Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 9. janúar 2008.
Mál nr. S-424/2007:
S-424/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Jóhannesson fulltrúi)
gegn
Þorkeli Marinó Magnússyni
Mál
þetta höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi með ákæru 28. nóvember 2007 á
hendur ákærða, Þorkeli Marinó Magnússyni, kt. ..., Fagurhólstúni 12 á
Grundarfirði. Málið var dómtekið 12. desember sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé
höfðað gegn ákærða fyrir fíkniefnaakstur og fíkniefnabrot, en ákærða er gefið
að sök „að hafa síðdegis föstudaginn 21. september 2007 ekið Isuzu
sendibifreiðinni AJ217, undir áhrifum ólögmætra ávana- og fíkniefna um
Snæfellsnesveg við Hamragarða í Eyja- og Miklaholtshreppi og að hafa á sama
tíma átt í sínum vörslum 0,11 grömm af amfetamíni, 0,89 grömm af kókaíni og
0,36 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Í
þvagsýni úr ákærða fannst amfetamín, kókaín og tetrahydrókannabínólsýra.
Telst
þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga
nr. 50/1987, og 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974
og 2., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni nr. 233/2001, sbr.
fylgiskjal I með reglugerðinni.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga og til að sæta
upptöku á framangreindu haldlögðu amfetamíni, kókaíni og kannabisefni samkvæmt
6. mgr. 5. gr. nefndra laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr.
reglugerðar nr. 233/2001.“
Með
ákæru 27. nóvember 2007 höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi mál á hendur
ákærða og var það mál sameinað þessu máli. Í ákæruskjali segir að málið sé
höfðað gegn ákærða fyrir fíkniefna- og ölvunarakstur, en ákærða er gefið að sök
„að hafa að kvöldi sunnudagsins 12. ágúst 2007 ekið Honda fólksbifreiðinni
DP506, undir áhrifum áfengis og ólögmætra ávana- og fíkniefna suður
Snæfellsnesveg við athafnasvæði Loftorku í Borgarbyggð.
Í
blóðsýni sem tekið var úr ákærða mældist alkóhól 0,59‰ og í þvagsýni fannst
tetrahydrókannabínólsýra.
Telst
þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1.
mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga ...“
Þá
höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi mál á hendur ákærða með annarri ákæru
27. nóvember 2007 og var það mál einnig sameinað þessu máli. Í ákæruskjali
segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir umferðalagabrot og fíkniefnabrot, en
ákærða er gefið að sök „að hafa að kvöldi föstudagsins 17. ágúst 2007 ekið
Toyota fólksbifreiðinni AE853, undir áhrifum ólögmætra ávana- og fíkniefna um
gatnamót Vatnaleiðar og Snæfellsnesvegar og að hafa á sama tíma haft meðferðis
1,53 grömm af amfetamíni og 3 ecstasy töflur sem hann hafði keypt sér fyrr um
daginn í Reykjavík.
Í
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og að hafa fíkniefni í vörslum sínum.
Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi með ákæru 28. nóvember 2007 á hendur ákærða, Þorkeli Marinó Magnússyni, kt. ..., Fagurhólstúni 12 á Grundarfirði. Málið var dómtekið 12. desember sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir fíkniefnaakstur og fíkniefnabrot, en ákærða er gefið að sök „að hafa síðdegis föstudaginn 21. september 2007 ekið Isuzu sendibifreiðinni AJ217, undir áhrifum ólögmætra ávana- og fíkniefna um Snæfellsnesveg við Hamragarða í Eyja- og Miklaholtshreppi og að hafa á sama tíma átt í sínum vörslum 0,11 grömm af amfetamíni, 0,89 grömm af kókaíni og 0,36 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Í þvagsýni úr ákærða fannst amfetamín, kókaín og tetrahydrókannabínólsýra.
Telst þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni nr. 233/2001, sbr. fylgiskjal I með reglugerðinni.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga og til að sæta upptöku á framangreindu haldlögðu amfetamíni, kókaíni og kannabisefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Með ákæru 27. nóvember 2007 höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi mál á hendur ákærða og var það mál sameinað þessu máli. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir fíkniefna- og ölvunarakstur, en ákærða er gefið að sök „að hafa að kvöldi sunnudagsins 12. ágúst 2007 ekið Honda fólksbifreiðinni DP506, undir áhrifum áfengis og ólögmætra ávana- og fíkniefna suður Snæfellsnesveg við athafnasvæði Loftorku í Borgarbyggð.
Í blóðsýni sem tekið var úr ákærða mældist alkóhól 0,59‰ og í þvagsýni fannst tetrahydrókannabínólsýra.
Telst þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga ...“
Þá höfðaði lögreglustjórinn á Snæfellsnesi mál á hendur ákærða með annarri ákæru 27. nóvember 2007 og var það mál einnig sameinað þessu máli. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir umferðalagabrot og fíkniefnabrot, en ákærða er gefið að sök „að hafa að kvöldi föstudagsins 17. ágúst 2007 ekið Toyota fólksbifreiðinni AE853, undir áhrifum ólögmætra ávana- og fíkniefna um gatnamót Vatnaleiðar og Snæfellsnesvegar og að hafa á sama tíma haft meðferðis 1,53 grömm af amfetamíni og 3 ecstasy töflur sem hann hafði keypt sér fyrr um daginn í Reykjavík.
Í blóðsýni sem tekið var úr ákærða mældist amfetamín 30 ng/ml og í þvagsýni fannst tetrahydrókannabínólsýra og amfetamín.
Telst þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni nr. 233/2001, sbr. fylgiskjal I með reglugerðinni.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga og til að sæta upptöku á framangreindu haldlögðu amfetamíni og ecstasy töflum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra laga um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 1. nóvember 2007 vegna ákæru 28. sama mánaðar kemur fram að amfetamín, kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra hafi fundist í þvagi ákærða en amfetamín, kókaín eða tetrahýdrókannabínól hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóðinu. Fram kemur að amfetamín og kókaín séu ávana- og fíkniefni með örvandi verkun á miðtaugakerfið. Heimilt sé að nota amfetamín sem lyf. Tetrahýdrókannabínól sé hið virka efni í kannabis og tetrahýdrókannabínólsýra sé óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Amfetamín, kókaín eða tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi, án þess að amfetamín, kókaín eða tetrahýdrókannabínól sé að finna í blóði, bendi til þess að ökumaður hafi neytt amfetamíns, kókaíns og kannabis, en ekki verið lengur undir áhrifum þeirra þegar blóðsýnið hafi verið tekið. Amfetamín, kókaín og tetrahýdrókannabínól séu í flokki ávana- og fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar þvagsýni hafi verið tekið, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.
Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 24. ágúst 2007 vegna fyrri ákæru 27. nóvember sama ár kemur fram að alkóhól í blóði hafi mælst 0,59‰. Einnig hafi tetrahýdrókannabínólsýra fundist í þvagi ákærða en tetrahýdrókannabínól hafi ekki verið mælanlegt í blóðinu. Fram kemur að tetrahýdrókannabínól sé hið virka efni í kannabis og tetrahýdrókannabínólsýra sé óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi, án þess að tetrahýdrókannabínól sé að finna í blóði, bendi til þess að ökumaður hafi neytt kannabis, en ekki verið lengur undir áhrifum þess þegar blóðsýnið hafi verið tekið. Tetrahýdrókannabínólsýra sé í flokki ávana- og fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar þvagsýni hafi verið tekið, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.
Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 27. september 2007 vegna síðari ákæru 27. nóvember sama ár kemur fram að amfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra hafi fundist í þvagi ákærða og 30 ng/ml af amfetmíni hafi mælst í blóði. Tetrahýdrakannabínól hafi ekki mælst í blóði. Fram kemur að amfetamín sé ávana- og fíkniefni með örvandi verkun á miðtaugakerfi. Heimilt sé að nota það sem lyf. Styrkur þess í blóði hafi verið eins og búast megi við eftir töku í lækningalegum skömmtum. Tetrahýdrókannabínól sé hið virka efni í kannabis og tetrahýdrókannabínólsýra sé óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi, án þess að tetrahýdrókannabínól sé að finna í blóði, bendi til þess að ökumaður hafi neytt kannabis, en ekki verið lengur undir áhrifum þess þegar blóðsýnið hafi verið tekið. Amfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra séu í flokki ávana- og fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar þvagsýni hafi verið tekið, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið öll þau brot sem honum eru gefin að sök í ákærum og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir öll brotin, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákærum.
Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann tvisvar sinnum gengist undir viðurlög með lögreglustjórasátt, annars vegar með sátt 20. ágúst 2003 vegna brots gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. umferðarlaga og hins vegar með sátt 14. október 2006 vegna brots gegn 37. gr. sömu laga.
Refsing ákærða þykir að broti hans virtu hæfilega ákveðin 300.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 20 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Einnig verður ákærði með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sviptur ökurétti í tvö ár frá birtingu dóms þessa að telja.
Þá verður ákærða gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum, svo sem greinir í dómsorði.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Með vísan til framlagðs sakarkostnaðar yfirlits dæmist ákærði til að greiða 378.813 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan, en uppsaga dómsins hefur dregist lítillega vegna starfsanna dómarans.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Þorkell Marinó Magnússon, greiði 300.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 20 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði er sviptur ökurétti í tvö ár frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði sæti upptöku á 1,64 grömmum af amfetamíni, 0,89 grömmum af kókaíni, 0,36 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni og þremur ecstasy töflum.
Ákærði greiði 378.813 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Bogason