Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-395/2010:

Ákæruvaldið

(Halla Bergþóra Björnsdóttir sýslumaður)

gegn

Sigurði Kára Ásbjörnssyni

Þjófnaður.

Maður sakfelldur fyrir þjófnað.

Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 26. október 2010 á hendur ákærða, Sigurði Kára Ásbjörnssyni, kt. …, Vesturgötu 24 á Akranesi. Málið var dómtekið 2. desember 2010.

Í ákæruskali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir þjófnað, með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 25. september 2010, að Deildartúni 6, Akranesi, stolið fartölvu HP Compaq 6910p T8300 auk snúra, fartölvuflakkara, stafrænni myndavél Song ásamt tösku og minniskubb og farsíma Nokia Classic 3702 IMEI af Eðvaldi Inga Árnasyni, kt. ….

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsilaga í ákæru.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki mál á sakaskrá sem áhrif hafa við ákvörðun refsingar.

Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að ákærði hefur greiðlega gengist við broti sínu. Að þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, en rétt þykir að öllu virtu að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Sigurður Kári Ásbjörnsson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Benedikt Bogason