Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 13. september 2006.
Mál nr. S-270/2006:
Ákæruvaldið
(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Rögnvaldi E. Sverrissyni
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var 29. ágúst sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 3. ágúst 2006 á hendur ákærða, Rögnvaldi E. Sverrissyni, kt. [---], til heimilis að Laugarbraut 18, Akranesi; „fyrir líkamsárás á Akranesi með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 11. júlí 2006, ráðist á föður sinn Sverri Hinrik Jónsson, kt. [---], á heimili hans að Laugarbraut 18, Akranesi, og slegið hann með flötum lófa í andlit og nokkur hnefahögg í andlit, bak og síðu með þeim afleiðingum að Sverrir hlaut mar og yfirborðsáverka á höfði, brjóstkassa og hægri framhandlegg.
Telst brot þetta varða við 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981 og 110. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
I.
Ákærði kom fyrir dóm 29. ágúst sl. og viðurkenndi brot sitt eins og því er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans telst því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreint lagaákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærði 7. janúar 1998 og 30. maí 2003 undir sektargerðir lögreglustjóra vegna ölvunaraksturs. Þá var hann 21. júlí 2003 dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Stóðst ákærði það skilorð.
Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ákærði hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. Hins vegar þykir mega virða það ákærða til málsbóta að hann játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi. Refsing ákærða þykir að þessu og broti hans virtu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að atvikum öllum athuguðum þykir með heimild í 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð nefndrar 57. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað. Með vísan til framlagðs sakarkostnaðaryfirlits dæmist ákærði til að greiða 20.815 krónur vegna öflunar áverkavottorðs.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Rögnvaldur E. Sverrisson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 20.815 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Bogason