Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-392/2007:

S-392/2007:

Ákæruvaldið

(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)

gegn

Marek Marko

Mál

þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 26. nóvember 2007 á hendur

ákærða, Marek Marko, kt. ..., Suðurgötu 52 á Akranesi. Málið var dómtekið 3.

desember sama ár.

Í ákæruskjali segir að málið sé

höfðað gegn ákærða fyrir umferðar- og fíkniefnabrot framin föstudaginn 9.

nóvember 2007, en ákærða er gefið að sök „að hafa:

I.

Um

kl. 22:30 ekið bifreiðinni YU-844, undir áhrifum bannaðra ávana- og fíkniefna,

frá Akranesi suður Akrafjallsveg og Vesturlandsveg áleiðis til Reykjavíkur uns

lögreglan stöðvaði aksturinn á Vesturlandsvegi á móts við Grundarhverfi,

Kjalarnesi, Reykjavík.

Í

þvagsýni sem tekið var frá ákærða í framhaldi af handtöku fannst

tetrahýdrókannabínólsýra. Tetrahýdrókannabínólsýra er í flokki ávana- og

fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og

fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Brot

ákærða samkvæmt þessum ákærulið þykir varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr.

a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr.

48/1997, 186. gr. laga nr. 82/1998 og 5. gr. laga nr. 66/2006.

II.

Á

sama tíma og I. töluliður ákærunnar tilgreinir haft í sínum vörslum 0,58 g af

marihuana í bifreiðinni YU-844 á Vesturlandsvegi, er lögreglan hafði afskipti

af honum vegna brots er I töluliður ákærunnar tilgreinir en lögreglan fann

efnið við leit í bifreiðinni á vettvangi í framhaldi af handtöku og lagði hald

á það.

Brot

ákærða samkvæmt þessum ákærulið þykir varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga

um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög

nr. 82/1998 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr.

233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð

nr. 232/2001 og nr. 848/2002.

III

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar

samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr.

44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

Þess

er jafnframt krafist að ofangreind 0,58 g af marihuana verði gerð upptæk með

dómi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög 68/2001, og 2. mgr. 14.

gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Í

matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 23. nóvember 2007 kemur

fram að í þvagi hafi fundist tetrahýdrókannabínólsýra. Tetrahýdrókannabínól

hafi ekki verið mælanlegt í blóði. Fram kemur að tetrahýdrókannabínól sé hið

virka efni í kannabis og tetrahýdrókannabínólsýra sé óvirkt umbrotsefni þess í

þvagi. Tetrahýdrókannabínólsýra og tetrahýdrókannabínól séu í flokki ávana- og

fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa

verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar blóð- og þvagsýni hafi

verið tekin, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.

Ákærði

hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að

sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja

dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin, sem réttilega eru færð

Ávana- og fíkniefni.

Maður sakfelldur fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og að hafa fíkniefni í vörslum sínum.

Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 26. nóvember 2007 á hendur ákærða, Marek Marko, kt. ..., Suðurgötu 52 á Akranesi. Málið var dómtekið 3. desember sama ár.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir umferðar- og fíkniefnabrot framin föstudaginn 9. nóvember 2007, en ákærða er gefið að sök „að hafa:

I.

Um kl. 22:30 ekið bifreiðinni YU-844, undir áhrifum bannaðra ávana- og fíkniefna, frá Akranesi suður Akrafjallsveg og Vesturlandsveg áleiðis til Reykjavíkur uns lögreglan stöðvaði aksturinn á Vesturlandsvegi á móts við Grundarhverfi, Kjalarnesi, Reykjavík.

Í þvagsýni sem tekið var frá ákærða í framhaldi af handtöku fannst tetrahýdrókannabínólsýra. Tetrahýdrókannabínólsýra er í flokki ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Brot ákærða samkvæmt þessum ákærulið þykir varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997, 186. gr. laga nr. 82/1998 og 5. gr. laga nr. 66/2006.

II.

Á sama tíma og I. töluliður ákærunnar tilgreinir haft í sínum vörslum 0,58 g af marihuana í bifreiðinni YU-844 á Vesturlandsvegi, er lögreglan hafði afskipti af honum vegna brots er I töluliður ákærunnar tilgreinir en lögreglan fann efnið við leit í bifreiðinni á vettvangi í framhaldi af handtöku og lagði hald á það.

Brot ákærða samkvæmt þessum ákærulið þykir varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 82/1998 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 232/2001 og nr. 848/2002.

III

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

Þess er jafnframt krafist að ofangreind 0,58 g af marihuana verði gerð upptæk með dómi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög 68/2001, og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði frá 23. nóvember 2007 kemur fram að í þvagi hafi fundist tetrahýdrókannabínólsýra. Tetrahýdrókannabínól hafi ekki verið mælanlegt í blóði. Fram kemur að tetrahýdrókannabínól sé hið virka efni í kannabis og tetrahýdrókannabínólsýra sé óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Tetrahýdrókannabínólsýra og tetrahýdrókannabínól séu í flokki ávana- og fíkniefna sem óheimil séu á íslensku forráðasvæði. Ökumaður teljist því hafa verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar blóð- og þvagsýni hafi verið tekin, sbr. 45. gr. a. umferðarlaga.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann ekki fyrr gerst sekur um refsiverða háttsemi.

Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Jafnframt þykir rétt með vísan til þeirra lagaákvæða sem greinir í ákæru að svipta ákærða ökurétti í þrjá mánuði frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

Þá verður ákærði dæmdur til að þola upptöku á haldlögðum fíkniefnum, svo sem í dómsorði greinir.

Loks verður ákærði samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar samkvæmt yfirliti lögreglu.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Marek Marko, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Ákærði er svipur ökurétti í þrjá mánuði frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

Ákærði sæti upptöku á 0,58 g af marihuana.

Ákærði greiði 51.522 krónur í sakarkostnað.

Benedikt Bogason

Heimildaskrá