Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 11. september 2007.
Mál nr. S-112/2007:
S-112/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Andra Má Jóhannssyni
Mál
þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 30. maí 2007 á hendur ákærða,
Andra Má Jóhannssyni, kt. ..., Garðabraut 29 á Akranesi. Málið var dómtekið 29.
ágúst sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé
höfðað gegn ákærða fyrir líkamsárás, en ákærða er gefið að sök „að hafa,
aðfaranótt föstudagsins 9. mars 2007, á bifreiðastæði við heimavist
Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, við Vogabraut, ráðist á Guðmund Þór
Ólafsson, kt. ..., og slegið hann hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum
Guðmundur Þór hlaut nefbrot og talsverða bólgu og mar yfir miðju nefi.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11.
gr. laga nr. 20/1981 og 111. gr. laga nr. 82/1998.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði
hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að
sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm
á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt
þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til
refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt
sakavottorði hefur ákærði einu sinni gengist undir sektargerð hjá lögreglustjóra
vegna fíkniefnabrots. Þykir mega virða það ákærða til málsbóta að hann hefur
játað brot sitt skýlaust fyrir dómi. Að teknu tilliti til framangreinds og ungs
aldurs ákærða, en hann var einungis 16 ára er hann framdi brotið, þykir refsing
hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að öllum atvikum virtum þykir með
heimild í 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 mega fresta fullnustu
refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu
dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð sömu greinar, sbr. 4. gr. laga nr.
22/1955.
Samkvæmt
Lykilorð
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás.
Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 30. maí 2007 á hendur ákærða, Andra Má Jóhannssyni, kt. ..., Garðabraut 29 á Akranesi. Málið var dómtekið 29. ágúst sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir líkamsárás, en ákærða er gefið að sök „að hafa, aðfaranótt föstudagsins 9. mars 2007, á bifreiðastæði við heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, við Vogabraut, ráðist á Guðmund Þór Ólafsson, kt. ..., og slegið hann hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum Guðmundur Þór hlaut nefbrot og talsverða bólgu og mar yfir miðju nefi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981 og 111. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði einu sinni gengist undir sektargerð hjá lögreglustjóra vegna fíkniefnabrots. Þykir mega virða það ákærða til málsbóta að hann hefur játað brot sitt skýlaust fyrir dómi. Að teknu tilliti til framangreinds og ungs aldurs ákærða, en hann var einungis 16 ára er hann framdi brotið, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að öllum atvikum virtum þykir með heimild í 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð sömu greinar, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða 20.000 krónur í sakarkostnað vegna öflunar áverkavottorðs og þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Hauks Haukssonar hdl., sem þykir hæfilega þykir ákveðin 64.740 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Andri Már Jóhannsson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, samtals 84.740 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Hauks Haukssonar, héraðsdómslögmanns, 64.740 krónur.
Benedikt Bogason