sé nú í þriðja sinn eftir að hann varð fullra 18 ára, sbr. 1. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og innan ítrekunartíma, fundinn sekur um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá er ákærði fundinn sekur um að aka í tvígang sviptur ökurétti og hefur ákærði því nú verið sakfelldur fyrir að aka í annað sinn sviptur ökurétti innan ítrekunartíma sbr. framangreint. Jafnframt er ákærði sakfelldur fyrir að neita að veita atbeina við rannsókn máls, sbr. 3. mgr. 52. gr. umferðarlaga.
  5. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, sakaferils ákærða, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðinn fangelsi í 45 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
  6. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.
  7. Í samræmi við niðurstöðu málsins sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins samtals 203.623 krónur.
  8. Snorri Örn Clausen aðstoðarmaður dómara kveður upp þennan dóm.

Dómsorð:

Ákærði, Jónas Ríkharð Jónsson, sæti fangelsi 45 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærði greiði 203.623 krónur í sakarkostnað.

Snorri Örn Clausen

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.1. mgr. 71. gr.77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 155. gr.1. mgr. 161. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.3. mgr. 52. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 94. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.