Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 3. ágúst 2006.
Mál nr. S-179/2006:
Ákæruvaldið
(Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Benjamín Magnúsi Óskarssyni
Amy Ósk Ómarsdóttur
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Ákærðu sakfelld og dæmd til greiðslu sektar fyrir fíkniefnabrot. Ákærða einnig sakfelld fyrir umferðarlagabrot.
Mál þetta er höfðað af sýslumanninum í Borgarnesi með ákæru 15. júní 2006 á hendur ákærðu, Amy Ósk Ómarsdóttur og Benjamín Magnúsi Óskarssyni, báðum til heimils að Bankastræti 8 á Skagaströnd. Málið var dómtekið 21. júlí 2006.
Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærðu „fyrir eftirgreind umferðar- og fíkniefnalagabrot:
I.
Gegn ákærða Benjamín fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í Reykjavík, keypt og haft í vörslum sínum 18,84 g af hassi sem hann síðan afhenti meðákærðu Amy til vörslu, aðfaranótt laugardagsins 10. desember 2005.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002.
II.
Gegn ákærðu Amy fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 10. desember 2005 ekið bifreiðinni MO-210, frá Reykjavík í Borgarnes án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og hafa haft í vörslum sínum 18,84 g af hassi sem fannst við leit á henni á lögreglustöðinni í Borgarnesi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar.“
Ákærði Benjamín hefur skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök í I. ákærulið og er játning hans studd málsgögnum. Eru því efni til að leggja dóm á þann þátt málsins samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið, sem réttilega er fært til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða Amy hefur jafnframt skýlaust játað að hafa framið þau brot sem henni eru gefin að sök í II. ákærulið og er játning hennar studd gögnum málsins. Eru því einnig efni til dómur verði lagður á málið að því leyti samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991. Samkvæmt þessu verður ákærða sakfelld fyrir þau brot sem henni eru gefin að sök, en brotin eru rétt færð til refsilaga í ákæru.
Samkvæmt sakavottorði ákærða Benjamíns hlaut hann dóm 30. apríl 2004 fyrir ránstilraun og var refsing ákveðin 8 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár. Með dómi 24. nóvember sama ár var skilorðsdómurinn tekinn upp og ákærða dæmdur hegningarauki fyrir fjársvik. Var refsing þá ákveðin 9 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár. Refsing samkvæmt þeim dómi var einnig dæmd upp með dómi 1. febrúar 2005, sem ákærði hlaut fyrir fjársvik. Þar var refsing ákveðin 11 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár. Ákærði Benjamín hlaut næst dóm 20. apríl 2005 fyrir fíkniefnabrot en var ekki gerð refsing. Þá hlaut ákærði dóma 23. júní og 28. nóvember 2005 fyrir fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Með þeim dómum var fyrri skilorðsdómur látinn haldast og ákærða gerð refsing sér í lagi með fésekt. Með broti því sem ákærði Benjamín er fundinn sekur um í málinu hefur hann rofið skilorð dómsins frá 1. febrúar 2005. Til þess ber að líta að ákærði hefur í samræmi við ákæru verið sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna en það brot getur ekki varðað þyngri viðurlögum en sektum. Þykir rétt að skilorðsdómurinn haldi en ákærða verði gerð refsing sér í lagi og er hún hæfilega ákveðin 100.000 kóna sekt til ríkissjóðs og komi 8 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Refsing ákærðu Amy, sem er með hreint sakavottorð, þykir hæfilega ákveðin 80.000 króna sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.
Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Benjamín Magnús Óskarsson, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 8 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Ákærði, Amy Ósk Ómarsdóttir, greiði 80.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Benedikt Bogason