Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-10/2008:

S-10/2008:

Ákæruvaldið

(Jón Einarsson fulltrúi)

gegn

Adolfi Braga Hermannssyni

Mál

þetta höfðaði lögreglustjórinn í Borgarnesi með ákæru 16. janúar 2008 á hendur

ákærða, Adolf Braga Hermannssyni, kt. ..., Brekkugötu 7 A, Akureyri. Málið var

dómtekið 3. mars 2008.

Í ákæruskjali segir að málið sé

höfðað gegn ákærða fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, en ákærða er

gefið að sök „að hafa fimmtudaginn 2. ágúst 2007 haft í fórum sínum 0,72 grömm

af amfetamíni, sem hann framvísaði sjálfur til lögreglu og 16,46 grömm af

amfetamíni, sem fundust í bifreiðinni UJ-364 við leit lögreglu sem fram fór

eftir að bifreiðin var stöðvuð vegna fíkniefnaeftirlits.

Telst

þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni, nr.

65/1974, með síðari breytingum, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um

ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari

breytingum.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði

hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að

sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja

dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til

refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt

sakavottorði ákærða á hann að baki nokkurn sakaferil sem nær allt aftur til

ársins 1997. Hefur ákærði hlotið tíu dóma, þrisvar sinnum gengist undir

viðurlög með lögreglustjórasátt og einu sinni fyrir dómi með viðurlagaákvörðun.

Mál þessi varða brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um

dýravernd og lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði hlaut síðast dóm 20. febrúar

2008 fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og var refsing

ákveðin fangelsi í 3 mánuði skilorðsbundið í þrjú ár. Þar á undan hlaut ákærði

dóm 29. nóvember 2007 fyrir brot gegn vopnalögum og lögum um ávana- og

fíkniefni og var refsing ákveðin 350.000 króna sekt.

Brot

(Stefán Karl Kristjánsson hdl)

Ávana- og fíkniefni.

Maður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.

Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn í Borgarnesi með ákæru 16. janúar 2008 á hendur ákærða, Adolf Braga Hermannssyni, kt. ..., Brekkugötu 7 A, Akureyri. Málið var dómtekið 3. mars 2008.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, en ákærða er gefið að sök „að hafa fimmtudaginn 2. ágúst 2007 haft í fórum sínum 0,72 grömm af amfetamíni, sem hann framvísaði sjálfur til lögreglu og 16,46 grömm af amfetamíni, sem fundust í bifreiðinni UJ-364 við leit lögreglu sem fram fór eftir að bifreiðin var stöðvuð vegna fíkniefnaeftirlits.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt sakavottorði ákærða á hann að baki nokkurn sakaferil sem nær allt aftur til ársins 1997. Hefur ákærði hlotið tíu dóma, þrisvar sinnum gengist undir viðurlög með lögreglustjórasátt og einu sinni fyrir dómi með viðurlagaákvörðun. Mál þessi varða brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um dýravernd og lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði hlaut síðast dóm 20. febrúar 2008 fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og var refsing ákveðin fangelsi í 3 mánuði skilorðsbundið í þrjú ár. Þar á undan hlaut ákærði dóm 29. nóvember 2007 fyrir brot gegn vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni og var refsing ákveðin 350.000 króna sekt. Brot það sem ákærði hefur nú verkið sakfelldur fyrir var framið fyrir uppkvaðningu dómanna frá 29. nóvember 2007 og 20. febrúar 2008. Samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga ber að taka upp skilorð samkvæmt síðargreindum dómi og dæma þá refsingu með í þessu máli. Ákærða verður því gerð refsing vegna beggja málanna í einu lagi en refsinguna ber að tiltaka eftir reglum 77. og 78. gr. laganna. Að þessu gættu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fjögurra mánaða fangelsi en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, með síðar breytingum.

Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 skal dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Dæmist ákærði því til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, sem þykir hæfilega ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti svo sem greinir í dómsorði. Jafnframt verður ákærða gert að greiða útlagðan ferðakostnað verjanda.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Adolf Bragi Hermannsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar, héraðsdómslögmanns, 69.720 krónur, og ferðakostnað hans að fjárhæð 11.532 krónur.

Benedikt Bogason