Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-437/2007:

S-437/2007:

Ákæruvaldið

(Jón Einarsson fulltrúi)

gegn

Ágústi Erni Long

Sævar Örn Eggertssyni

Mál

þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 30. nóvember 2007 á hendur

ákærðu, Ágústi Erni Long, kt. ..., Sóltúni 3 A í Borgarbyggð, og Sævari Erni

Eggertssyni, kt. ..., Laufási í Borgarbyggð. Málið var dómtekið 3. janúar 2008.

Í

ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir líkamsárás, með því að

hafa mánudaginn 17. júlí 2006, í almennu rými í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi

í Borgarnesi við innganginn að verslun Samkaupa, veist að Örlygi Sigurðssyni,

kt. ..., og ákærði Sævar Örn brennt hann á hálsi með logandi sígarettu og

ákærði Ágúst Örn brennt hann á höfði með logandi sígarettu, með þeim

afleiðingum að hann hlaut brunaáverka á framanverðum hálsi, sem við

læknisskoðun þann 18. júlí 2006 lýsti sér sem sprungin blaðra um ½ cm að stærð

og 2 cm roði í kring.

Telst

þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr.

síðari breytingar.

Þess

er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.“

I.

Ákærði

Ágúst hefur fyrir dómi afdráttarlaust játað að hafa framið það brot sem honum

er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Að því er hann

varðar eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð

opinberra mála, nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði Ágúst sakfelldur

fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði

Sævar hefur jafnframt játað skýlaust að hafa framið það brot sem honum er gefið

að sök og er játning hans í samræmi við gögn málsins. Að því er hans þátt

varðar eru því einnig efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um

meðferð opinberra mála, nr. 19/1991. Á þessum grundvelli verður ákærði Sævar

sakfelldur fyrir brotið sem réttilega er fært til refsilaga í ákæru.

II.

Við

ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærðu báðir hafa greiðlega gengist

við broti sínu. Jafnframt verður að gæta þess að þegar brotin voru framin var

ákærði Ágúst 15 ára en ákærði Sævar 17 ára.

Ákærði

Ágúst er með hreint sakavottorð. Ákærði Sævar hefur hins vegar hlotið dóm sem

gekk 12. nóvember 2007 fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga. Með

dóminum var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í 2 ár.

Brot

það sem ákærði Sævar hefur nú verið sakfelldur fyrir var framið fyrir uppsögu

dómsins 12. nóvember 2007. Hvort sem refsing samkvæmt þeim dómi verður dæmd upp

eða hún ákveðin sér í lagi vegna þessa máls ber að tiltaka refsingu eftir

reglum 78. gr. almennra hegningarlaga.

Í

kjölfar brotsins sama dag lagði brotaþoli fram kæru sína hjá lögreglu. Þrjú

vitna gáfu skýrslu hjá lögreglunni í Borgarnesi á tímabilinu frá 3. desember

2006 til 20. febrúar 2007. Ákærðu voru síðan yfirheyrðir hjá lögreglu 22. maí

2007 og 24. júní sama ár og játuðu brotið. Ákæra var síðan gefin út 30.

nóvember 2007 eða liðlega 16 mánuðum eftir að brotið var framið 17. júlí 2006.

Þessi dráttur á meðferð málsins hefur ekki verið skýrður, en hann brýtur í bága

við meginreglu 1. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 og er í andstöðu við 70. gr.

stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefur þetta

áhrif við ákvörðun refsingar.

virtum þeim brotum sem ákærðu hafa verið sakfelldir fyrir og að öllu því gættu

Líkamsárás.

Tveir drengir sakfelldir fyrir líkamsárás en ekki gerð sérstök refsing.

Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 30. nóvember 2007 á hendur ákærðu, Ágústi Erni Long, kt. ..., Sóltúni 3 A í Borgarbyggð, og Sævari Erni Eggertssyni, kt. ..., Laufási í Borgarbyggð. Málið var dómtekið 3. janúar 2008.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir líkamsárás, með því að hafa mánudaginn 17. júlí 2006, í almennu rými í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi í Borgarnesi við innganginn að verslun Samkaupa, veist að Örlygi Sigurðssyni, kt. ..., og ákærði Sævar Örn brennt hann á hálsi með logandi sígarettu og ákærði Ágúst Örn brennt hann á höfði með logandi sígarettu, með þeim afleiðingum að hann hlaut brunaáverka á framanverðum hálsi, sem við læknisskoðun þann 18. júlí 2006 lýsti sér sem sprungin blaðra um ½ cm að stærð og 2 cm roði í kring.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. síðari breytingar.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.“

I.

Ákærði Ágúst hefur fyrir dómi afdráttarlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Að því er hann varðar eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði Ágúst sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði Sævar hefur jafnframt játað skýlaust að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök og er játning hans í samræmi við gögn málsins. Að því er hans þátt varðar eru því einnig efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Á þessum grundvelli verður ákærði Sævar sakfelldur fyrir brotið sem réttilega er fært til refsilaga í ákæru.

II.

Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærðu báðir hafa greiðlega gengist við broti sínu. Jafnframt verður að gæta þess að þegar brotin voru framin var ákærði Ágúst 15 ára en ákærði Sævar 17 ára.

Ákærði Ágúst er með hreint sakavottorð. Ákærði Sævar hefur hins vegar hlotið dóm sem gekk 12. nóvember 2007 fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga. Með dóminum var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í 2 ár.

Brot það sem ákærði Sævar hefur nú verið sakfelldur fyrir var framið fyrir uppsögu dómsins 12. nóvember 2007. Hvort sem refsing samkvæmt þeim dómi verður dæmd upp eða hún ákveðin sér í lagi vegna þessa máls ber að tiltaka refsingu eftir reglum 78. gr. almennra hegningarlaga.

Í kjölfar brotsins sama dag lagði brotaþoli fram kæru sína hjá lögreglu. Þrjú vitna gáfu skýrslu hjá lögreglunni í Borgarnesi á tímabilinu frá 3. desember 2006 til 20. febrúar 2007. Ákærðu voru síðan yfirheyrðir hjá lögreglu 22. maí 2007 og 24. júní sama ár og játuðu brotið. Ákæra var síðan gefin út 30. nóvember 2007 eða liðlega 16 mánuðum eftir að brotið var framið 17. júlí 2006. Þessi dráttur á meðferð málsins hefur ekki verið skýrður, en hann brýtur í bága við meginreglu 1. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 og er í andstöðu við 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefur þetta áhrif við ákvörðun refsingar.

Að virtum þeim brotum sem ákærðu hafa verið sakfelldir fyrir og að öllu því gættu sem hér hefur verið rakið verður þeim ekki gerð refsing. Í samræmi við þess niðurstöðu skal skilorðsdómur á hendur ákærða Sævari standa óhaggaður.

Enginn kostnaður leiddi af rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómi.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, Ágúst Erni Long, er ekki gerð refsing.

Ákærða, Sævari Erni Eggertssyni, er ekki gerð refsing.

Benedikt Bogason