Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 21. janúar 2008.
Mál nr. S-397/2007:
S-397/2007:
Ákæruvaldið
(Jón Einarsson fulltrúi)
gegn
Hálfdáni Helga Harðarsyni
Mál
þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 28. nóvember 2007 á hendur
ákærða, Hálfdáni Helga Harðarsyni, kt. ..., Skúlagötu 7 B í Borgarbyggð. Málið
var dómtekið 10. janúar 2008.
Í
ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir brot á lögum um ávana-
og fíkniefni með því að hafa haft í vörslum sínum eftirfarandi fíkniefni og
plöntur til ræktunar fíkniefna sem fundust í húsnæði ákærða að Fíflholtum í
Borgarbyggð við leit lögreglu sem fram fór að kvöldi 8. apríl 2006 og
aðfaranótt 9. sama mánaðar:
110 fullvaxnar kannabisplöntur.
84
st. kannabisplöntur á
mismunandi ræktunarstigum.
99,39
g af kannabislaufi
23,31
g af kannabislaufi
9.488,52
g af kannabislaufi
75
st. kannabisstönglar samtal
1.098,68 g
Í
ákæru er brotið talið varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og
fíkniefni, nr. 65/1974, með síðari breytingum, og 2., sbr. 1. mgr. 14. gr.
reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, nr. 233/2001,
með síðari breytingum.
Þá
er þess krafist í ákæruskjali að ákærði verði dæmdur til refsingar.
I.
Hinn 8. apríl 2006
fór fram húsleit hjá ákærða að Fíflholtum í Borgarbyggð í tilefni af
upplýsingum sem lögreglu höfðu borist um ræktun hans á kannabisplöntum. Við
leitina fundust þær plöntur og fíkniefni sem greinir í ákæru auk tækja og
áhalda til framleiðslunnar.
Í þágu rannsóknar
málsins sendi lögregla sýni af fíkniefnum til rannsóknar hjá Rannsóknastofu
Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Í matsgerð Rannsóknastofunnar frá
8. maí 2006 segir svo:
Efnissýni merkt 8990, nr. 9:
Sýnið var græn, fersk, blómstrandi planta.
Upphafleg þyngd var gefin 322,9 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 63,85 g.
Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var
kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 49 mg/g, sem samsvarar
9,7 mg/g í ferskri plöntu.
Efnissýni merkt 8990, nr. 48:
Sýnið var græn, fersk planta. Upphafleg þyngd
var gefin 234,3 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 44,36. Með smásjárskoðun,
gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn
tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 8,8 mg/g, sem samsvarar 1,7 mg/g í ferskri
plöntu.
Efnissýni merkt 8990, nr. 198:
Sýnið var græn, fersk blómstrandi planta.
Upphafleg þyngd var gefin 140,41 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 39,33. Með
smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var
kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 91 mg/g, sem samsvarar
(Ólafur Örn Svansson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.
Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 28. nóvember 2007 á hendur ákærða, Hálfdáni Helga Harðarsyni, kt. ..., Skúlagötu 7 B í Borgarbyggð. Málið var dómtekið 10. janúar 2008.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa haft í vörslum sínum eftirfarandi fíkniefni og plöntur til ræktunar fíkniefna sem fundust í húsnæði ákærða að Fíflholtum í Borgarbyggð við leit lögreglu sem fram fór að kvöldi 8. apríl 2006 og aðfaranótt 9. sama mánaðar:
110 fullvaxnar kannabisplöntur.
84 st. kannabisplöntur á mismunandi ræktunarstigum.
99,39 g af kannabislaufi 23,31 g af kannabislaufi 9.488,52 g af kannabislaufi 75 st. kannabisstönglar samtal 1.098,68 g Í ákæru er brotið talið varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum, og 2., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þá er þess krafist í ákæruskjali að ákærði verði dæmdur til refsingar.
I.
Hinn 8. apríl 2006 fór fram húsleit hjá ákærða að Fíflholtum í Borgarbyggð í tilefni af upplýsingum sem lögreglu höfðu borist um ræktun hans á kannabisplöntum. Við leitina fundust þær plöntur og fíkniefni sem greinir í ákæru auk tækja og áhalda til framleiðslunnar.
Í þágu rannsóknar málsins sendi lögregla sýni af fíkniefnum til rannsóknar hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Í matsgerð Rannsóknastofunnar frá 8. maí 2006 segir svo:
Efnissýni merkt 8990 nr. 9: Sýnið var græn, fersk, blómstrandi planta. Upphafleg þyngd var gefin 322,9 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 63,85 g. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 49 mg/g, sem samsvarar 9,7 mg/g í ferskri plöntu.
Efnissýni merkt 8990 nr. 48: Sýnið var græn, fersk planta. Upphafleg þyngd var gefin 234,3 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 44,36. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 8,8 mg/g, sem samsvarar 1,7 mg/g í ferskri plöntu.
Efnissýni merkt 8990 nr. 198: Sýnið var græn, fersk blómstrandi planta. Upphafleg þyngd var gefin 140,41 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 39,33. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 91 mg/g, sem samsvarar 25 mg/g í ferskri plöntu.
Efnissýni merkt 8990 nr. 215: Sýnið var græn, fersk blómstrandi planta. Upphafleg þyngd var gefin 100,70 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 30,98. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurri plöntu var 107 mg/g, sem samsvarar 33 mg/g í ferskri plöntu.
Efnissýni merkt 8990 nr. 225: Sýnið voru grænir og brúnleitir plöntuhlutar og mulningar. Upphafleg þyngd var gefin 14,01 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnis 12,44. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni var 18 mg/g, sem samsvarar 16 mg/g í upphaflegu sýni.
Efnissýni merkt 8990 nr. 239: Sýnið var grænir stönglar. Upphafleg þyngd var gefin 9,89 g, en eftir þurrkun var þyngd sýnir 9,76 g. Með smásjárskoðun, gasgreiningu á súlu og massagreiningu fannst að sýnið var kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni var 5,3 mg/g, sem samsvarar 5,2 mg/g í upphaflegu sýni.
II.
Ákærði var yfirheyrður af lögreglu 9. apríl 2006 og kvaðst hann þá fyrir nokkrum mánuðum hafa byrjað að rækta kannabisplöntur. Um tilraunastarfsemi hefði verið að ræða og mikið af plöntum drepist í fyrstu. Þetta hefði síðan vaxið og plöntunum fjölgað. Ákærði sagði að hann ætti plöntunar sjálfur og stæði einn í þessari ræktun. Þá kvaðst ákærði ekki hafa fengið neina uppskeru aðra en þá sem lögregla lagði hald á. Loks sagði ákærði að hann hefði hvorki selt né dreift kannabisefnum.
Fyrir dómi játaði ákærði skýlaust að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið sem réttilega er fær til refsilaga í ákæru.
III.
Á sakavottorði ákærða eru ekki tilgreind brot sem hafa áhrif við ákvörðun viðurlaga. Jafnframt horfir ákærða til málsbóta að hann hefur greiðlega gengist við broti sínu.
Við ákvörðun refsingar verður ekki litið hjá því að ræktun ákærða á kannabisplöntum var umfangsmikil eins og ráðið verður af því sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Á hinn bóginn verður ekki annað ráðið af rannsókn á fjórum plöntum og tveimur efnissýnum en að gæði ræktunarinnar hafi verið mjög misjöfn. Verður ákærði að njóta vafans í þeim efnum.
Rannsókn málsins hófst í apríl 2006 og lauk í maí sama ár. Ákæra var hins vegar ekki gefin út fyrr en 28. nóvember 2007. Þessi dráttur frá lokum lögreglurannsóknar til útgáfu ákæru hefur ekki verið skýrður, en hann brýtur í bága við meginreglu 1. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 og er í andstöðu við 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefur þetta áhrif við ákvörðun refsingar og við mat á því hvort fært þyki að skilorðsbinda hana.
Að öllu því virtu sem hér hefur verið rakið þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Jafnframt þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar samkvæmt yfirliti lögreglu um sakarkostnað og ákvörðun dómsins um málsvarnarlaun verjanda, sem ákveðin eru að meðtöldum virðisaukaskatti, svo sem nánar greinir í dómsorði. Jafnframt verður ákærða gert að greiða útlagðan ferðakostnað verjanda.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Hálfdán Helgi Harðarson, sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 377.957 krónur í sakarkostnað, þar með talin þóknun skipaðs verjanda síns, Ólafs Svanssonar, héraðsdómslögmanns, 83.664 krónur.
Benedikt Bogason