Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 21. apríl 2008.
Mál nr. S-17/2008:
S-17/2008:
Ákæruvaldið
(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Magnúsi Kristjáni Guðjónssyni
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, og lögum um lögskráningu sjómanna
Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl., höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 14. febrúar 2008 á hendur ákærða, Magnúsi Kristjáni Guðjónssyni, kt. ....., til heimilis að Móatúni 13, Tálknafirði, „fyrir brot á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa og lögum um lögskráningu sjómanna, með því að hafa, laugardaginn 12. janúar 2008, sem skipstjóri á línubátnum Kópur BA-175, sknr. 1063, 252,6 brúttórúmlesta fiskiskipi, lengd 34,86 metrar, með 640 kW vél, lagt skipinu úr höfn á Tálknafirði og siglt því til veiða án þess um borð væri maður með vélavarðarréttindi og án þess að færa lögskráningarbók um borð, en landhelgisgæslan kom að bátnum að veiðum þann 14. janúar 2008 á stað 65°17´N - 25°21´V, eða 25 sjómílur SV af Bjargtöngum.
Telst þetta varða við 3. tl. a-liðar 3. mgr. 12. gr., sbr. 20. gr. laga nr. 30/2007 og 4. tl. 7. gr. og 2. mgr. 12. gr., sbr. 17. gr., laga nr. 43/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
I.
Fyrirkall í máli þessu var gefið út 21. febrúar 2008 og var það birt fyrir ákærða 28. sama mánaðar. Við fyrirtöku málsins 9. apríl sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.
Samkvæmt áðurgreindri lagagrein þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða teljast því sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í ákæru.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða ekki áður verið gerð refsing.
Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin 50.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa.
Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Magnús Kristján Guðjónsson, greiði 50.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjögurra daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Kristinn Halldórsson