Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-56/2007:

Ákæruvaldið

(Daði Jóhannesson fulltrúi)

gegn

Jóni Þorvaldi Walterssyni

Karlmaður sakfelldur fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélstjóra, lögum um lögskráningu sjómanna og lögum um eftirlit með skipum.

Mál þetta, sem dómtekið var 11. apríl sl., höfðaði lögreglustjórinn í Stykkishólmi með ákæru 6. mars 2007 á hendur ákærða, Jóni Þorvaldi Walterssyni, kt. ..., til heimilis að Hringbraut 110, Reykjavík; „fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélstjóra, lögum um lögskráningu sjómanna og lögum um eftirlit með skipum.

Ákærða, þá skipstjóra fiskibátsins Fanneyjar RE-31/1053, er gefið að sök að hafa að morgni fimmtudagsins 5. október 2006 látið úr höfn frá Patreksfirði án þess að í áhöfn væri yfirvélstjóri með atvinnuréttindi, án þess að áhöfnin væri lögskráð á bátinn og á bátnum óhaffærum, því hann hafði ekki fengið útgefið haffærisskírteini, en báturinn var dreginn til hafnar í Ólafsvík daginn eftir.

Telst þetta varða við b-lið 1. mgr. 2. gr. sbr. 14. gr. laga um atvinnuréttindi vélstjóra nr. 113/1984, 1. mgr. 2. gr. og 4. gr. sbr. 17. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987 og 1. mgr. 9. gr. og 1. og 3. tl. 16. gr. sbr. 29. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 35/1993.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

I.

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 21. mars 2007 og birt fyrir ákærða 29. sama mánaðar. Við þingfestingu málsins 11. apríl sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.

Með vísan til áðurgreindrar lagagreinar þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða teljast því sönnuð og varða þau við b-lið 1. mgr. 2. gr. sbr. 14. gr. laga um atvinnuréttindi vélstjóra nr. 113/1984, 1. mgr. 2. gr. og 4. gr. sbr. 17. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987 og 1. mgr. 9. gr. og 1. og 3. tl. 17. gr. sbr. 29. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003. Í ákæru er ranglega vísað til samhljóða ákvæða eldri laga um eftirlit með skipum nr. 35/1993. Með heimild í 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 þykir eigi að síður rétt að dæma áfall á hendur ákærða enda ljóst að vörnum hans hefur ekki verið áfátt vegna þessara mistaka.

II.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 150.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tólf daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa.

Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari en uppkvaðning dómsins hefur dregist lítillega vegna starfsanna dómara.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Jón Þorvaldur Waltersson, greiði 150.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tólf daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Benedikt Bogason