Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 23. febrúar 2007.
Mál nr. S-31/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Janusz Leper
Lykilorð
Útdráttur
Líkamsárás
Mál þetta er höfðað af sýslumanninum á Akranesi með ákæru 5. febrúar 2007 á hendur ákærða, Janusz Leper, kt. ..., Suðurgötu 34 á Akranesi. Málið var dómtekið 7. febrúar 2007.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir líkamsárás á Akranesi með því að hafa, aðfaranótt sunnudaginn 5. nóvember 2006, á veitingastaðnum Café Mörk, Skólabraut 14, ráðist á Robert Tomasz Kusz, kt. ..., og slegið hann með ölglasi í andlitið og slegið hann í kjölfarið nokkur hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að Robert Tomazs hlaut nefbrot, bólgu og mar á eftir vör og glóðarauga báðum megin.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981 og 111. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði hefur játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst sekur um brot sem áhrif hafa við ákvörðun refsingar.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði verður jafnframt dæmdur til að greiða sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglu, svo sem greinir í dómsorði.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Janusz Leper, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 20.830 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Bogason