Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 24. maí 2012.
Mál nr. S-22/2012:
Ákæruvaldið
(Halla Bergþóra Björnsdóttir settur sýslumaður)
gegn
X
(Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir þjófnað, akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana og fíkniefna. Einnig fyrir vörslur ávana- og fíkniefna.
X
(Stefán Karl Kristjánsson hdl.) Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 2. febrúar 2012 á hendur ákærða, X, kt. …, ... á Akranesi. Málið var dómtekið 26. apríl 2012.
Í ákæruskjali er ákærða gefin að sök eftirtalin brot:
I.
Fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 4. mars 2011 ekið bifreiðinni EF-942 sviptur ökuréttindum og undir áhrifum bannaðra ávana- og fíkniefna (amfetamín í blóði mældist 315 ng/ml) suður Akrafjallsveg, Akranesi, uns lögreglan stöðvaði aksturinn við Einhamar. Jafnframt á sama tíma hafa haft í vörslum sínum í bifreiðinni 1,8 g af maríhúana og 2,37 g af amfetamín auk þess í íbúð sinni að Skarðsbraut 19, Akranesi 0,73 g af tóbaksblönduðu kannabis efni til eigin nota.
Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 186. gr. laga nr. 82/1998, 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007. við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002.
II.
Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 17. mars 2011 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni á heimili sínu Skarðsbraut 19, Akranesi 38,53 g af amfetamíni, 1,88 g af ecstasy, 2,08 g af maríhúana og 0,55 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, en lögreglan fann efnin við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002.
III.
Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 31. mars 2011 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni á heimili sínu Skarðsbraut 19, Akranesi 24,75 g af amfetamíni, 0,68 g af maríhúana og 0,31 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, en lögreglan fann efnin við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002. (Mál nr. 012-2011-569/012-2011-322)
IV.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í Reykjavík á sunnudeginum 27. mars 2011 ekið bifreiðinni VK-459 sviptur ökuréttindum frá Laugarneshverfi, Urriðakvísl að Mosarima nr. 6 þar sem bifreiðin var stöðvuð.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 3. gr. laga nr. 24/2007.
V.
Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 16. apríl 2011 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni á heimili sínu Skarðsbraut 19, Akranesi 18,64 g af amfetamíni, en lögreglan fann efnin við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002.
VI.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í Reykjavík á mánudeginum 20. júní 2011 ekið bifreiðinni VK-459 sviptur ökuréttindum eftir Sæbraut, uns lögreglan stöðvaði aksturinn á móts við Sprengisand.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 3. gr. laga nr. 24/2007.
VII.
Fyrir fíkniefnalagabrot miðvikudaginn 30. nóvember 2011, með því að hafa haft í sínum vörslum á heimili sínu Kirkjubraut 8, Akranesi, 0,06 g af amfetamíni en lögreglan fann efnið við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög 13/1985, 82/1998 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002. (Mál nr. 012-2011-1857)
VIII.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Þess er jafnframt krafist að framangreind fíkniefni sem hald var lagt á, verði gerð upptæk, samkvæmt 5. og 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög 68/2001 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Málið er einnig höfðað með ákæru 7. febrúar 2012 sem sýslumaðurinn í Borgarnesi gaf út á hendur ákærða. Var mál vegna þeirrar ákæru sameinað þessu máli og hefur sýslumaðurinn á Akranesi annast saksókn málsins. Í því ákæruskjali er ákærði sakaður um „þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 17. febrúar 2010, stolið kerru sem var fyrir utan Þórólfsgötu 8a Borgarbyggð, tileinkað sér hana og síðar selt hana síðan áfram eins og um sína eign væri að ræða.
En til vara hylmingu, til þrautavara hylmingu af gáleysi, með því að hafa tileinkað sér kerru sem hann hafi fengið afhenta frá óþekktum aðila, sem hann hefur ekki viljað gefa frekari upplýsingar um, vitandi að hún væri eða gæti verið þýfi, eða til þrautavara hafandi mátt gera sér það ljóst að hún gæti verið þýfi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, en til vara 1. mgr. 254. gr., og til þrautavara 1. mgr. 263. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði hefur fyrir dómi afdráttarlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í I., IV., VI., og VII. hluta ákæru 2. febrúar 2012. Ákærði hefur einnig játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru 7. febrúar sama ár, en kveður játningu einskorðast við þrautavarakröfu í ákæru. Játning ákærða er studd sakargögnum og verður lagður dómur á þennan þátt málsins án frekari sönnunarfærslu. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir þessi brot, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákærum.
Ákærði hefur játað sök samkvæmt ákæru 2. febrúar 2012 að því undanskildu að hann viðurkennir að hann hafi haft efnin sem tilgreind eru í ákæruliðum II, III, og V í vörslum sínum, en krefst sýknu neitar að þau hafi verið í dreifingarskyni, heldur hafi hann aðeins verið með efnin til eigin nota. Ákærði krefst einnig vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og að hún verði að öllu leyti skilorðsbundin. Einnig krefst ákærði að sá hluti sakarkostnaðar sem beri málsvarnarlaun ákærða falli á ríkissjóð
Málavextir
Ákæruliður II.
Ákærði hefur afdráttarlaust játað fyrir dómi að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni sem greinir í þessum ákærulið en neitar að þau hafi verið í sölu- og dreifingarskyni.
Lögreglan á Akranesi framkvæmdi húsleit í heimili ákærða þann 17. mars 2011. Á vettvangi var ákærða gefinn kostur á að framvísa fíkniefnum skyldu þau vera til staðar á heimili hans. Ákærði framvísaði 1 g af meintu amfetamíni sem hann var með á sér og fór síðan í ísskáp á heimilinu og náði þar í 44 g af amfetamíni og 2,3 g af MDMA í duftformi. Einnig fannst taska með íblöndunarefnum og vog. Lögreglan fann einnig við leit nokkur grömm af maríhúana.
Ákærði var yfirheyrður hjá lögreglunni á Akranesi. Sagðist ákærði eiga þau fíkniefni sem fundust á heimili hans, nema það maríhúana sem fannst, sem væri í eigu vinar hans. Ákærði sagðist ætla að nota efnin til eigin nota og neitaði að hafa ætlað að selja þau. Borinn var undir ákærða meintur skuldalisti, sem fannst á heimili hans, en ákærði vildi ekki tjá sig um þá sem skrifaðir voru í bókina.
Ákæruliður III Ákærði hefur afdráttarlaust játað fyrir dómi að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni sem greinir í þessum ákærulið en neitar að það hafi verið í sölu- og dreifingarskyni.
Þann 31. mars 2011 fóru lögreglumenn, að undangengnum úrskurði frá Héraðsdómi Vesturlands, til húsleitar á heimili ákærða vegna rökstudds gruns um vörslu og dreifingu fíkniefna. Óeinkennisklæddir lögreglumenn fóru fyrstir á vettvang og nutu aðstoðar tollvarðar og fíkniefnahundar. Þeim var hleypt inn í stigahús af íbúa í húsinu. Þar sem hurðin að íbúð ákærða var læst brutu lögreglumenn sér leið inn í íbúðina. Í íbúðinni voru ákærði og A... og voru þeir báðir handteknir í þágu rannsóknar málsins. Við leit í íbúðinni fundust meint fíkniefni og tæki til neyslu í eldhúsi, á stofuborði og inni í svefnherbergi sem útbúið er sem skrifstofa. Samtals var um að ræða um 26 g af amfetamíni og 2,5 g af kannabisefnum en hvorutveggja var vigtað í umbúðum hjá lögreglu.
Öll framangreind efni voru haldlögð og send til rannsóknar hjá Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig voru haldlögð íblöndunarefni, vigt, hasspípa og adrenalínampúlur, auk stílabókar sem innihélt skuldalista. Við yfirheyrslur hjá lögreglu viðurkenndi ákærði að eiga þau fíkniefni sem haldlögð voru við leit á heimili hans, en neitaði að skýra frá því hvar hann fékk þau og hversu mikið hann greiddi fyrir þau. Hann neitaði jafnframt að hafa ætlað að selja efnin og kvaðst ekki stunda sölu fíkniefna. Hann neitaði einnig að vigtin og íblöndunarefnin væru notuð við sölu fíkniefna. Borinn var undir ákærða skuldalisti, sem fannst við leitina, og kvaðst hann eiga bókina en vildi ekkert tjá sig frekar um hana. Sagðist ákærði hafa fengið adrenalínampúlur hjá vini sínum, sem hafi beðið hann um að koma þeim í verð, en ekki vildi hann nafngreina þennan vin sinn.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakaði fíkniefnin sem fundust við leitina og er um að ræða 24,75 g af amfetamíni, 0,6 g af maríhúana og 0,73 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Var sent 1,13 g sýni af amfetamíni til Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði til styrkleikarannsóknar. Niðurstaða rannsóknarinnar var að styrkur amfetamínbasa í sýninu var 8,9% sem samsvarar 12% af amfetamínsúlfati.
Ákæruliður V Ákærði hefur afdráttarlaust játað fyrir dómi að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni sem greinir í þessum ákærulið en neitar að þau hafi verið í sölu- og dreifingarskyni.
Þann 16. apríl 2011 var B... handtekinn rétt við Skarðsbraut 19 með 8 g af amfetamíni á sér og hafði lögregla upplýsingar þess efnis að hann væri að koma út frá ákærða sem bjó þá á Skarðsbraut 19. Farið var heim til ákærða sem heimilaði húsleit og fundust í ísskáp og á grindverki á svölum íbúðarinnar um 25 g af amfetamíni, vigtað í pakkningum, auk íblöndunarefna. Var ákærði sakaður um meinta sölu fíkniefna og vörslu og færður á lögreglustöð til yfirheyrslu. Við yfirheyrslur sagðist ákærði eiga þau fíkniefni sem lögreglan haldlagði í íbúðinni, væru þau ætluð til eigin nota og neitaði ákærði að hafa ætlað að selja þau. Ákærði kvaðst nota fíkniefni daglega og sagðist fjármagna neyslu sína með bankalánum. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakaði fíkniefnin og um er að ræða 18,64 g af amfetamíni. Þar sem grunur var um að amfetamínið sem fannst væri sterkt, þ.e.a.s. óblandað af hans hálfu, var óskað eftir styrkleikarannsókn á amfetamíninu hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Niðurstaða rannsóknarinnar var að að styrkur amfetamínbasa í sýni nr. 3 (10,65 g fannst á svölunum) hafi verið 14% sem samsvarar 19% af amfetamínsúlfati. Efnasýni nr. 1 (7,57 g) sýndi styrk amfetamínbasa upp á 3,6% og amfetamínsúlfat 4,9%.
Heildarþyngd amfetamínsins sem hald lagt var er 18,64 g og efnataka nr. 3 inniheldur 10,65 g af 14% amfetamínbasa. Götustyrkleikinn á amfetamínbasa er hins vegar 5,8%. Það gaf til kynna að hægt væri að drýgja efnin með því að margfalda 10,65 g með 2,41 og fá út 25,66 g af 5,8% "götustyrkleika"amfetamíni. Símhlerun Vegna rannsóknarhagsmuna var fengin heimild hjá Héraðsdómi Vesturlands til að framkvæma símhlerun hjá ákærða. Í framhaldi af þessari símhlerun var ákærði yfirheyrður hjá lögreglu þann 28. október 2011. Þar var ákærða kynnt að hann hefði mátt þola símhlerun. Upptökur af símhleruninni, sem lögregla taldi að snerist um fíkniefnasölu, var spiluð fyrir ákærða. Fékk ákærði að hlusta á 8 hljóðskrár. Í hljóðskránum kom eftirfarandi fram:
Hljóðskrá nr. 1. dags. 25.02.2011 tími 18.01.51. Útdráttur: D... óskaði eftir því við X... að fá að kaupa „grænt“. X... kvaðst eiga 1-2 eftir heima hjá sér og ákváðu þeir síðan að hittast þar.
Hljóðskrá nr. 2. dags. 28.02.2011 tími 17:04:05. Útdráttur: E... ræddi við X... um að F... vilji kaupa af honum 20-25 „gaura“. E... spurði X... hvort hann vildi selja „gaurinn“ á 3.000 kr. staðgreitt í stað 3.500 kr. Þeim þótti það góð hugmynd svo að X... þyrfti ekki að ferðast fram og aftur og gæti þá sleppt því að hitta menn.
Hljóðskrá nr. 3, dags. 08.03.2011 tími 21:56:37. Útdráttur: X... og H... ræddu um skort á „smókbransanum“ á Akranesi. X... kvaðst eiga til 10-15 ef að H... hefði áhuga. H... sagðist ætla að taka það og sagðist vera fljótur að losa sig við það. X... sagði að efnið væri aðeins ódýrara en það svínvirkaði. Þeir ákváðu síðan að mæla sér mót heima hjá X....
Hljóðskrá nr. 4, dags. 17.03.2011 tími 19:47:57. Útdráttur: X... og E... ræddu um að fá G... í eina viku til þess að ýta á þetta og sagðist X... ætla að hamra á því fólki sem að hann ætti inni hjá. X... kvaðst ekki getað farið í meðferð vegna skuldavanda og sagðist vera búinn að tapa 1. milljón króna þegar að allt væri upptalið. X... sagði að grasið væri bara gróði og ekki mikill kostnaður við það en hitt væri hreint tap og að hann væri búinn að missa af gróða í því.
Hljóðskrá nr. 5, dags. 25.03.2011 tími 17:17:50. Útdráttur: I... spurði X... hvort að hann ætti til ódýrari týpuna. X... sagðist eiga hana til og I... óskaði eftir því að fá að hitta X.... Þeir ákváðu síðan að mæla sér mót heima hjá X....
Hljóðskrá nr. 6, dags. 22.04.2011 tími 17.58.34. Útdráttur: D... óskar eftir því við X... að hann léti hann fá tvo. X... kvaðst ætla að redda því eftir mat. X... var kynnt að þessi hljóðskrá tengdist máli nr. 12-2011-691 þar sem að D... var handtekinn með 2,05 g af maríhúana um hálftíma eftir samtalið Hljóðskrá nr. 7, sama dag, klukkan 19.32.15. Útdráttur: Þarna voru X... og D... að ræða um þegar að D... var handtekinn eftir að hann kom frá X.... D... lýsti því fyrir X... þegar að hann henti pokanum út úr bifreiðinni. D... óskaði eftir því að fá að hitta X... aftur og spurði X... að því hvort að efnin væru öll uppurin. X... kvaðst eiga eitthvað smotterí eftir af því sem að hann lét hann fá. D... sagði síðan við X... að hann yrði með aur eftir páskana.
Hljóðskrá nr. 8, sama dag, klukkan 19.42.17. Útdráttur: X... sagði J... frá því að D... hefði náð að henda út grasinu þegar lögreglan stoppaði hann. X... sagði J... frá því að lögreglan ætti erfitt með að sanna grasið á D....
Við yfirheyrslur vildi ákærði ekki tjá sig um efni þessara símtala, né heldur um einstök atriði sem þar koma fram.
Skýrslur ákærða og vitna fyrir dómi.
Ákærði neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi um sakargiftir en var tilbúinn að tjá sig um eigin neyslu, en lögmaður ákærða gaf yfirlýsingu þess efnis að ákærði hafnaði því alfarið að hann hafi ætlað að selja eða dreifa efnum sem hann átti sjálfur. Aðspurður kvaðst kærði eingöngu notast við amfetamín en sagðist ekki vera viss um hve mikið hann notaði, ef hann ætti að skjóta á það myndi hann halda að það væru eitt til þrjú grömm á dag. Ákærði kvaðst hafa notað amfetamín frá árinu 1995 og sagðist reyna að kaupa mikið magn í einu til að fá efnið ódýrt. Ákærði kvaðst ekki vera í vinnu.
Vitnið Helgi Pétur Ottesen, lögregluvarðstjóri bar fyrir dómi að lögreglan á Akranesi hefði hafið rannsókn á þessu máli töluvert áður en fyrsta handtakan átti sér stað. Lögreglan hefði fengið ábendingar frá almennum borgurum og þeim sem stóðu ákærða nær, þess efnis að ákærði væri að selja fíkniefni á Akranesi. Í framhaldinu hafi lögreglan hafið símhlustun og grunur lögreglu um sölu ákærða á fíkniefnum hafi verið staðfestur fljótlega eftir það. Aðspurt sagði vitnið að orðin grænt, gaurar, gras, smókur og fleiri orð sem notuð hafi verið í samtölum ákærða í hleruninni væru þekkt orð hjá fíkniefnaneytendum yfir kannabisefni, einnig kom fram hjá vitninu að hann hafi unnið í lögreglunni í átta ár og unnið mikið í fíkniefnamálum og það væri alveg ljóst að þessi orð vísuðu til kannabisefna. Sagðist vitnið hafa komið nálægt nokkrum símhlerunum og ekki muna eftir því að það hafi verið sögð með berum orðum heiti fíkniefna í síma, alltaf væru notuð gælunöfn sem vísuðu í fíkniefni. Aðspurt kvað vitnið að í sínum huga væri það fullkomlega ljóst að bækur, sem voru haldlagðar hjá ákærða, væru skuldalistar. Einnig kom fram hjá vitninu að það teldi ekki óeðlilegt þótt ekki væru nöfn aðila á listanum, heldur eingöngu skammstafanir, sem ákærði einn vissi hvað stæði fyrir. Aðspurt kvaðst vitnið vera fullvisst um að ákærði hafi staðið í töluvert mikilli sölu og dreifingu á umræddum tíma. Aðspurt kvaðst vitnið geta staðfest það að menn hefðu verið handteknir, sem bentu á það að þeir hefðu keypt fíkniefni af ákærða. Aðspurt sagði vitnið að ekki hefðu verið teknar skýrslur af neinum þeirra sem voru nafngreindir í samantekt af símhlerunum, nema D... og hann hefði staðfest að hafa keypt fíkniefni af ákærða. Aðspurt sagði vitnið að umtalsverður verðmunur væri á gramminu af amfetamíni og kannabisefnum og vitnið hafi oft og tíðum getað lesið úr umræddum skuldalista hvað var verið að selja í hvert skiptið. Aðspurt sagði vitnið að pakkningarefni þurfi ekki alltaf að vera hjá fíkniefnunum þar sem þau eru blönduð og verkuð, sellófan filma gæti þess vegna verið geymd í eldhússkúffu. Aðspurt kvaðst vitnið telja að þau orð sem voru notuð í símtölunum bentu til sölu á kannabisefnum en það væri aldrei sagt með réttu nafni hverju væri verið að falast eftir og hann myndi ekki hvort hann hafi getað lesið úr samtölum ákærða hvort væri verið að falast eftir öðrum fíkniefnum. Vitnið var spurt um hvað „ódýrari týpuna“ stæði fyrir í hljóðskrá nr. 5 og taldi vitnið það standa fyrir ódýrari týpuna af amfetamíni.
Niðurstaða
Ákæra 2. febrúar 2012.
Ákærði hefur fyrir dómi játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í ákæruliðum I, IV, VI og VII. Ákærði hefur einnig játað sök samkvæmt ákærulið II, III og V að því undanskildu að hann viðurkennir aðeins að hafa haft efnin, sem tilgreind eru í ákæruliðum, í vörslum sínum, en neitar að það hafi verið í dreifingarskyni, hann hafi aðeins verið með efnin til eigin nota.
Ákærði neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi og svara spurningum sem vörðuðu sakarefnin. Aftur á móti bar ákærði fyrir dómi að hann teldi daglega neyslu sína á amfetamíni vera eitt til þrjú grömm á dag. Þegar litið er til þess magns sem ákærði hefur verið fundinn sekur um að hafa í sinni vörslu á um fimm vikna tímabili, eða tæplega 85 g af sterku amfetamíni, 4,56 g af maríhúana og 1,59 g af tóbaksblönduðu kannabis, er ólíkindablær á þeim framburði ákærða að hann hafi verið með öll þessi efni á heimili sínu til eigin nota, og sé litið til þess að ekkert liggur fyrir um að hann hafi haft einhverjar tekjur síðustu ár til að fjármagna kaup á þeim efnum, rennir það stoðum undir það að ákærði hafi staðið í sölu fíkniefna. Einnig kemur fram í framburði ákærða í skýrslutöku hjá lögreglu hinn 31. mars 2011 að ákærði hafi fengið adrenalínampúlur hjá vini sínum, sem hafi beðið hann um að koma þeim í verð. Þetta kemur einnig fram í hljóðskrá lögreglu frá 22. apríl 2011 þar sem D... óskar eftir því við ákærða að hann láti hann fá tvo. Ákærði kvaðst ætla að redda því eftir mat. Lögreglan á Akranesi tók skýrslu af D... hinn 30. október 2011. Þar útskýrði D... að í umræddu símtali hafi hann verið að falast eftir kannabisefnum af ákærða og hafi hann keypt af ákærða efni. Ennfremur er vert að líta til matsgerða Jakobs Kristinssonar dósents vegna ákæruliða III og V. Kemur þar fram að styrkur amfetamínbasa í sýninu í ákærulið III hafi verið 8,9% sem samsvari 12% af amfetamínsúlfati og í ákærulið V hafi styrkur amfetamínbasa í sýninu verið 8,9% sem samsvari 12% af amfetamínsúlfati. Í gögnum málsins kemur fram að götustyrkleiki amfetamíns sé um 5,8% skv. upplýsingum frá SÁÁ. Þessi hái styrkleiki efnisins og sú staðreynd að íblöndunarefni og sex vogir sem mæla af nákvæmninni í 0,01 g, voru haldlögð á heimili ákærða, ásamt listum sem bera með sér að vera skuldalistar, þykir vera sönnun um að varsla þessara efna hafi verið í söluskyni.
Samkvæmt öllu þessu þykir fram komin sönnun um að ákærði hafi haft í vörslu sinni fíkniefni í sölu og dreifingu, samanber ákærulið II, III og V.
Ákæra 7. febrúar 2012.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru, en kveður játningu einskorðast við þrautavarakröfu í ákæru. Ákæruvaldið hefur fallist á þá afstöðu ákærða. Samkvæmt þessu verður dómur lagður á málið að þessu leyti án frekari sönnunarfærslu, sbr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þetta brot sem réttilega er heimfært til laga í ákæruskjali.
Viðurlög Ákærði hefur unnið sér til refsingar fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.
Við ákvörðun refsingar þykir verða að líta til þess sérstaklega að brot ákærða vörðuðu vörslu fíkniefna til sölu og dreifingar. Einnig ber að líta til þess að ákærði hefur sýnt einbeittan brotavilja og horfir það honum til refsiþyngingar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði er einnig sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og í þrjú skipti fyrir akstur sviptur ökurétti. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði frá árinu 1999 hlotið sex dóma og tvisvar sinnum gengist undir viðurlög hjá lögreglu fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Við ákvörðun refsingar nú hefur áhrif dómur frá 20. júní 2011 en með honum var ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 254. gr. almennra hegningarlaga, 1., sbr. 2., mgr. 45a gr. og 48. gr. umferðarlaga. Var refsing ákveðin tveggja mánaða fangelsi og svipting ökuréttar ævilangt.
Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu þess dóms og ber því að tiltaka refsingu ákærða sem hegningarauka, sbr. 78. gr. almennar hegningarlaga.
Með þeim brotum sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í máli þessu hefur hann í fjórða sinn verið sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einnig er ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti í þrjú skipti. Að þessu gættu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.
Með vísan til lagaákvæða sem í ákæru greinir verður áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Með vísan til þeirra lagaákvæða sem greinir í ákæru verða gerð upptæk þau fíkniefni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Samkvæmt 1. mgr. 218. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns sem þykja hæfilega ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti svo sem greinir í dómsorði.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X..., sæti fangelsi í fjóra mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði sæti upptöku á 84,35 g af amfetamíni, 4,5 g af maríhúana, 1,59 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 2,08 g af ecstasy.
Ákærði greiði 815.376 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefán Karls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns, 301.200 krónur, og ferðakostnað verjandans, 26.862 krónur.
Allan V. Magnússon