Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-57/2006:

Ákæruvaldið

(Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Rakel Ýr Þrándardóttur

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Ávana- og fíkniefni.

Ákærða sakfelld og dæmd til greiðslu sektar fyrir fíkniefnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var 1. ágúst sl., höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 13. mars 2006 á hendur ákærðu, Rakel Ýr Þrándardóttur, til heimilis að Njálsgötu 48a, Reykjavík, fyrir; „fíkniefnabrot með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 3. júlí 2005, haft í vörslum sínum 0,13 g af amfetamíni og 2 stykki af e-pillum (ecstasy), sem lögreglan fann við leit í veski ákærðu.

Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með áorðnum breytingum og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“

I.

Ákærða kom fyrir dóm 1. ágúst sl. og viðurkenndi brot sitt eins og því er lýst í ákæru. Játning ákærðu er í samræmi við gögn málsins. Brot hennar telst því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind laga- og reglugerðaákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.

II.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærða undir sektargerð lögreglustjóra 23. október 2003 þess efnis að hún greiddi 80.000 króna sekt og sætti sviptingu ökuréttar í átta mánuði vegna ölvunaraksturs. Þá var ákærða 22. júní 2005 dæmd í tveggja mánaða fangelsi fyrir umboðssvik.

Með broti því sem ákærða hefur nú verið sakfelld fyrir rauf hún skilorð dómsins frá 22. júní 2005. Með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir rétt að láta skilorðsdóminn haldast og dæma ákærðu refsingu sér í lagi án skilorðs.

Refsing ákærðu þykir að broti hennar virtu hæfilega ákveðin 60.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.

Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, Rakel Ýr Þrándardóttir, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Benedikt Bogason.