Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-273/2006:

Ákæruvaldið

(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)

gegn

Erni Úlrikssyni

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot og dæmdur til greiðslu sektar.

Mál þetta, sem dómtekið var 5. september sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 9. ágúst 2006 á hendur ákærða, Erni Úlrikssyni, kt. [---], til heimilis að Kirkjubraut 21, Akranesi; „fyrir eftirgreind hraðaksturs- og fíkniefnabrot framin á árinu 2006 með því að hafa:

I.

Föstudaginn 24. mars, á heimili sínu að Kirkjubraut 21, Akranesi, haft í vörslum sínum 7,12 g af amfetamíni en lögreglan fann efnið við leit á ákærða og lagði hald á það.

II.

Föstudaginn 30. júní, í verslun Bónusvídeó, Þönglabakka 6, Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,41 g af amfetamíni sem hann faldi á bakvið ruslaílát í versluninni við komu lögreglunnar á vettvang en lögreglan fann efnið við leit í versluninni og lagði hald á það.

III.

Fimmtudaginn 6. júlí kl. 12:00, ekið bifreiðinni MB-877 austur Akrafjallsveg, Akranesi, á 126 kílómetra hraða á klukkustund á vegarkafla á móts við Skógræktina þar sem leyfður hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

IV.

Telst brot skv. I. og II. lið ákærunnar varða við 2. gr. sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni sbr. reglugerð nr. 848/2002. Brot skv. III. lið ákærunnar telst varða við 2. mgr. 37. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

V.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þess er jafnframt krafist að ofangreind samtals 8,53 g af amfetamíni verði gerð upptæk með dómi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. “

I.

Ákærði kom fyrir dóm 5. september sl. og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans teljast því sönnuð og varða þau við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.

II.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði langan sakaferil að baki, en á árunum 1993 til 2002 hlaut hann átján refsidóma, einkum fyrir margvísleg hegningarlagabrot en einnig ítrekuð fíkniefnabrot.

Við ákvörðun refsingar verður, auk þess sem áður segir um sakaferil ákærða, að líta til þess að hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Að þessu athuguðu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin 120.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tíu daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra laga- og reglugerðarákvæða í ákæru eru gerð upptæk 8,53 grömm af amfetamíni.

Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði greiði því þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., sem hæfilega þykir ákveðin 49.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Örn Úlriksson, greiði 120.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tíu daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Ákærði greiði 49.800 krónur í sakarkostnað Ákærði sæti upptöku á 8,53 grömmum af amfetamíni.

Benedikt Bogason