Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 9. janúar 2007.
Mál nr. S-398/2006:
Ákæruvaldið
(Daði Jóhannesson sýslumaður)
gegn
Óskari Harðarsyni
Adam Bjarka Ægissyni
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Ákærðu sakfelldir fyrir nytjastuld og dæmdir til greiðslu sektar.
Mál þetta er höfðað af sýslumanninum í Stykkishólmi með ákæru 6. nóvember 2006 á hendur ákærða, Adam Bjarka Ægissyni, Holtsgötu 20 í Hafnarfirði, og Óskari Harðarsyni, Faxabraut 34a í Reykjanesbæ. Málið var dómtekið 13. desember sama ár.
Í ákæruskjali er ákærðu gefin að sök nytjastuldur með því „að hafa í sameiningu laugardaginn 15. júlí 2006 tekið Polaris vélsleðann DJ-563 í heimildarleysi þar sem hann stóð á athafnasvæði Snjófells ehf. á Jökulhálsi við Snæfellsjökul, og ekið honum nokkurn spöl frá þeim stað og til baka aftur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. “
Hvorugur ákærðu sóttu þing er málið var þingfest né tilkynntu um forföll. Verður málið því dæmt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991, enda var þess getið í fyrirkalli, sem ákærðu var birt sjálfum á löglegan hátt, að svo mætti með málið fara. Með vísan til þess og sakargagna verða báðir ákærðu sakfelldir fyrir að hafa framið það brot sem þeim er gefið að sök og réttilega er fært til refsiákvæða í ákæruskjali.
Ákærðu hafa nokkur brot á sakaskrá en þau hafa ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu. Aftur á móti er til þess að líta að ákærðu greindu lögreglu frá því við rannsókn málsins að þeir hefðu í umrætt sinn orðið bensínlausir á vélsleða á Snæfellsjökli. Því hefðu þeir þurft að fara fótgangandi nokkurn spöl að ná í bensínbrúsa í bifreið sem þeir höfðu til umráða. Þaðan hefðu þeir ekki nennt að ganga blautir og kaldir að vélsleðanum og því brugðið á það ráð að taka sleða ófrjálsri hendi eins og nánar er lýst í ákæru. Þessi lýsing ákærðu er ekki vefengd af hálfu ákæruvaldsins og horfir ákærðu til nokkurra málsbóta. Að því virtu verður brot þeirra talið smávægilegt þannig að heimilt sé að gera þeim fésekt. Þykir sekt hvors um sig í ríkissjóð hæfilega ákveðin 20.000 krónur og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inn fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan en uppsaga dómsins hefur dregist lítillega vegna embættisanna dómarans.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Adam Bjarki Ægisson, greiði 20.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Ákærði, Óskar Harðarson, greiði 20.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Benedikt Bogason