Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 13. september 2006.
Mál nr. S-199/2006:
Ákæruvaldið
(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Vilhjálmi Þór Þrastarsyni
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsáras og dæmdur til greiðslu sektar og skaðabóta.
Mál þetta, sem dómtekið var 29. ágúst sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akranesi með ákæru 27. júní 2006 á hendur ákærða, Vilhjálmi Þór Þrastarsyni, kt. [---], til heimilis að Vallarbraut 13, Akranesi; „fyrir líkamsárás á Akranesi með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 25. maí 2006, á skemmtistaðnum Breiðin, Bárugötu 15, ráðist á Þorgils Sigurþórsson, kt. 210450-2389, rifið í hárið á honum og skallað hann í andlitið með þeim afleiðingum að Þorgils hlaut lítið hliðfært nefbrot, mar á nefi og blóðnasir.
Telst brot þetta varða við 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981 og 110. gr. laga nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Skaðabótakrafa.
Í málinu gerir Þorgils Sigurþórsson, kt. [---], þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að upphæð samtals kr. 55.800,-.“
I.
Ákærði kom fyrir dóm 29. ágúst sl. og viðurkenndi brot sitt eins og því er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans telst því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreint lagaákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði fjórum sinnum gengist undir sektargerð hjá lögreglustjóra vegna umferðarlagabrota.
Eins og áður er rakið játaði ákærði brot sitt skýlaust fyrir dómi. Ennfremur samþykkti hann bótakröfu brotaþola. Að þessu og broti ákærða virtu þykir refsing hans hæfilega ákveðin 80.000 króna sekt og komi sex daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
II.
Í málinu krefst brotaþoli bóta úr hendi ákærða að fjárhæð 55.800 krónur. Svo sem áður segir samþykkti ákærði kröfuna fyrir dómi. Með vísan til þess samþykkis ákærða verður hann dæmdur til að greiða brotaþola nefnda fjárhæð.
III.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað. Með vísan til framlagðs sakarkostnaðaryfirlits og fylgigagna þess dæmist ákærði til að greiða 20.815 krónur vegna öflunar áverkavottorðs.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Vilhjálmur Þór Þrastarson, greiði 80.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi sex daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Ákærði greiði 20.815 krónur í sakarkostnað.
Ákærði greiði Þorgils Sigurþórssyni, 55.800 krónur.
Benedikt Bogason