Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-402/2007:

S-402/2007:

Ákæruvaldið

(Jón Einarsson fulltrúi)

gegn

Einar Helgi Zoéga

Mál

þetta höfðaði lögreglustjórinn í Borgarnesi með ákæru 26. nóvember 2007 á

hendur ákærða, Einari Helga Zoega, kt. ..., Tjarnarstíg 6 á Seltjarnarnesi.

Málið var dómtekið 22. janúar 2008.

Í ákæruskjali segir að málið sé

höfðað gegn ákærða fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um ávana- og

fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim, en ákærða er gefið að sök „að hafa

aðfaranótt laugardagsins 16. júní 2007, ekið bifreiðinni MY-116, ófær um að

stjórna henni örugglega vegna neyslu ávana- og fíkniefna sem bönnuð er skv.

(Stefán Karl Kristjánsson hdl)

Ávana- og fíkniefni.

Maður sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og að hafa fíkniefni í vörslum sínum.

Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn í Borgarnesi með ákæru 26. nóvember 2007 á hendur ákærða, Einari Helga Zoega, kt. ..., Tjarnarstíg 6 á Seltjarnarnesi. Málið var dómtekið 22. janúar 2008.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim, en ákærða er gefið að sök „að hafa aðfaranótt laugardagsins 16. júní 2007, ekið bifreiðinni MY-116, ófær um að stjórna henni örugglega vegna neyslu ávana- og fíkniefna sem bönnuð er skv. lögum um ávana- og fíkniefni eða reglugerðum skv. þeim (magn amfetamíns í blóði 55 ng/ml, magn kókaíns í blóði 20 ng/ml magn tetrahýdrókannabínóls í blóði 0,9, í þvagi fundust einnig metamfetamín og MDMA), eftir Vesturlandsvegi frá Reykjavík áleiðis til Akureyrar, þar til á vegkafla á Borgarbraut við Sandvík, Borgarbyggð, þar sem lögreglan stöðvaði aksturinn, og með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 16. júní 2007, haft í fórum sínum 0,31 grömm af hassi sem fundust undir öskubakka í bifreiðinni MY-116 við leit lögreglu sem fram fór eftir að Einar Helgi var handtekinn vegna fíkniefnaakstursins.

Telst þetta varða við 1. mgr. 45. gr. a., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar, skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga.“

Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 16. júlí 2007 kemur fram að amfetamín, metamfetamín, MDMA, kókaín og kannabínóíðar hafi fundist í þvagi ákærða. Í blóði hans hafi mælst amfetamín 55 ng/ml, kókaín 20 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 0,9 ng/ml. Metamfetamín og MDMA hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóði. Fram kemur að amfetamín, metamfetamín, MDMA og kókaín séu ávana- og fíkniefni með örvandi verkun á miðtaugakerfið. Heimilt sé að nota amfetamín sem lyf. Amfetamín geti komið fyrir sem umbrotsefni metamfetamíns. Tetrahýdrókannabínól sé hið virka efni í kannabis. Amfetamín, metamfetamín, MDMA, kókaín og tetrahýdrókannabínól séu í flokki ávana- og fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar blóðsýni hafi verið tekið, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði hefur tvisvar sinnum gengist undir viðurlög með lögreglustjórasátt, annars vegar 13. apríl 1998 vegna fíkniefnabrots og hins vegar 14. apríl 2000 vegna brots gegn 1., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga. Þá gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun 1. apríl 2003 vegna brots gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. umferðarlaga. Með broti sínu nú hefur ákærði í þriðja sinn gerst sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna.

Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi.

Þá þykir rétt, svo sem krafist er í ákæru og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærði dæmist því til að greiða 194.509 krónur vegna töku blóð- og þvagsýnis og öflunar matsgerðar og þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar, héraðsdómslögmanns, er hæfilega þykir ákveðin 55.776 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Samtals verður ákærða því gert að greiða 250.285 krónur í sakarkostnað.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Einar Helgi Zoéga, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er svipur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði í sakarkostnað 250.285 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar, héraðsdómslögmanns, 55.776 krónur.

Benedikt Bogason

Heimildaskrá