Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 15. maí 2007.
Mál nr. S-59/2007:
Ákæruvaldið
(Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Tómasi Jakobi Sigurðssyni
Lykilorð
Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir hegningarlaga-, umferðarlaga- og fíkniefnabrot með því að hafa heimildarlaust flutt skráningarmerki bifreiðar á bifreið í hans eigu og ekið síðan þeirri bifreið án þess að hún væri með lögboðnar tryggingar og án þess að bifreiðin væri skráð og að hafa haft í vörslum sínum lítilræði af amfetamíni, maríhúana og tóbaksblönduðu kannabisefni.
Mál þetta, sem dómtekið var 26. apríl sl., höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 9. mars 2007 á hendur ákærða, Tómasi Jakobi Sigurðssyni, kt. ..., til heimilis að Hverfisgötu 86, Reykjavík; „fyrir hegningarlaga-, umferðarlaga- og fíkniefnabrot með því að hafa miðvikudaginn 27. september 2006, heimildarlaust, flutt skráningarmerki bifreiðar innar NM-698 á bifreið í hans eigu af gerðinni Dodge, sem hafði fastanúmerið EN- 288, ekið síðan þeirri bifreið án þess að hún væri með lögboðnar tryggingar og án þess að bifreiðin væri skráð og að hafa haft í vörslum sínum 2,78 g af amfetamíni, 0,37 g af maríhúana og 0,26 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, en lögreglan fann efnin við leit í bifreið ákærða.
Telst þetta varða við 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum og 27. gr. reglugerðar nr. 78/1997, sbr. 64. gr. og 93. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðunum breytingum og 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 með áorðnum breytingum og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. “
I.
Ákærði kom fyrir dóm 26. apríl sl. og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans teljast því sönnuð og varða þau við tilgreind laga- og reglugerðaákvæði í ákæru. Samkvæmt öllu þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði langan sakaferil að baki en á tímabilinu frá 1979 til 1995 hlaut hann þrettán refsidóma, einkum vegna hegningarlagabrota. Á árinu 2005 gekkst hann síðan í tvígang undir sektargerð hjá lögreglustjóra vegna fíkniefnabrota. Þá var hann 17. nóvember 2006 dæmdur til greiðslu 30.000 króna sektar fyrir samskonar brot.
Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms. Refsingu ákærða ber því að ákveða samkvæmt fyrirmælum 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að því athuguðu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin 150.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tólf daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Tómas Jakob Sigurðsson, greiði 150.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tólf daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Benedikt Bogason