Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 11. september 2007.
Mál nr. S-111/2007:
S-111/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Leifi Inga Magnússyni
Mál
þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 30. maí 2007 á hendur ákærða,
Leifi Inga Magnússyni, kt. ..., Bjarkargrund 9 á Akranesi. Málið var dómtekið
29. ágúst sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé
höfðað gegn ákærða fyrir líkamsárás, en ákærða er gefið að sök „að hafa,
aðfaranótt föstudagsins 9. mars 2007, á bifreiðastæði við heimavist
Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, við Vogabraut, ráðist á Hjalta
Þórhallsson, kt. ..., og slegið hann hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum
Hjalti hlaut blóðnasir og talsverða bólgu og mar yfir miðju nefi.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10.
gr. laga nr. 20/1981 og 110. gr. laga nr. 82/1998.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði
hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að
sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja
dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til
refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt
sakavottorði ákærða var útgáfu ákæru á hendur honum frestað skilorðsbundið 5.
apríl 2005. Þá var ákærði dæmdur 15. júní 2006 í 30 daga fangelsi
skilorðsbundið í tvö ár. Með broti því sem ákærði hefur nú verið sakfelldur
fyrir rauf hann skilorð þess dóms.
Við
ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærði hefur áður gerst sekur um
líkamsárás og verður skilorð samkvæmt framangreindum dómi tekið upp og dæmt
með, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir mega virða það ákærða
til málsbóta að hann hefur játað brot sitt skýlaust fyrir dómi og meiðsli
brotaþola voru ekki teljandi. Þá verður litið til ungs aldurs ákærða. Að öllu
framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá
mánuði, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að
þremur árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57.
gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt
Lykilorð
Útdráttur
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás.
Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 30. maí 2007 á hendur ákærða, Leifi Inga Magnússyni, kt. ..., Bjarkargrund 9 á Akranesi. Málið var dómtekið 29. ágúst sama ár.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða fyrir líkamsárás, en ákærða er gefið að sök „að hafa, aðfaranótt föstudagsins 9. mars 2007, á bifreiðastæði við heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, við Vogabraut, ráðist á Hjalta Þórhallsson, kt. ..., og slegið hann hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum Hjalti hlaut blóðnasir og talsverða bólgu og mar yfir miðju nefi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981 og 110. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í ákæru og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt sakavottorði ákærða var útgáfu ákæru á hendur honum frestað skilorðsbundið 5. apríl 2005. Þá var ákærði dæmdur 15. júní 2006 í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Með broti því sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir rauf hann skilorð þess dóms.
Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærði hefur áður gerst sekur um líkamsárás og verður skilorð samkvæmt framangreindum dómi tekið upp og dæmt með, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir mega virða það ákærða til málsbóta að hann hefur játað brot sitt skýlaust fyrir dómi og meiðsli brotaþola voru ekki teljandi. Þá verður litið til ungs aldurs ákærða. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að þremur árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða 20.000 krónur í sakarkostnað vegna öflunar áverkavottorðs og þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Hauks Haukssonar hdl., er hæfilega þykir ákveðin 64.740 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Leifur Ingi Magnússon, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, samtals 84.740 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Hauks Haukssonar, héraðsdómslögmanns, 64.740 krónur.
Benedikt Bogason