Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-421/2006:

Ákæruvaldið

(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)

gegn

Ragnari Friðrik Haraldssyni

Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Maður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og að aka á móti rauðu ljósi.

Mál þetta er höfðað af sýslumanninum á Akranesi með ákæru 20. desember 2006 á hendur ákærða, Ragnari Friðrik Haraldssyni, kt. ..., Furugrund 1 á Akranesi. Málið var dómtekið 23. janúar 2007.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir akstur á bifreiðinni PZ- 641 undir áhrifum amfetamíns á Akranesi laugardaginn 21. október 2006 í eftirgreind skipti:

Um kl. 4:20 ekið austur Skagabraut, yfir bifreiðastæði við söluskála Shell við Skagabraut, vestur Stillholt og norður Dalbraut uns hann stöðvaði aksturinn við hús nr. 21 við Dalbraut. Í blóðsýni sem tekið var úr ákærða í framhaldi af handtöku mældist amfetamín 135 ng/ml en amfetamín er í flokki ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Um kl. 6:04 ekið austur Innnesveg uns lögreglan stöðvaði aksturinn á móts við Víkurbraut. Í blóðsýni sem tekið var úr ákærða í framhaldi af handtöku mældist amfetamín 125 ng/ml en amfetamín er í flokki ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Brot ákærða þykir varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 186. laga nr. 82/1998 og 5. gr. laga nr. 66/2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Málið er einnig höfðað með ákæru 22. janúar 2007 sem sýslumaðurinn á Akranesi gaf út á hendur ákærða. Í því ákæruskjali er ákærða gefið að sök „umferðarlagabrot og á Akranesi, með því að hafa sunnudaginn 20. ágúst 2006 um kl. 22:45, ekið bifreiðinni PZ-641 norðaustur Stillholt, inn á gatnamót Kirkjubrautar, Stillholts og Kalmansbrautar, og áfram Kalmansbraut þrátt fyrir rautt ljós logað fyrir akstursstefnu hans á gatnamótunum.

Brot ákærða þykja varða við 5. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlag nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Loks er málið höfðað með ákæru 23. janúar 2007 sem sýslumaðurinn á Akranesi gaf út á hendur ákærða. Í því ákæruskjali er ákærða gefið að sök „fyrir akstur undir áhrifum amfetamíns á Akranesi með því að hafa, föstudaginn 9. desember 2006 um kl. 22:20, ekið bifreiðinni PZ-641 vestur Kirkjubraut og inn á Akurgerði uns lögreglan stöðvaði aksturinn á móts við hún nr. 6 við Akurgerði. Í blóðsýni sem tekið var úr ákærða í framhaldi af handtöku mældist amfetamín 195 ng/ml en amfetamín er í flokki ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Brot ákærða þykir varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 186. laga nr. 82/1998 og 5. gr. laga nr. 66/2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Ákærði hefur skýlaust játað að hafa framið öll þau brot sem honum eru gefin að sök í ákærum málsins og er játning hans studd sakargögnum. Eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin, sem réttilega eru færð til refsiákvæða í ákærum.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði gengist undir fimm lögreglustjórasáttir vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni.

Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 300.000 króna fésekt til ríkissjóðs og komi 20 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Með vísan til þeirra lagaákvæða sem í ákæru greinir verður ákærði sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði verður jafnframt dæmdur til að greiða sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglu, svo sem nánar greinir í dómsorði.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan en uppsaga dómsins hefur dregist lítillega vegna embættisanna dómarans.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ragnar Friðrik Haraldsson, greiði 300.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 20 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Ákærði er sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 202.629 krónur í sakarkostnað.

Benedikt Bogason