Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 25. október 2012.
Mál nr. S-56/2012:
Ákæruvaldið
(Kristján Óskar Ásvaldsson fulltrúi)
gegn
Daníel Inga Gunnarssyni
Með ákæru 15. júní 2012 höfðaði
lögreglustjórinn á Vestfjörðum mál nr. S-45/2012 á hendur ákærða, Daníel Inga
Gunnarssyni, kt. ...., til heimilis að Skipagötu 14, Ísafirði, og fimm öðrum
sakborningum. Í þinghaldi 10. október sl. var þáttur ákærða Daníels Inga skilinn
frá máli nr. S-45/2012 og mál þetta þingfest og dómtekið. Í ákæru
lögreglustjóra segir að sakamál sé höfðað;
[...]
„á hendur ákærðu
X
og Daníel Inga fyrir nytjastuld
ökutækis, með því að hafa, í sameiningu, aðfararnótt laugardagsins 18. júní
2011, farið inn í bifreiðina TI-251, í eigu ÍS 47 ehf., kt. ...., þar sem hún
stóð fyrir framan beitningarskúra við Mjósund 9 á Ísafirði, og notað bifreiðina
í heimildarleysi, ekið henni frá Mjósundi á Ísafirði, um Djúpveg (veg nr. 61)
að Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi, og til baka um Djúpveg (veg nr. 61) til
Ísafjarðar, þar til lögregla stöðvaði aksturinn við Seljalandsveg 28 á Ísafirði
um kl. 10.24 að morgni 18. júní 2011.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259.
gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum.
[---]
á hendur Daníel Inga fyrir
umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 29. febrúar 2012, ekið
bifreiðinni ST-487, um Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, ófær um að stjórna henni
Telst þetta varða við 1., sbr. 2.,
mgr. 44. gr. og 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga
nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum.
[---]
á hendur Daníel Inga, fyrir
umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 26. apríl 2012, ekið
bifreiðinni ST-487, suður Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði (veg nr. 61), á 155 km
hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90 km/klst., ófær um að stjórna
henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi), auk
þess sem bifreiðin var án lögboðinna skráningarmerkja að framan, þar til
lögreglan stöðvaði aksturinn fyrir neðan Naustahvilft í Skutulsfirði.
Telst þetta varða við 2. mgr. 37.
gr., 1., sbr. 2., mgr. 44. gr., 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, og 1. mgr. 63.
gr., sbr. 64. gr., sbr. og 17. og 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003, sbr. og 1.
mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum.
[---]
á hendur Daníel Inga, fyrir umferðarlagabrot,
með því að hafa föstudaginn 27. apríl 2012, ekið bifreiðinni TD-S92, um
Hafnargötu á Hólmavík, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa
fíkniefna (tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi), þar til lögreglan stöðvaði
aksturinn við Hafnargötu á Hólmavík.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2.,
mgr. 44. gr., og 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr.
umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum.
Í ákæruliðum I-XVIII er þess krafist
Lykilorð
Bráðabirgðasvipting ökuréttar. Nytjastuldur. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ungur karlmaður sakfelldur fyrir nytjastuld og nokkur umferðarlagabrot.
Með ákæru 15. júní 2012 höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum mál nr. S-45/2012 á hendur ákærða, Daníel Inga Gunnarssyni, kt. ...., til heimilis að Skipagötu 14, Ísafirði, og fimm öðrum sakborningum. Í þinghaldi 10. október sl. var þáttur ákærða Daníels Inga skilinn frá máli nr. S-45/2012 og mál þetta þingfest og dómtekið. Í ákæru lögreglustjóra segir að sakamál sé höfðað; [...] VIII. (Mál nr. 018-2011-2068) „á hendur ákærðu X og Daníel Inga fyrir nytjastuld ökutækis, með því að hafa, í sameiningu, aðfararnótt laugardagsins 18. júní 2011, farið inn í bifreiðina TI-251, í eigu ÍS 47 ehf., kt. ...., þar sem hún stóð fyrir framan beitningarskúra við Mjósund 9 á Ísafirði, og notað bifreiðina í heimildarleysi, ekið henni frá Mjósundi á Ísafirði, um Djúpveg (veg nr. 61) að Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi, og til baka um Djúpveg (veg nr. 61) til Ísafjarðar, þar til lögregla stöðvaði aksturinn við Seljalandsveg 28 á Ísafirði um kl. 10.24 að morgni 18. júní 2011.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum. [---] XIV. (Mál nr. 018-2012-680) á hendur Daníel Inga fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 29. febrúar 2012, ekið bifreiðinni ST-487, um Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (tetrahýdrókannabínól í blóði mældist 0,7 ng/ml), þar til lögreglan stöðvaði aksturinn við Tunguá á Skutulsfjarðarbraut.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2., mgr. 44. gr. og 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum. [---] XVII. (Mál nr. 018-2012-1396) á hendur Daníel Inga, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 26. apríl 2012, ekið bifreiðinni ST-487, suður Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði (veg nr. 61), á 155 km hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90 km/klst., ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi), auk þess sem bifreiðin var án lögboðinna skráningarmerkja að framan, þar til lögreglan stöðvaði aksturinn fyrir neðan Naustahvilft í Skutulsfirði.
Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr., 1., sbr. 2., mgr. 44. gr., 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, og 1. mgr. 63. gr., sbr. 64. gr., sbr. og 17. og 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003, sbr. og 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum. [---] XVIII. (Mál nr. 018-2012-1409) á hendur Daníel Inga, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 27. apríl 2012, ekið bifreiðinni TD-S92, um Hafnargötu á Hólmavík, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi), þar til lögreglan stöðvaði aksturinn við Hafnargötu á Hólmavík.
Telst þetta varða við 1., sbr. 2., mgr. 44. gr., og 1., sbr. 2., mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum.
Í ákæruliðum I-XVIII er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Í ákæruliðum XVII-XVIII er þess jafnframt krafist að ákærði verði dæmdur til sviptingar ökuréttinda skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. og 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“
I.
Ákærði kom fyrir dóm 17. september sl. og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst í ákæru. Játning ákærða samrýmist gögnum málsins. Brot hans teljast því sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í stafliðum VIII, XIV, XVII og XVIII í ákæru, að því undanskildu að vísun til 1., sbr. 2., mgr., 44. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 er ofaukið í þremur síðasttöldum ákæruliðunum. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærði 14. júní 2010 undir sektargerð lögreglustjóra vegna hraðaksturs þess efnis að hann greiddi 140.000 krónur í sekt og sætti sviptingu ökuréttar í tvo mánuði.
Refsing ákærða vegna nytjastuldarins þykir samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin 30 daga fangelsi. Þar sem ákærði gerðist einnig sekur um nokkur umferðarlagabrot þykir heimilt og rétt að gera honum jafnframt sektarrefsingu, sbr. heimildarákvæði 4. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir fésekt ákærða hæfilega ákveðin 290.000 krónur og komi tuttugu daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Eftir atvikum þykir rétt að fresta fullnustu fangelsisrefsingar ákærða og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Þá ber, svo sem krafist er í ákæru og skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti í átta mánuði frá 27. apríl 2012 að telja, en þann dag var ákærði sviptur ökurétti til bráðabirgða af lögreglustjóranum á Vestfjörðum.
Skv. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Með vísan til framlagðra sakarkostnaðaryfirlita og fylgigagna þeirra dæmist ákærði til að greiða samtals 197.313 krónur vegna töku blóð- og þvagsýna og rannsókna á sýnunum.
Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Daníel Ingi Gunnarsson, sæti 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 290.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi tuttugu daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði er sviptur ökurétti í átta mánuði frá 27. apríl 2012 að telja.
Ákærði greiði 197.313 krónur í sakarkostnað.
Kristinn Halldórsson