Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

X

(Kristján Óskar Ásvaldsson hdl.)

I

Mál þetta sem dómtekið var 19. nóvember 2018 höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 17. september 2018 á hendur X, kennitala 000000-0000, […], […], „fyrir þjófnað, með því að hafa, þriðjudaginn 8. maí 2018, stolið fjórum vörum úr verslun Lyfju hf. á Ísafirði, Pollgötu 4, nánar tiltekið JCH cold rose kabuki meikbursta, insight restructurizing hárvöru, UBU meiksvömpum og hárbursta, alls að fjárhæð kr. 4.904, með því að taka vörurnar úr hillum verslunarinnar og setja í veski sitt og úlpuvasa, og ganga út úr versluninni, án þess að greiða fyrir vörurnar.

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa

F, kt. 000000-0000, framkvæmdastjóri Lyfju hf., gerir þá kröfu f.h. Lyfju hf., kt. 000000-0000, að hin ákærða verði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð kr. 4.904, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn 8. maí 2018, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati dómsins, að teknu tilliti til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.“

Stefnda neitar sök og krefst sýknu og frávísunar bótakröfu auk þess að allur sakarkostnaður þar með talin málsvarnarlaun verjanda síns verði greidd úr ríkissjóði.

II

Með bréfi dagsettu 27. júní 2018 lagði lyfjaverslunin Lyfja Ísafirði fram kæru á hendur ákærðu fyrir þjófnað, samhliða bótakröfu. Samkvæmt því bréfi höfðu starfsmenn verslunarinnar látið yfirmenn sína vita af grunsamlegu atviki sem átti sér stað í versluninni 8. maí 2018. Skoðun á upptöku úr myndavélakerfi lyfjaverslunarinnar hefði svo leitt í ljós þjófnað. Greining myndefnis hefði sýnt ákærðu taka fjórar vörur úr versluninni. Með kærubréfi fylgdi kassakvittun, útprentun ljósmynda úr öryggismyndavélakerfi lyfjaverslunarinnar og mynddiskur, upptaka úr öryggismyndavélakerfi.

Ákærða gaf skýrslu hjá lögreglu 19. júlí 2018. Ákærða kvaðst þá ekki muna eftir þessum atvikum og neitaði sök. Ákærðu voru sýndar myndir úr öryggismyndavél og kvaðst hún þekkja sig af þeim myndum.

III

Ákærða kom ekki fyrir dóm við aðalmeðferð málsins.

Vitnið E, starfsmaður Lyfju á Ísafirði gaf skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Vitnið kvaðst hafa verið við störf 8. maí s.l. er þau atvik urðu er málið varðar og muna eftir því. Vitnið kvaðst ekki hafa tekið strax eftir ákærðu en hún hefði haldið sig neðarlega í hillum verslunarinnar. Vitnið kvað samstarfskonu sína strax hafa grunað ákærðu um þjófnað og því hefði verið óskað eftir gögnum frá öryggismiðstöð. Farið hefði verið um verslunina til að kanna hvort vörur hefðu verið teknar úr umbúðum eða færðar milli deilda í hillum eða hvort þær hefðu legið á gólfi, en svo hefði ekki verið. Þá hefði verið sannreynt með aðstoð öryggismiðstöðvar hvaða vörur vantaði í verslunina, en vörurnar sem ákærða hefði tekið hefðu verið ódýrar vörur sem ekki hefðu verið sérstaklega þjófamerktar.

IV

Ákærðu er gefið að sök þjófnaðarbrot, með því að hafa 8. maí 2018 í lyfjaversluninni Lyfju á Ísafirði stolið snyrtivörum samtals að verðmæti 4.904 krónur. Styðst ákæra lögreglustjórans við upptökur úr öryggismyndavélum sem staðsettar eru í versluninni. Ákærða hefur neitað sök en kaus að koma ekki fyrir dóm við aðalmeðferð málsins. Hjá lögreglu kannaðist ákærða við sjálfa sig á þeim myndum sem lagðar eru fram í málinu.

Framlagðar upptökur úr eftirlitsmyndavélum ná yfir þær 25 mínútur sem ákærða dvaldi í versluninni. Að mati dómsins fer ekki milli mála að á þeim myndum má sjá ákærðu taka vörur úr hillum verslunarinnar, sem í tvígang hverfa úr höndum hennar þegar ákærða er í hvarfi frá myndvél og í önnur tvö skipti sést ákærða setja vörur í veski sitt. Þá sést og í mynd að ákærða kom á kassa en greiddi ekki fyrir neinar vörur né skilaði vörum. Þá hefur vitni borið að leitað hafi verið í versluninni eftir að ákærða fór þaðan en engar vörur hefðu verið færðar úr stað í versluninni. Að framansögðu virtu og með vísan til rannsóknargagna málsins þykir komin fram lögfull sönnun þess að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákærðu greinir og hún rétt heimfærð til refsiákvæðis.

V

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður til þess litið að ákærða er nú í áttunda sinn fundin sek um þjófnaðarbrot, verður því litið svo á að ákærða hafi lagt slík brot í vana sinn í skilningi 72. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá ber og til þess að líta að ákærðu var síðast í maí 2014 veitt reynslulausn í eitt ár á eftirstöðvum refsingar fyrir þjófnaðarbrot. Hefur það brot því ítrekunaráhrif, sbr. 3. mgr. 71. gr. alm. hegningarlaga. Að þessu virtu og með hliðsjón af 255. gr. alm. hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en að teknu tilliti til verðmætis hins stolna þykir rétt að fresta fullnustu tveggja mánaða þeirrar refsingar og að sá hluti hennar falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Í málinu liggur fyrir bótakrafa að fjárhæð 4.904 krónum ásamt vöxtum og dráttarvöxtum eins og nánar greinir í ákæru. Með vísan til framanritaðs telur dómurinn sannað að ákærða hafi gerst sek um þjófnað á þeim munum sem um ræðir og verður því fallist á bótakröfu stefnanda samkvæmt kröfu hans.

Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærðu gert að greiða sakarkostnað málsins. Ákærða dæmist því til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Óskars Ásvaldssonar lögmanns, sem eftir umfangi málsins og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda þykir hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir. Dóm þennan kveður upp Bergþóra Ingólfsdóttir héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, X, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða þeirrar refsingar og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Óskars Ásvaldssonar lögmanns, 247.820 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

Ákærða greiði Lyfju hf., kt. 000000-0000, 4.904 krónur með vöxtum af þeirri fjárhæð samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 8. maí 2018 til 3. nóvember 2018, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Bergþóra Ingólfsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.3. mgr. 71. gr.72. gr.1. mgr. 244. gr.255. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 235. gr.